Morgunblaðið - 11.12.2019, Blaðsíða 26
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. DESEMBER 2019
Meistaradeild Evrópu
E-RIÐILL:
Napoli – Genk ........................................... 4:0
Salzburg – Liverpool................................ 0:2
Lokastaðan:
Liverpool 6 4 1 1 13:8 13
Napoli 6 3 3 0 11:4 12
Salzburg 6 2 1 3 16:13 7
Genk 6 0 1 5 5:20 1
Liverpool og Napoli í 16-liða úrslit,
Salzburg í Evrópudeildina.
F-RIÐILL:
Dortmund – Slavia Prag.......................... 2:1
Inter Mílanó – Barcelona ........................ 1:2
Lokastaðan:
Barcelona 6 4 2 0 9:4 14
Dortmund 6 3 1 2 8:8 10
Inter Mílanó 6 2 1 3 10:9 7
Slavia Prag 6 0 2 4 4:10 2
Barcelona og Dortmund í 16-liða úrslit,
Inter í Evrópudeildina.
G-RIÐILL:
Benfica – Zenit Pétursborg..................... 3:0
Lyon – RB Leipzig ................................... 2:2
Lokastaðan:
RB Leipzig 6 3 2 1 10:8 11
Lyon 6 2 2 2 9:8 8
Benfica 6 2 1 3 10:11 7
Zenit 6 2 1 3 7:9 7
RB Leipzig og Lyon í 16-liða úrslit, Ben-
fica í Evrópudeildina.
H-RIÐILL:
Ajax – Valencia ......................................... 0:1
Chelsea – Lille .......................................... 2:1
Lokastaðan:
Valencia 6 3 2 1 9:7 11
Chelsea 6 3 2 1 11:9 11
Ajax 6 3 1 2 12:6 10
Lille 6 0 1 5 4:14 1
Valencia og Chelsea í 16-liða úrslit, Ajax í
Evrópudeildina.
England
B-deild:
Bristol City – Millwall ............................. 1:2
Jón Daði Böðvarsson lék fyrstu 76 mín-
úturnar með Millwall.
Charlton – Huddersfield.......................... 0:1
Leeds – Hull.............................................. 2:0
Nottingham F. – Middlesbrough............ 1:1
Preston – Fulham..................................... 2:1
Stoke – Luton ........................................... 3:0
Staðan:
Leeds 21 14 4 3 32:10 46
WBA 20 13 6 1 41:20 45
Fulham 21 10 5 6 33:23 35
Bristol City 21 9 8 4 34:30 35
Nottingham F. 20 9 7 4 27:17 34
Preston 21 10 4 7 33:26 34
Sheffield Wed. 20 9 5 6 28:19 32
Cardiff 20 8 7 5 30:27 31
Brentford 20 9 3 8 30:16 30
Blackburn 20 9 3 8 27:27 30
Swansea 20 8 6 6 25:25 30
Millwall 21 7 9 5 27:28 30
Hull 21 8 5 8 32:29 29
Birmingham 20 8 4 8 22:26 28
QPR 20 8 4 8 30:37 28
Derby 20 6 7 7 20:26 25
Charlton 21 6 5 10 26:28 23
Reading 19 6 3 10 24:26 21
Huddersfield 21 5 6 10 23:33 21
Middlesbrough 21 4 9 8 18:28 21
Luton 21 6 2 13 27:44 20
Stoke 21 5 2 14 24:35 17
Wigan 20 4 4 12 18:33 16
Barnsley 20 2 6 12 23:41 12
KNATTSPYRNA
KÖRFUKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild kvenna, Dominos-deildin:
Mustad-höllin: Grindavík – KR........... 18.15
Blue-höllin: Keflavík – Skallagrímur.. 19.15
Origo-höllin: Valur – Breiðablik.......... 19.15
Ásvellir: Haukar – Snæfell .................. 19.15
1. deild kvenna:
Mustad-höllin: Grindavík b – Fjölnir . 20.30
HANDKNATTLEIKUR
1. deild kvenna, Grill 66-deildin:
Hertz-höllin: Grótta – ÍBV .................. 19.30
Í KVÖLD!
HANDBOLTI
HM kvenna í Japan
Milliriðill 2:
Rússland – Svartfjallaland .................. 35:28
Japan – Spánn....................................... 31:33
Svíþjóð – Rúmenía................................ 34:22
Rússland 8, Spánn 7, Svíþjóð 5, Svart-
fjallaland 4, Japan 0, Rúmenía 0.
Í lokaumferðinni í dag mætast Spánn –
Rússland, Rúmenía – Japan og Svartfjalla-
land – Svíþjóð.
Svíþjóð
Sävehof – Varberg .............................. 27:25
Ágúst Elí Björgvinsson varði 2 skot í
marki Sävehof.
Svíþjóð
Jämtland – Borås................................. 81:99
Elvar Már Friðriksson skoraði 25 stig,
tók 3 fráköst og gaf 15 stoðsendingar fyrir
Borås á 32 mínútum.
KÖRFUBOLTI
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Talsverðar líkur eru á Norðurlanda-
slag í undanúrslitunum á heims-
meistaramóti kvenna í handknatt-
leik eftir stórsigur Svía á
Rúmenum, 34:22, í milliriðli tvö í
Japan í gær.
Svíar styrktu með þessum stóra
sigri stöðu sína í baráttunni við
Spánverja um sæti í undanúrslit-
unum en fyrir lokaumferðina í dag
eru Spánverjar með sjö stig og Sví-
ar fimm. Vegna jafnteflis í viðureign
liðanna á dögunum mun markatalan
ráða úrslitum ef þau enda jöfn að
stigum.
Olivia Mellegård skoraði sjö mörk
fyrir Svía og Mikaela Massing fimm.
Rússar eru óstöðvandi
Rússnesku konurnar eru þegar
komnar í undanúrslitin eftir sann-
færandi sigur á Svartfellingum í
gær, 35:28. Rússar hafa unnið alla
leiki sína á HM, eitt liða, og mæta
Spánverjum í dag. Þar verður efsta
sæti riðilsins í húfi, en um leið er allt
undir hjá spænska liðinu sem þarf á
stigi að halda.
Tapi Spánverjar fyrir Rússum
gætu Svíar hirt af þeim annað sætið
með fimm marka sigri á Svartfell-
ingum. Leikur Rússa og Spánverja
fer fram á undan þannig að sænsku
konurnar vita nákvæmlega hvað
þær þurfa að gera þegar flautað
verður til þeirra leiks gegn Svart-
fjallalandi klukkan 11.30 að íslensk-
um tíma.
Ef Svíþjóð nær öðru sæti riðilsins
gæti mótherjinn verið Noregur,
undir stjórn Þóris Hergeirssonar,
en norska liðið er efst í hinum milli-
riðlinum fyrir lokaumferðina þar,
sem einnig er leikin í dag. Noregur
mætir þá Þýskalandi í uppgjöri
efstu liðanna og nægir jafntefli til að
komast áfram og vinna riðilinn.
Grannaslagur í
undanúrslitum?
Svíþjóð og Noregur gætu mæst
AFP
Markahæst Olivia Mellegård skorar eitt af sjö mörkum sínum fyrir Svía
gegn Rúmenum í leik þjóðanna í Kumamoto í gær.
Körfuboltakonan unga Ólöf Rún
Óladóttir, leikmaður Grindavíkur,
sleit krossband á æfingu með liðinu
á dögunum. Karfan.is greindi frá.
Ólöf, sem er fædd árið 2001, hefur
verið með betri leikmönnum Grinda-
víkur í Dominos-deildinni á leiktíð-
inni. Hefur hún skorað 12 stig, tekið
4 fráköst og gefið 2 stoðsendingar
að meðaltali í níu leikjum. Hún er í
þrettánda sæti íslenskra leikmanna í
framlagspunktum á leiktíðinni og er
því um mikið áfall fyrir Grindavík að
ræða. Liðið er án stiga í botnsæti
deildarinnar.
Ólöf sleit kross-
band á æfingu
Ljósmynd/FIBA
Efnileg Ólöf Rún Óladóttir í leik
með U18 ára landsliðinu.
Jón Daði Böðvarsson var í byrj-
unarliði Millwall sem hafði betur
gegn Bristol City í ensku B-
deildinni í fótbolta í gærkvöldi, 2:1.
Selfyssingurinn lék fyrstu 76 mín-
úturnar, en hann var vinstra megin
í þriggja manna sóknarlínu.
Millwall hefur vegnað vel eftir að
Gary Rowett tók við liðinu af Neil
Harris í október og hefur það að-
eins tapað einum af níu leikjum
undir stjórn nýja stjórans. Millwall
er í 12. sæti deildarinnar, aðeins
fjórum stigum frá umspilssæti
deildarinnar.
Nýtt líf með
nýjum stjóra
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Sigling Jón Daði Böðvarsson og
félagar í Millwall eru á siglingu.
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
Liverpool á enn möguleika á að
verja Evrópumeistaratitil sinn í fót-
bolta eftir 2:0-útisigur á RB Salz-
burg frá Austurríki í lokaumferðinni
í riðlakeppni Meistaradeildar Evr-
ópu í gærkvöldi. Salzburg mætti af
miklum krafti í leikinn og tók það
ríkjandi meistarana eilítinn tíma að
þreifa sig áfram. Eftir því sem leið á
leikinn náði Liverpool betri tökum
og hefði sigurinn getað orðið mun
stærri þegar uppi var staðið.
Naby Keita og Mo Salah skoruðu
mörkin á 57. og 58. mínútu og var
markið hjá Salah sérlega glæsilegt,
en hann skoraði úr ótrúlega þröngu
færi. Salah fór illa með nokkur færi í
leiknum en nýtti síðan það erfiðasta.
Liverpool gerði vel á báðum end-
um vallarins, en Norðmaðurinn Er-
ling Håland fékk úr litlu að moða í
framlínu Salzburg og missti því af
tækifærinu til að skora í hverjum
einasta leik í riðlakeppninni. Napoli
fylgir Liverpool upp úr riðlinum og
Håland og félagar fara í Evrópu-
deildina.
Táningur fór illa með Inter
Chelsea er sömuleiðis komið
áfram í 16-liða úrslit eftir 2:1-
heimasigur á Lille. Sigurinn var
kærkominn, enda hefur Chelsea að-
eins unnið einn af síðustu fimm í öll-
um keppnum fyrir leikinn. Flestir
áttu von á að Ajax, sem fór í undan-
úrslit á síðustu leiktíð, myndi fylgja
Chelsea úr riðlinum. Sú varð hins
vegar ekki raunin því Valencia
tryggði sér toppsæti H-riðils með
1:0-útisigri á hollenska liðinu.
Fleiri stórlið eru úr leik því Inter
tapaði 1:2 á heimavelli fyrir hálf-
gerðu varaliði Barcelona, en
spænska liðið hafði þegar tryggt sér
sæti í 16-liða úrslitunum. Börsungar
hvíldu leikmenn eins og Lionel
Messi, Gerard Pique og Sergio Bus-
quets, en það kom ekki að sök því
hinn 17 ára og 40 daga gamli Ansu
Fati skoraði sigurmarkið undir lok-
in. Dortmund vann á sama tíma 2:1-
sigur á Slavía Prag og tryggði sér
sæti í 16-liða úrslitum. Þá komust
Leipzig og Lyon upp úr G-riðli en
Benfica fer í Evrópudeildina.
Titilvörn Liverpool lifir áfram
Liverpool tryggði sér toppsæti E-riðils með sigri í Salzburg Salah nýtti erf-
iðasta færið Chelsea naumlega áfram Inter og Ajax fara í Evrópudeildina
AFP
Þrengsli Mo Salah skorar annað mark Liverpool úr afar þröngu færi og skýtur liðinu áfram í 16-liða úrslit.