Morgunblaðið - 11.12.2019, Page 27

Morgunblaðið - 11.12.2019, Page 27
ÍÞRÓTTIR 27 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. DESEMBER 2019  Didier Deschamps hefur fram- lengt samning sinn sem þjálfari heimsmeistaraliðs Frakka í knatt- spyrnu karla til ársins 2022. Hann hefur verið með liðið frá 2012 og verður því kominn með áratug í starfi þegar samningurinn rennur út. Deschamps, sem er 51 árs og varð sjálfur heims- og Evrópumeistari með Frökkum árin 1998 og 2000, hefur farið með liðið í úrslitaleiki tveggja síðustu stórmóta. Frakkar töpuðu fyrir Portúgölum í úrslitaleik EM 2016 en unnu Króata í úrslitaleik HM 2018.  Knattspyrnuþjálfarinn Guðjón Þórðarson hefur fundað með fær- eyska knattspyrnusambandinu, sem leitar nú að nýjum landsliðsþjálfara fyrir karlalið sitt. Fótbolti.net greindi frá í gær. Færeyingar stefna að því að ráða nýjan landsliðsþjálfara snemma á næsta ári og er Guðjón einn þeirra sem koma til greina í starfið. Guðjón gerði góða hluti með NSÍ í Færeyjum á síðasta tímabili, en hann tók óvænt við liðinu eftir sjö ár án þjálfarastarfs.  Sindri frá Hornafirði, sem leikur í 1. deild, fær úrvalsdeildarlið Grinda- víkur í heimsókn í 8-liða úrslitum bikarkeppni karla í körfuknattleik, Geysisbikarsins, en dregið var til þeirra í gær. Norðanliðin Tindastóll og Þór frá Akureyri drógust saman, Fjölnir fær Keflavík í heimsókn og Stjarnan tekur á móti Val. Leikirnir fara fram dagana 19. og 20. janúar.  Einnig var dregið í bikarkeppni kvenna og þar gerðist það líka að eina lið 1. deildar sem eftir er í keppninni fékk heimaleik. ÍR tekur á móti Skallagrími. Bikar- og Íslands- meistarar Vals fengu heimaleik gegn Breiðabliki, Keflavík mætir KR og Haukar drógust gegn Grindavík. Þar verður einnig leikið 19. og 20. janúar.  Freyja Stígsdóttir úr Þórshamri og Aron Anh Ky Huynh úr ÍR hafa verið útnefnd karatefólk ársins 2019 af Karatesambandi Íslands. Þau unnu bæði til fjölmargra verðlauna á mót- um innanlands og erlendis á árinu.  Bandaríska knattspyrnukonan Megan Rapinoe hefur verið valin íþróttamaður ársins hjá hinu virta íþróttatímariti Sports Illustrated. Tímaritið hefur heiðrað íþróttafólk með þessum hætti frá árinu 1954. Langalgengast er að einstaklingur fái verðlaunin en þó hefur komið fyrir að lið fái nafnbótina. Í fyrra varð til dæmis Golden State Warriors fyrir valinu eftir sigur í NBA-deildinni í körfuknattleik. Rapinoe sem varð heimsmeistari í sumar er fyrsti ein- staklingurinn sem hlýtur nafnbótina fyrir afrek í knattspyrnunni. En bandaríska kvenna- landsliðið í knatt- spyrnu fékk einnig nafnbótina árið 1999 þegar liðið varð einnig heims- meistari. Rapinoe er 34 ára gömul og var valin besti leikmaður HM í sumar. Hún fékk auk þess Gull- boltann (Ballon d’Or) á dög- unum. Eitt ogannað HÖFUÐHÖGG Kristján Jónsson kris@mbl.is Lárus Helgi Ólafsson, markvörður Fram í Olísdeild karla í handknatt- leik, segist í samtali við Morg- unblaðið velta æ meira fyrir sér hvaða afleiðingar það geti haft fyrir sig að fá ítrekað skot í höfuðið á ferli sínum sem handknattleiks- maður. Keppnistímabilið er ekki hálfnað en Lárus áætlar engu að síður að hann hafi fimmtán sinnum fengið boltann í höfuðið í leikjunum til þessa. „Ég tel að ég hafi fengið um það bil fimmtán skot í höfuðið í leikjum á þessu keppnistímabili. Ég held að það sé nærri lagi. Ég hafði fengið níu skot í andlitið í fyrstu fimm til sex leikjunum. Það er oftar en venjulega, hvað sem því veldur,“ sagði Lárus þegar Morgunblaðið hafði samband við hann í gær. Lárus hafði birt færslu á Twitter þar sem hann hafði orð á þessu. Lárus veltir því fyrir sér hvort það hafi eitthvað með tækni hans sem markvarðar að gera. Hann þyki ef til vill betri að verja skot niðri held- ur en þau sem koma uppi á markið. „Ég velti því fyrir mér hvort stíll minn sem markvarðar sé þannig að ég sé meira opinn í kringum höf- uðið. Þess vegna fái ég á mig skot þar í kring en ég hef hugsað út í alls kyns atriði í tengslum við þetta.“ Ekki gjarn á að fá höfuðverk Lárus hefur enn sem komið er ekki fundið fyrir alvarlegum afleið- ingum en höfuðverkur hefur þó lát- ið á sér kræla. „Ég hef ekki fundið oft fyrir höf- uðverkjum en hef fundið fyrir ör- litlum höfuðverk síðustu tvo daga. Hvort það sé tengt þessum höf- uðhöggum veit ég hreinlega ekki. Ég er svo sem ekki gjarn á að fá höfuðverki og því gæti þetta tengst handboltanum. Ég hef hins vegar ekki misst úr æfingar eða neitt slíkt.“ Spurður um hvort hann hafi farið undir læknishendur segir Lárus svo ekki vera. „Nei og veit ekki einu sinni hvar ég ætti að láta skoða mig. Ég hef heldur ekki farið vegna þess að þetta hefur ekki haldið mér frá æf- ingum eða leikjum. Ég fór hins vegar að hugsa meira um þetta eft- ir að ég sá Kveiksþáttinn um höf- uðhögg í íþróttum. Eftir það hef ég ósjálfrátt haft meiri áhyggjur af því þegar ég fæ boltann í hausinn.“ Í umræddum þætti sagði Guðrún Ósk Maríasdóttir frá sinni reynslu en eins og fram kom í Morg- unblaðinu í október 2018 dró hún sig út úr íþróttinni vegna höf- uðáverka. Guðrún var landsliðs- markvörður í fjölda ára en er alls ekki sú eina sem hefur látið staðar numið í handboltanum vegna höf- uðáverka. Um það hefur ítrekað verið fjallað hér í blaðinu síðasta áratuginn hvað varðar íslenskt afreksfólk í bæði knattspyrnu og handknattleik. Hún er þó sennilega eini markvörðurinn og líklega þess vegna hefur það vakið athygli Lár- usar sérstaklega og ef til vill fleiri sem spila sömu stöðu. Ætti að auka refsingar? Nú er það svo í handboltanum að leikmenn fá rauða spjaldið ef þeir skjóta í höfuð markvarðar í víta- kasti, svo framarlega sem mark- vörðurinn hefur ekki hreyft sig úr stað áður en vítaskyttan lætur vaða. Lárusi finnst að ræða mætti hvort taka eigi upp slíkar refsingar ef slíkt gerist í opnum leik. Hann bendir á að ekki felist í því neinn skaði að ræða slíkt þótt fram- kvæmdin gæti orðið flókin. „Þessari refsingu er aldrei beitt í opnum leik og ég held að hún eigi bara við um vítaköst. Ég hef spurt dómara út í það og þeir segja ekk- ert vera í reglunum sem segi nokk- uð um skot í höfuð markvarðar í opnum leik. Það yrði erfitt fyrir dómara að meta ásetninginn ef refsa ætti fyrir skot í höfuðið í opn- um leik. Dómgæsla í handboltanum er erfið fyrir og maður heyrir að mörgum finnist hún vera fráhrind- andi þegar reglurnar eru flóknar. En mér finnst allt í lagi að velta þessari spurningu upp og skoða þetta nánar. Eins og í tilfelli Guð- rúnar þá geta afleiðingarnar verið alvarlegar. Það olli mér til að mynda áhyggjum þegar hún sagði að skotið sem hún fékk í höfuðið hefði alls ekki verið það fastasta sem hún hefði fengið í sig,“ út- skýrði Lárus en hann hefur ekki velt því alvarlega fyrir sér að taka sér frí frá boltanum. „Handboltinn er íþrótt sem ég dýrka og finnst fátt skemmtilegra en að spila handbolta. En ef maður er að taka mikla áhættu varðandi heilsuna fer maður ósjálfrátt að hafa áhyggjur. Maður á að sjálf- sögðu að vera með heilsuna í fyrsta sæti,“ segir Lárus Helgi. Aldrei farið út af Spurður hvort hann hafi aldrei verið tekinn af leikvelli eftir að hafa fengið skot í höfuðið segir Lárus svo ekki vera. Sjúkraþjálfarinn hafi hins vegar oft spurt hann hvort hann vilji fara út af við þessar að- stæður. „Hann hefur oft spurt mig hvort ég vilji fara út af og hvort ég vilji hvíla mig. Mér finnst rosalega erfitt að finna það sjálfur hvort ég á að fara út af eða halda áfram. Það er erfitt að meta það. Enda getur maður verið sljór fyrst eftir höggið. Eftir nokkrar sóknir getur höfuðverkur gert vart við sig. Mér finnst flókið að finna út hvort maður á að draga sig í hlé um leið og maður finnur fyrir einhverju eða hvort það þurfi að vera mikill höfuðverkur,“ segir Lár- us Helgi ennfremur við Morgun- blaðið. Fimmtán skot í höfuðið á þremur mánuðum  Lárus Helgi handboltamarkvörður veltir fyrir sér afleiðingunum Morgunblaðið/Hari Berskjaldaður Lárus Helgi Ólafsson, markvörður Fram, býr sig undir að reyna að verja skot Guðmundar Árna Ólafssonar úr Aftureldingu af stuttu færi í leik liðanna í Olísdeild karla í handknattleik í vetur. Elvar Már Friðriksson átti magn- aðan leik fyrir Borås í 99:81-sigri á Jämtland í sænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í gær. Bakvörðurinn gerði sér lítið fyrir og skoraði 25 stig, gaf 15 stoðsendingar og tók 3 fráköst á 32 mínútum. Var hann stigahæstur allra á vellinum og með langflestar stoðsendingar. Bo- rås er í þriðja sæti deildarinnar með 22 stig, eins og Köping sem er í öðru sæti. Eru þau tveimur stigum á eftir Luleå sem er í toppsætinu, en Elvar og félagar eiga leik til góða á toppliðið. Stórleikur Elvars gegn Jämtland Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Tvenna Elvar Már Friðriksson skil- aði glæsilegri tvennu í góðum sigri. Heimir Guðjónsson, þjálfari karla- liðs Vals í knattspyrnu, hefur bætt leikmanni í hópinn en félagið samdi við Magnus Egilsson sem æft hefur með Val að undanförnu. Magnus er Færeyingur, hefur leikið tvo A- landsleiki og lék undir stjórn Heim- is hjá HB. Hann er 25 ára og leikur iðulega sem vinstri bakvörður og verður því væntanlega í samkeppni við Ívar Örn Jónsson um stöðu í byrjunarliðinu. Bjarni Ólafur Ei- ríksson, bakvörðurinn reyndi, er hins vegar farinn frá Val og mun leika með ÍBV næsta sumar. Valur samdi við Magnus Ljósmynd/hb.fo Valur Magnus Egilsson lék áður undir stjórn Heimis hjá HB.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.