Morgunblaðið - 11.12.2019, Page 32
Rithöfundurinn Stefán Máni nýtur
vaxandi vinsælda í Þýskalandi og
hafa bækur hans ítrekað ratað á
topplista rafbóka Amazon í Þýska-
landi. Bók hans Svartigaldur, In
schwarzen Spiegeln í þýskri þýð-
ingu, kom þar út í október og
komst í toppsætið í byrjun nóv-
embermánaðar og hefur verið þar
í tvígang auk þess að sitja á topp
tíu nær allan nóvembermánuð.
Stefán vinsæll hjá
Amazon í Þýskalandi
MIÐVIKUDAGUR 11. DESEMBER 345. DAGUR ÁRSINS 2019
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 670 kr.
Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr.
PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr.
Evrópumeistarar Liverpool tryggðu
sér í gærkvöld sæti í sextán liða úr-
slitum Meistaradeildarinnar í fót-
bolta með því að sigra Salzburg,
2:0, í hreinum úrslitaleik liðanna í
E-riðli keppninnar í Austurríki. Ajax,
sem komst í undanúrslit í fyrra, er
hinsvegar úr leik eftir tap gegn Val-
encia á heimavelli. »26
Liverpool áfram
en Ajax er úr leik
ÍÞRÓTTIR MENNING
Eftir úrslit gærdagsins á heims-
meistaramóti kvenna í handknatt-
leik eru talsverðar líkur orðnar á
því að grannþjóðirnar Norðmenn
og Svíar mætist í undanúrslitaleik
í Japan. Svíar eiga góða mögu-
leika á að komast í undanúrslitin
eftir stórsigur á Rúmenum í gær
og þar gæti beðið þeirra norska
liðið undir stjórn Þóris Hergeirs-
sonar en það
mætir
Þýskalandi í
úrslitaleik
um sæti í
undan-
úrslit-
unum
í dag.
»26
Líkur á grannaslag
Noregs og Svíþjóðar
urvinnslunnar Örnu frá upphafi þar
til í vor sem leið, hefur unnið ýmis
ráðgjafarstörf fyrir opinbera aðila
jafnt sem einkaaðila, innanlands sem
utan, þ.m.t. Bændasamtök Íslands,
var forstöðumaður Matvælaseturs
Háskólans á Akureyri og kennari við
skólann 2000-2003, aðstoðar-
kaupfélagsstjóri KEA 1998-2000 og
þar áður mjólkursamlagsstjóri á
Akureyri frá 1982.
Fyrir skömmu var Þórarinn með
fjögur námskeið á Vestfjörðum, eitt í
Menntaskólanum í Kópavogi og eins
í Hallormsstaðarskóla. Hann segir
að fólk úti á landi hafi gjarnan í
hyggju að framleiða mat fyrir ferða-
menn og sæki námskeiðin í þeim til-
gangi að læra til verka, en í þéttbýl-
inu sé meira um að fagfólk mæti á
námskeiðin. „Svo eru margir, eink-
um konur, sem muna hvernig amma
og langamma gerðu osta og vilja við-
halda hefðinni.“ Hann bætir við að
hann hafi líka verið beðinn að halda
sérstakt námskeið fyrir karla, meðal
annars fyrir karlaklúbb á Húsavík.
Þórarinn segir að í grunninn sé
upphaf allrar matvælaframleiðslu í
heimahúsi og af sama meiði. „Skrefin
á milli ostagerðar, að baka gerbrauð
eða búa til bjór eða vín eru stutt,“ en
þess má geta að Landbúnaðarhá-
skóli Íslands gaf út bókina Ostagerð
– Heimavinnsla mjólkurafurða eftir
Þórarin 2010 og að undanförnu hefur
hann aðstoðað Englending (https://
www.hesper.uk/) við að koma skyr-
gerð – „beint frá býli“ – á laggirnar í
Bretlandi.
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Mjólkurverkfræðingurinn Þórarinn
Egill Sveinsson hefur undanfarin
nær 15 ár farið víða um land til þess
að kynna og kenna ostagerð og segir
að námskeiðahaldið hafi tekið kipp
eftir bankahrunið. „Þá fór fólk að
hugsa sinn gang og meðal annars var
í auknum mæli farið að huga að því
hvort þekking úr eldhúsinu eins og
til dæmis ostagerð væri að hverfa.“
Í kjölfarið hóf Þórarinn samstarf
við Landbúnaðarháskólann á
Hvanneyri með námskeiðum í sam-
vinnu við endurmenntunardeild
skólans. Auk þess er hann í sam-
starfi við fræðslumiðstöðvar lands-
hlutanna.
„Svo er ég í miklu og góðu sam-
starfi við Hallormsstaðarskóla með
lengri og sérhæfðari námskeið –
masterklassa – í þeirri metnaðar-
fullu uppbyggingu sem þar á sér
stað,“ segir hann.
„Ég er líklega með ost í vömb og
mjólk í æðum og hátt í 800 manns
hafa komið á námskeið hjá mér,“
heldur Þórarinn áfram. „Ég hef ver-
ið með grunnnámskeið, þar sem
þátttakendur fá yfirsýn yfir all-
flestar ostategundir heimsins í gegn-
um fimm til tíu grunnuppskriftir.“
Hann bætir við að allir séu virkir á
þessum námskeiðum og fari heim að
kvöldi með dagsverkið. „Margar
uppskriftirnar eru tiltölulega ein-
faldar enda gerðu forfeður okkar
osta á hlóðum og því ætti að vera
auðvelt að framleiða þá í eldhúsi okk-
ar daga,“ segir hann.
„Verklegi þátturinn skiptir máli
og því finnst mér best að vera með
námskeiðin í skólaeldhúsi.“
Upphafið í heimahúsi
Þórarinn á ekki langt að sækja
áhugann á mjólkurvörum, en faðir
hans var einn af fyrstu mjólkurfræð-
ingum landsins. Að loknu sérfræði-
námi í Noregi hefur hann fyrst og
fremst unnið í tengslum við
matvælaframleiðslu, fræðslu og
vöruþróun. Hann var einn af stofn-
endum og stjórnarformaður mjólk-
Heldur við hefð í
ostagerð í heimahúsi
Þórarinn Egill Sveinsson með námskeið víða um land
Ostagerð Þórarinn á fullu. Laufey Skúladóttir fylgist með.