Morgunblaðið - 11.12.2019, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 11.12.2019, Qupperneq 16
16 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. DESEMBER 2019 Suðurlandsbraut 26 Sími: 587 2700 Opið: 11-18 virka daga, 11-16 laugardaga www.alno.is Skólar & námskeið fylgir Morgunblaðinu föstudaginn 3. janúar 2020 NÁNARI UPPLÝSINGAR: Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is PÖNTUN AUGLÝSINGA fyrir föstudaginn 20. desember. SÉRBLAÐ Í blaðinu verður fjallað um þá fjölbreyttu flóru sem í boði er fyrir þá sem stefna á frekara nám. –– Meira fyrir lesendur Íslenskt samfélag hefur tekið gríðar- legum breytingum á örfáum mannsöldrum. Á tímum foreldra okkar sem nú erum að nálgast efri ár var ekkert of mikið af gæðum lífsins. Mjög mikið var unnið og lagt á sig fyrir brýn- ustu þörfum. Oft var mikilli orku og starfi eytt í að afla fremur lítilla og einfaldra gæða. Þá tíðkaðist að gjörnýta allt sem náttúran gaf af sér og fleygja engu sem nýtilegt kunni að vera og nýta mætti síðar. Um aldamótin 1900 voru um 90% íslensku þjóðarinnar að fást við landbúnað sem lítið hafði breyst í þúsund ár. Einungis í allra bestu árum var nægur matur framleiddur fyrir alla þjóðina. Í samanburði þá eru einungis örfá prósent þjóðarinnar að fást við landbúnað- arstörf nú í dag og gætu auðveldlega framleitt mun meira en þörf landsmanna er fyrir. Við lifum í dag á tímum eyðsl- unnar og sóunar hvar sem borið er niður í samanburði við skort- inn og nægjusemi sem fyrri kynslóðum þótti sjálf- sagt daglegt brauð. Nú eru aðrir tímar. Við höfum upplifað einhverjar mestu fram- farir mannkyns á undangengnum áratugum. En eitt mikilsvert atriði er það sem við höfum vanrækt þó svo við gætum auðveldlega gert betur: Umhverfið okkar hefur víða beðið skaða af athöfnum okkar og um- svifum. Við höfum sýnt náttúrunni mikið kæruleysi og allt að því van- virðingu, álagið á náttúruna er því mjög mikið. Loftgæði á þéttbýlis- svæðum eru víða mjög lítil. Hefur verið rætt um að grípa til ráðstaf- ana, t.d. að takmarka umferð bif- reiða. Betra væri að ráðast að or- sökum vandans en það er nú oft svo í heimi okkar mannanna að byrjað er á röngum enda með því að reyna að hafa áhrif á afleiðing- arnar fremur en orsakir vandans. Mörg okkar sem komin erum á efri ár eða erum að hefja nýja lífs- hætti eftir misjafnlega langan starfsdag, erum viðkvæm fyrir ýmiskonar áreiti úr umhverfinu. Þar ber fyrst og fremst að nefna mengun, hraða og hávaða. Nú er upprunninn tími eyðslu og sóunar. Skelfilegt er til þess að vita að um þriðjungur og jafn- vel meira af framleiddum mat- vælum lendi á ruslahaugunum. Þarna getum við tekið okkur verulega á. Alþjóðasamfélagið hefur sett reglur um takmörkun á brenni- steinsmengun vegna samgangna og hafa ýmis fyrirtæki brugðist við. Þannig hefur Eimskip, okkar elsta skipafélag, tekið við sér eins og lesa má á þessari slóð: www.eimskip.is/um-eimskip/ frettasafn/frettir/breyttar- althjodlegar-reglur-um-brenni- steinsutblastur-fra-skipum Á gamlársdag verður yfirleitt einhver versta loftmengun á Ís- landi með flugeldum, blysum og öðru sem veldur óbærilegri loft- mengun. Víða um heim er spornað við þessu og má geta þess að í Þýskalandi hafa verið settar mjög ákveðnar reglur um notkun flug- elda, m.a. vegna eldhættu og óþarfa mengunar. En mörgum þykir það ekki nóg og vilja banna flugelda með öllu eins og lesa má á þessari slóð: www.duh.de/feuerwerk-protest Við Íslendingar höfum lengi verið eftirbátar annarra þjóða. Hvað loftgæði varðar þá erum við ansi langt á eftir öðrum þjóðum. Það verður að teljast mjög miður. En við verðum að taka okkur á og bæta ráð okkar! Strax! Það mætti t.d. stórefla skóg- rækt í landinu sem og almennings- samgöngur! Allir eiga rétt á að lifa í hollu og heilbrigðu umhverfi! Rétturinn að lifa í heilbrigðu umhverfi Eftir Guðjón Jensson »Mannréttindi eru margvísleg. Ein af þeim er rétturinn að lifa í heilbrigðu umhverfi. Guðjón Jensson Höfundur er leiðsögumaður og eldri borgari búsettur í Mosfellsbæ. arnartangi43@gmail.com Ég tel óráð að stefn- ir í aðskilnað íslenska ríkisins og þjóðkirkju þess, jafnvel þótt ég sé kominn úr þjóðkirkj- unni í Ásatrúarfélagið fyrir rúmum áratug. Það er nefnilega auð- veldara að brjóta niður rótgróna samstöðu en að byggja hana upp og fara verður sér því hægar í því, líkt og þekkist við einkavæðingu ríkisútvarps, skóla, sjúkrahúsa og örorkuþjónustu. Sem mannfræðingur tel ég að trúarkenndin sé eitt af einkennum nútímamanntegundarinnar, sem hann hefur þróað með sér sem stuðningstæki til að takast á við um- hverfi sitt (koma í stað rýrnandi eðl- ishvata sinna frá apa- og spendýra- fortíðinni. Önnur dæmi um slíka uppbótarþróun eru smekkur fyrir hið listræna og hið fræðilega). Öryggistilfinning er ein meginfor- senda þróaðs trúarlífs og hefur því farið vel á að íslenska ríkisvaldið hafi gætt þess að styðja við stærsta trúarsöfnuð þegna sinna um aldir. Flestir hafa líklega kynnst starfi minni safnaða þar sem safnaðaraf- koman er borin uppi af peningaframlagi safnaðarmeðlima. Þar grillir í samkeppnis- anda sem er síður fall- inn til að skapa þann innri frið og öryggi sem við þekkjum flest frá þjóðkirkjunni. Mér hef- ur jafnvel áfram fundist gott að upplifa óbeinan innblástur í guðsþjón- ustum hennar í starfi mínu á elliheimili (og hafa þar allir verið umburðarlyndir gagnvart þeirri slagsíðu minni að vera nú félagi í Ásatrúarfélaginu!). Mér sýnist vel til fundið að árétta þessa kennd mína með broti úr heiðnu ljóði mínu sem heitir: Dísir ræða um Appólon. Þar læt ég forn- grískar skógardísir ræða um ein- semd sína yfir fjarveru síns Appó- lons, en finna líka til sams konar vöntunar er þær laumast í kristna messu. (Mér er nú sérlega skylt að leiða þannig saman ljóðlist og trú, með því ég hef nýlega verið skipaður Lárviðarskáld Íslands, til lífstíðar!) Þar yrki ég m.a. í eftirfarandi brotum: Þetta var allt öðruvísi hjá langömmu, sem dansaði í hringdansi með Appóloni: lýran hans var þá full af galsa án þess heilagleikinn væri þá fjarri! Og raunar kom svo annar sálmur sem var dálítið dapurlegri; líkt og þér finnst um Appólon núna, er hann hefur verið svo lengi fjarri! Gegn aðskilnaði ríkis og kirkju Eftir Tryggva V. Líndal Tryggvi V. Líndal » Tel ég að trúar- kenndin sé eitt af einkennum nútíma- manntegundarinnar sem hann hefur þróað með sér sem stuðnings- tæki til að takast á við umhverfi sitt. Höfundur er skáld og menningar- mannfræðingur. Atvinna

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.