Morgunblaðið - 11.12.2019, Page 20

Morgunblaðið - 11.12.2019, Page 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. DESEMBER 2019 ✝ Guðrún KatrínBrandsdóttir fæddist í Reykjavík 15. apríl 1957. Hún lést á Landspítalan- um Fossvogi hinn 25. nóvember 2019. Foreldrar henn- ar voru hjónin Sig- urrós Einarsdóttir húsmóðir, f. 12. apríl 1918, d. 6. mars 2002, og Brandur Jónsson skólastjóri Heyrnleysingjaskólans, f. 21. nóvember 1911, d. 12. sept- ember 1982. Systur Guðrúnar eru Anna Guðný, f. 18. ágúst 1944, d. 24. febrúar 2011, og Margrét, f. 13. janúar 1949. Guðrún giftist 29. september 1978 Herði Þór Hafsteinssyni 1984, sambýliskona hans er Björg Inga Erlendsdóttir, sonur þeirra er Aron Þór, f. 2016. 3) Anna Rósa, f. 24. janúar 1986, sambýlismaður hennar er Hörð- ur Óli Níelsson, dóttir þeirra er Emma Katrín, f. 2017. Synir Önnu Rósu og Pálma Snæs Magnússonar eru Anton Snær, f. 2008, Magnús Darri, f. 2011, og Styrmir Þór, f. 2013. Guðrún ólst upp í Heyrnleys- ingjaskólanum í Stakkholti þar sem faðir hennar var skóla- stjóri, þar bjuggu þau þar til Guðrún var 11 ára og þá flutti fjölskyldan á Háaleitisbraut. Guðrún stundaði fyrst nám við Austurbæjarskóla og lauk grunnskólaprófi frá Álftamýr- arskóla. Guðrún hóf snemma störf í þágu barna og fatlaðra. Lengst af starfaði hún sem stuðnings- fulltrúi við Öskjuhlíðarskóla og í búsetukjarna í Víðihlíð í Reykja- vík. Útför Guðrúnar fer fram frá Grafarvogskirkju í dag, 11. des- ember 2019, klukkan 13. stýrimanni, f. 20. apríl 1954. For- eldrar hans voru Guðrún Sigríður Þorsteinsdóttir, f. 28. desember 1920, d. 20. janúar 2014, og Hafsteinn Auð- unsson, f. 29. sept- ember 1908, d. 5. apríl 2002. Börn Guðrúnar og Harðar eru: 1) Hafsteinn Þór, f. 21. júní 1978, sambýliskona hans er Kristín Hallgrímsdóttir. Sonur Haf- steins og Hlínar Ólafsdóttur er Hörður Þór, f. 2000, og dætur Hafsteins og Kristínar eru Ísa- bella Ósk, f. 2016, og Hafdís Ósk, f. 2018. Börn Kristínar eru Jakob Jóhannes og Guðný Ósk. 2) Hinrik Þór, f. 23. nóvember Elsku Guðrún. Þú gengin ert hugglöð á frelsarans fund og fagnar með útvaldra skara, þar gleðin er eilíf, þar grær sérhver und. Hve gott og sælt við hinn hinsta blund í útbreiddan faðm Guðs að fara. Nú kveðja þig vinir með klökkva og þrá því komin er skilnaðarstundin. Hve indælt það verður þig aftur að sjá í alsælu og fögnuði himnum á, er sofnum vér síðasta blundinn. (Hugrún) Þakka þér, mín kæra mág- kona, allar góðar stundir öll samferðarár okkar. Við Garðar sendum Herði og fjölskyldu þeirra innilegar sam- úðarkveðjur. Erla. Smitandi hlátur, gleði og húmor er það fyrsta sem kemur upp í huga okkar við fráfall elskulegrar vinkonu okkar Guð- rúnar. Nú er komið að kveðjustund. Margs er að minnast og sakna eftir 50 ára vináttu og saumaklúbb í yfir 40 ár sem heitir því skemmtilega nafni „Hraðir kjammar“, maður einn- ar okkar var á því að þetta nafn færi okkur best því við tölum mikið, hver í kapp við aðra, hlæjum mikið og borðum saumaklúbbsbrauðið og hnall- þórurnar en lítið fer fyrir hann- yrðum. Guðrún var skemmtileg kona og alltaf hrein og bein og átti ótrúlegustu svör við öllu. Það eru ófáir klúbbarnir sem setið var langt fram eftir nóttu, talað út í eitt og mikið hlegið, ásamt þeirri góðu hefð að hafa „start og slut“ sem þýddi start að hausti og slut að vori. Okkur leiddist aldrei í návist Guðrún- ar. Guðrún var alin upp í Heyrn- leysingjaskólanum þar sem fað- ir hennar Brandur Jónsson var skólastjóri svo táknmál var henni tamt, fannst okkur gaman að fylgjast með henni því hún átti það til að bregða því fyrir sig, jafnvel syngja fyrir okkur á táknmáli og reyndi þannig að kenna okkur nokkur tákn, sem okkur gekk misvel að læra. Í gegnum veikindi undanfarið hélt Guðrún alltaf í húmorinn og síðasti „klúbbur“ var skemmtilegur og enn reyndi hún að kenna okkur örlítið táknmál, var hún staðráðin í að halda þann næsta og hefur örugglega ekki ætlað að gefast upp við að kenna okkur nokkur tákn. Það er sárt að kveðja vini sína í blóma lífsins, vinkona okkar, Auður, kvaddi okkur 2012 og var það okkur öllum erfitt og mikill missir. Í huga okkar sjáum við þær saman í sumarlandinu halda í hefðir okkar, hlæja saman, taka start og svo slut. Við munum sakna gleðinnar, húmorsins og smitandi hláturs- ins. Elsku Guðrún okkar, takk fyrir vináttuna. Elsku Hörður, Hafsteinn, Hinrik, Anna Rósa og fjölskyld- ur, megi Guð styrkja ykkur í sorginni. Ragnheiður, Sigríður (Didda) og Hulda. Guðrún Katrín Brandsdóttir ✝ María Jónas-dóttir fæddist 18. apríl 1929 á Þur- íðarstöðum, Val- þjófsstaðarsókn í Norður-Múlasýslu. Hún lést á Landspít- alanum við Hring- braut 30. nóvember 2019. Foreldrar hennar voru hjónin Jónas Þorsteinsson, bóndi á Þuríðarstöðum, f. 10. maí 1898, d. 11. maí 1968, og Soffía Ágústsdóttir húsfreyja, f. 8. júlí 1906, d. 21. júní 1944. María var önnur í röð 12 systkina. Systkini Maríu: Ágústa Vil- helmína, f. 9. apríl 1927, d. 31. jan. 1999; Þórhildur Kristbjörg, f. 18. september 1930; Þor- steinn, f. 11. apríl 1932, d. 18. október 2011; Hjalti, f. 12. des- ember 1933, d. 19. september 2013; Jón Þór, f. 5. maí 1935; Skúli, f. 21. júní 1936; Bergljót, f. 24. september 1937, d. 12. apríl 1999; Benedikt, f. 7. ágúst og barnabarnabarnabörn tvö: Birta Rós Blanco, f. 18. júní 1997; Kristófer Emil Blanco, f. 27.janúar 1999; Aþena Lily Lis- seman, f. 2. janúar 2005; Emma Lovísa Gunnarsdóttir, f. 15. maí 2009; Kristófer Bragi Hauksson, f. 11. janúar 2011; Elmar Örn Kristinsson, f. 4. janúar 2012; Auður Sunna Gunnarsdóttir, f. 9. janúar 2013; Atlas Máni Hafsteinsson, f. 1. júlí 2016, d. 1. júlí 2016; Sebastian Skov, f. 2. ágúst 2016; Aría Rós Hafsteinsdóttir, f. 24. júní 2017; Anastasía Líf Sigurmundsdóttir Blanco, f. 19. janúar 2016, og Írena Ósk Kristinsdóttir Blanco, f. 15. nóvember 2017. María starfaði lengst af við umönnun á Grensási og á Heilsuverndarstöðinni þar til hún settist í helgan stein, en hún hélt áfram að sinna sjálf- boðavinnu fyrir Rauða krossinn á meðan hún hafði heilsu til. María bjó í þjónustuíbúð fyrir aldraða í Seljahlíð þegar hún lést. María verður jarðsungin frá Seljakirkju í dag, 11. desember 2019, klukkan 15. 1939; Ásgeir, f. 29. ágúst 1941; Unnur Guðríður, f. 24. mars 1943, og Soffía, f. 21. júní 1944. Fyrrverandi eiginmaður Maríu var Ólafur Indr- iðason, f. 4. októ- ber 1921, d. 16. október 1986. Börn Maríu og Ólafs: 1) Indriði Páll, f. 6. des- ember 1951, d. 25. september 2008. 2) Soffía Guðbjört, f. 13. júní 1956. 3) Jónas, f. 1. maí 1963. Barnabörn Maríu eru sex: Karlotta Ósk Jónsdóttir, f. 14. janúar 1979; Kristinn Jónsson, f. 4. janúar 1987; Kristín Hildur Jónsdóttir, f. 3. ágúst 1989, Lone-Maria Jónasdóttir Jensen, f. 2. maí 1991; Katrín Jónsdótt- ir, f. 23. janúar 1996; Garðar Eyland Jónasson, f. 4. nóv- ember 2004. Þá eru barnabarnabörnin tíu Elsku amma, þegar ég kafa djúpt inn á við þá er sú tilfinning sem ég finn fyrir núna helst sökn- uður, en líka þakklæti fyrir það að þú hafir fengið að fara á þenn- an friðsæla hátt, södd þinna líf- daga. Ég geri mér í hugarlund að innst inni hafir þú verið spennt fyrir því hverjir tækju á móti þér hinumegin. Ég vildi að stundirn- ar okkar saman hefðu verið fleiri og þá sérstaklega fyrir hann Elmar son minn sem var einmitt að sýna mér myndina sem hann tók af þér í síðustu heimsókn og talaði um hversu mikið hann elsk- aði þig þegar ég sagði honum frá því að þú værir farin. Í mínum augum vannst þú líf- ið, og vona ég innilega að þú hafir veitt mér og mínum í arf þessa seiglu sem þú bjóst yfir andlega og líkamlega og aldrei vantaði upp á að þú ljómaðir upp að sjá okkur börnin þín, barnabörn og barnabarnabörn og gafst okkur öllum þá dýrmætu gjöf sem nær- vera þín var og er því í mínum augum ert þú ekkert að fara að yfirgefa okkur heldur munt þú gefa okkur styrk með nærveru þinni áfram þar til yfir lýkur hjá okkur. Ég elska þig, amma. Þinn Kristinn. Ég tek upp tólið og stimpla símanúmerið hennar ömmu Mæju inn. Síminn hringir en eng- inn svarar, það rennur upp fyrir mér að amma mun aldrei aftur svara símanum, elsku besta amma mín er farin frá mér. Það er erfitt að trúa því að ég muni aldrei geta hringt í þig aftur og heyrt rödd þína elsku amma mín. Þegar ég hugsa til baka rifjast upp fyrir mér endalaust af minn- ingum sem fylla hjarta mitt kær- leika, ást og stolti. Stolti yfir því hversu góðhjörtuð og yndisleg amma mín var. Ég er svo þakklát fyrir þann tíma sem við áttum saman en á sama tíma syrgi ég þann tíma sem við munum ekki fá með þér. Ég er ævinlega þakklát fyrir að hafa náð að koma til Íslands og kveðja þig elsku amma mín. Söknuðurinn og sorgin er það mikil að orð fá því ekki lýst en á sama tíma er ég þakklát fyrir að þú hafir fengið að fara héðan á friðsælan hátt alveg eins og þú talaðir alltaf um. Þú hefur sjálf misst marga á þinni lífsleið, unga sem aldna. Þess vegna veit ég að þín biðu margir hinum megin sem tóku á móti þér opnum örm- um. Hvíldu í friði, elsku amma Mæja, þín er sárt saknað. Ég elska þig, þín Kristín Hildur. María Jónasdóttir Vilborg var stór- brotin kona. Hún var með stórt og gjöfult hjarta. Hún hafði góða nærveru, breitt bros og smitandi hlátur. Hún var litrík og heillandi kona. Vilborg elskaði fjölskylduna sína og var yfirmáta stolt af börnum sínum og eiginmanni og að sjálf- Vilborg Jónsdóttir ✝ Vilborg Jóns-dóttir fæddist 27. maí 1964. Hún lést 22. nóvember 2019. Útför Vil- borgar var gerð 4. desember 2019. sögðu litla barna- barninu sínu. Í skólahljómsveitinni átti hún svo auka- fjölskyldu sem stækkaði með hverju starfsárinu. Hún náði einstak- lega vel til barnanna sem hún leiðbeindi og sýndi þeim áhuga og hjartahlýju. Í þeim eignaðist hún vini til lífstíðar. Vilborg brann af ástríðu fyrir starfinu sínu sem var í hennar augum ekki bara starf heldur lífs- máti. Hún lagði sig í líma við að halda uppi kraftmiklu og skemmtilegu starfi fyrir börnin sem hún starfaði með. Hún var einstaklega metnaðarfull í þeim verkefnum sem hún tók að sér og vildi að gleðin stæði upp úr í starfinu hjá börnunum. Hún var réttsýn, nákvæm og sannkallaður dugnaðarforkur í öllu sem hún tók sér fyrir hendur. Vilborg var hlýr, hvetjandi og skilningsríkur yfirmaður sem alltaf var hægt að leita til ef á þurfti að halda. Hennar verður sárt saknað og mun hún eiga vísan stað í hjört- um okkar. Fyrir hönd samkennara í Skólahljómsveit Austurbæjar vil ég færa fjölskyldu Vilborgar inni- legar samúðarkveðjur. Rósa Guðrún Sveinsdóttir. Frímann & hálfdán Útfararþjónusta Frímann 897 2468 Hálfdán 898 5765 Ólöf 898 3075 Sími: 565 9775 www.uth.is uth@uth.is Cadillac 2017 Við þökkum kærleik, hlýhug og vináttu ykkar við andlát og útför elsku pabba okkar, tengdapabba og afa, HAUKS PÁLMASONAR, fyrrverandi aðstoðarforstjóra Orkuveitu Reykjavíkur, áður Rafmagnsveitu Reykjavíkur, sem lést 24. nóvember. Starfsfólki Droplaugarstaða færum við bestu þakkir fyrir umönnun og elskulegheit. Helga Hauksdóttir Hafþór Þorleifsson Urður Hafþórsdóttir Jóhannes Hauksson Inga Björg Hjaltadóttir Hringur Ásgeir Sigurðarson Ívar Sigurðsson Hildur Ylfa Jóhannesdóttir Haukur Oddur Jóhannesson Anna Soffía Hauksdóttir Haukur Óskar Þorgeirsson Auður Tinna Aðalbjarnardóttir Margrét Aðalheiður Önnu Þorgeirsd., Friðgeir Ingi Jónsson Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SÆVAR BRYNJÓLFSSON skipstjóri, Pósthússtræti 3, Keflavík, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja sunnudaginn 1. desember. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju mánudaginn 16. desember klukkan 13. Ingibjörg Hafliðadóttir Bryndís Sævarsdóttir Einar Þ. Magnússon Hafliði Sævarsson Jenný Lovísa Þorsteinsdóttir Brynjólfur Ægir Sævarsson Áslaug Ármannsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, HILMIR ÞORVARÐARSON, Engjasmára 7, Kópavogi, lést á líknardeild Landspítalans laugardaginn 7. desember. Útförin fer fram frá Digraneskirkju miðvikudaginn 18. desember klukkan 13. Ragnhildur Kjartansdóttir Kjartan Hilmisson Elísabet Stefánsdóttir Jón Bergur Hilmisson Sigríður Árný Júlíusdóttir og barnabörn Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, fósturfaðir, tengdafaðir og afi, GYLFI HARALDSSON heimilislæknir, lést á Hjúkrunarheimilinu Ísafold 2. desember. Útför hans fer fram frá Neskirkju fimmtudaginn 12. desember klukkan 15. Rut Meldal Valtýsdóttir Þröstur Freyr Gylfason Una Björk Ómarsdóttir Guðbjört Gylfadóttir Bjarni Kristinn Torfason Hreiðar Ingi Þorsteinsson Nue Milici Rúnar Már Þorsteinsson Sigurbjörg Rutardóttir Björgvin Þorsteinsson María Eugenia Sambiagio Þorri, Fróði, Skírnir, Ísabella Laufey, Benedikt Freyr, Sigrún Rut, Dagur Hrafn, Anna Leonor, Alex Þorsteinn, Alara Liv

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.