Morgunblaðið - 11.12.2019, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 11.12.2019, Qupperneq 24
24 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. DESEMBER 2019 60 ára Hafsteinn er Reykvíkingur og ólst upp Mosgerði í Smá- íbúðahverfinu og býr núna þar skammt frá. Hann er landfræðingur frá Háskólanum í New- castle upon Tyne og er framhaldsskólakennari í Mennta- skólanum við Sund og kennir hagfræði og landafræði. Maki: Sigurrós Erlingsdóttir, f. 1956, ís- lenskufræðingur og kennir íslensku í MS. Börn: Kristrún, f. 1989 og hún á tvö börn. Stjúpbörn Hafsteins eru þrjú. Foreldrar: Óskar Sumarliðason, f. 1920, d. 1971, smiður, og Jóhanna Margrét Þorgeirsdóttir, f. 1926, fv. skólaliði. Hún er enn búsett í Mosgerði. Hafsteinnn Óskarsson Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Fólk þarfnast sköpunarkrafts eins og ástar. Safnaðu upplýsingum, spurðu fólk álits og skoðaðu fjármögnunarleiðir svo draumur þinn verði að veruleika. 20. apríl - 20. maí  Naut Þú hefur ákveðnar hugmyndir um það hvernig þú getur bætt heilsu þína, en það er alveg í lagi að fá álit læknis líka. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Taktu afleiðingum gjörða þinna og mundu að til þess að ná árangri þarftu að leggja þitt af mörkum. Þú hefur lengi velt fyrir þér að sinna sjálfboðaliðastarfi á ein- hvern hátt, láttu á það reyna. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þú verður fyrir óvæntri heppni, og það er í þínum höndum að spila sem best úr henni. Eitt lítið bros getur lýst upp dag- inn hjá einhverjum sem á erfitt. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þegar syrtir í álinn þá sést hverjir eru sannir vinir. Gerðu þitt besta og þá getur þú gengið sátt/ur frá borði. Vertu heima í kvöld og hvíldu þig. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Gættu þess að láta ekki hugann hvarfla um of. Dagdraumar eru góðir en ekki dvelja við þá það lengi að þeir trufli þitt daglega líf. 23. sept. - 22. okt.  Vog Það eru einhver átök á vinnustaðnum. Gættu þess að segja ekki neitt sem þú gæt- ir séð eftir síðar. Frestaðu skemmtunum á meðan þú vinnur upp orku og andlegt jafn- vægi. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Vilji þinn til að sjá alla mögu- leika í ákveðinni stöðu er einn þinn mesti kostur. Taktu þér tak og farðu í göngutúr eða í sund. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þú þarft að ganga hreint til verks í sambandsmálum. Stuttar vinnuferð- ir eru líklegar snemma á næsta ári. 22. des. - 19. janúar Steingeit Ruglingur gærdagsins er liðinn hjá, í dag muntu afkasta miklu. Slökun er mikilvæg. Hvíldu í núinu. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Forðastu mikilvægar ákvarðanir í dag. Hugmyndirnar sem þú færð virðast kannski yfirgengilegar, en ef þú nýtir þær batnar líf þitt svo sannarlega. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þú kannt að gæða gamla hluti nýju lífi og gætir gert þér mat úr því með því að kaupa gamla hluti, gera þá upp og selja svo. hreyfingunni og fékk víðtæka þjálfun þar og það er alltaf hollt að muna heitin sem hreyfingin er 20-25 á Íslandi. Hann á Protein Save ásamt Haraldi Guðmunds- syni. „Núna vinnum við í því að fjarlægja beinagarð úr bolfiski án þess að skera hann úr, heldur höf- um við hannað kerfi þar sem beinagarðurinn er fjarlægður, það er beinhreinsaður, þannig að fisk- urinn nýtist eins og laxinn er nýtt- ur. Hvernig væri laxiðnaður stadd- ur ef fjarlægja ætti beinin úr laxinum með V-Cut? Þetta er eitt stærsta framfaramál fiskiðnaðar- ins í heiminum, en mjög stór fram- leiðandi erlendis er búinn að óska þess að við breytum þeirra stóra fyrirtæki og færum það inn í nú- tímann. Framtíðin er björt og mikið að gera á spennandi vett- vangi matvælaframleiðslu í heim- inum.“ Jóhannes er nú á leiðinni til Grímseyjar, en hann hafði heyrt að erfitt væri hjá þeim eftir að missa kvóta frá sér, þetta varð hann að skoða og bjóða fram sína aðstoð. „Eitt sinn skáti ávallt skáti“ er óhætt að segja um Jóhannes. „Ég tók öll próf í skáta- J óhannes Arason fæddist 11. desember 1944 á Akureyri og ólst þar upp til sjö ára aldurs. Hann flytur þá suður með fjöl- skyldu og þau búa síðan í Neðstu- tröð 2 í Kópavogi. Jóhannes dvaldi mikið í Borgarnesi sem barn, faðir hans og Loftur Einarsson móður- bróðir Jóhannesar stofnuðu nagla- verksmiðjuna Vírnet í Borgarnesi 1956 og áttu hana ásamt Einari Þór Arasyni. Jóhannes gekk í Grunnskóla Ak- ureyrar í einn vetur, Kópavogs- skóla og fór síðan í Flensborg- arskóla og síðan til Þýskalands að nema þýsku. Jóhannes var í hópi 12 Íslendinga sem valdir voru úr stórum hóp umsækjenda til að nema fullnýtingu matvæla í Cuxhaven í Þýskalandi. Jóhannes lauk námi á tveimur árum, en sótti um að fá að bæta við þremur mán- uðum og nema þá í verksmiðju, sem framleiddi niðursoðna þorsk- lifur, en hann hafði grun um að það væri hráefni sem þyrfti að nýta til annars en í lýsi. Þetta reyndist rétt, því í dag eru fram- leiddar 80 milljónir dósa af niður- soðinni lifur á Íslandi, það er 14- földun á verðmætum með sama magn lifrar í lýsisframleiðslu. „Þegar ég kom heim setti ég strax upp niðursuðuverksmiðju í Garð- inum og hef síðan sett flestar nið- ursuðuverksmiðjurnar hérna upp. Þetta var mikið þjóðhagslegt mál.“ Jóhannes starfaði sem aðstoðar- maður Eggerts G. Þorsteinssonar sjávarútvegsráðherra, en fór svo í rekstur og starfaði út um allan heim við að auka nýtingu og fersk- leika í sjávarafurðum. Hann að- stoðaði krónprinsinn á Tonga við hans fyrirtæki, sem framleiddi Red Snapper fyrir Japansmarkað, fékk hann það ríkulega launað. Jóhannes og fjölskylda bjuggu á Nýja-Sjálandi í átta ár og starf- rækti hann þar sjávarútvegs- fyrirtæki í ráðgjöf og framleiðslu hjálparefna og þar byrjaði Natural White-ævintýrið. Jóhannes hefur verið fram- kvæmdastjóri Natural White Inc. frá 1991 og eru starfsmenn þess byggð á. Gerðu menn það þá væri betra mannlíf á Íslandi. Ég tel það líka hafa mótað mig að vera lýðveldisbarn, fæddur 1944, og hafa fengið að alast upp og vinna fyrir aldamótakynslóðina, Valtý Þorsteinsson, dr. Jakob Sigurðsson í Sjófangi, dr. Benja- mín J. Eiríksson og marga fleiri og kynnst þeirra óbilandi trú á Íslandi.“ Jóhannes var fyrsti formaður Félags íslenskra niðursuðufræð- inga, FÍFN, og gegndi því í 12 ár, hann var forseti kiwanisklúbbsins Hofs í Garði við 25 ára afmælisár klúbbsins. Hann er heiðursfélagi í KTF/Konservindustriens Tekno- logforening, í Stavanger í Noregi. Fjölskylda Fyrsta eiginkona Jóhannesar var Kristrún Guðmundsdóttir, f. 7.10. 1945, d. 1.9. 2010, gjaldkeri hjá Tollstjóra. Þau skildu. Önnur eiginkona Jóhannesar var Sigrún María Sigurðardóttir Arason, f. 28.1. 1943, d. 13.9. 2002, verslunar- eigandi, síðast búsett á Nýja- Jóhannes Arason matvælafræðingur – 75 ára Morgunblaðið/Golli Framkvæmdastjórinn Jóhannes hefur verið framkvæmdastjóri Natural White frá 1991. Björt framtíð í matvælaframleiðslu Á ferðalagi Jóhannes og Anna Kristín klappa blettatígri. 50 ára Jóhann er Akureyringur, ólst upp í Þorpinu en er fluttur á Neðri-Brekkuna. Hann er lærður smið- ur hjá SS byggir og íþróttakennari frá Laugarvatni. Hann er íþróttakennari í Verkmenntaskólanum á Akureyri og fer einnig að kenna smíðar þar eftir áramót. Maki: Helga Rún Traustadóttir, f. 1975, kennari og deildarstjóri í Giljaskóla. Börn: Kristín Aðalheiður 1999, Steindór Snær, f. 2005, og Dagbjört Lilja, f. 2007. Foreldrar: Jóhann Svan Aðalsteinsson, f. 1936, fv. verkamaður, og Hrafnhildur Gunnarsdóttir, f. 1941, fv. verkakona. Þau eru búsett á Akureyri. Jóhann Gunnar Jóhannsson Til hamingju með daginn Akureyri Aron Heiðar Haf- steinsson fæddist 7. febrúar 2019 kl. 2.56 á Akureyri. Hann var 4.106 g að þyngd og 51 cm að lengd. Foreldrar hans eru Karen Sif Stefánsdóttir og Hafsteinn Ingi Pálsson. Nýr borgari V E R T Heilsutvenna uppfyllir daglega vítamín- og steinefnaþörf Íslendinga í tveimur perlum. - því að sumt virkar betur saman Stundum þarf tvo til

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.