Morgunblaðið - 18.12.2019, Side 12

Morgunblaðið - 18.12.2019, Side 12
12 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 2019SJÓNARHÓLL Álnabær Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta. Síðumúla 32, Reykjavík. S. 588 5900 ■ Tjarnargötu 17, Keflavík. S. 421 2061 ■ Glerárgötu 32, Akureyri. S. 462 5900 ■ alnabaer.is Við erum sérhæfð í gluggatjöldum alnabaer.is TWIN LIGHT RÚLLUGARDÍNA VEFSÍÐAN Vonandi kannast margir lesendur við sagnfræðinginn Tom Woods en hann er með glúrnari sérfræðingum í sínu fagi og einstaklega lagið að fletta of- an af útbreiddum sagnfræðilegum rangfærslum. Hann þekkir hagsögu Bandaríkjanna út og inn, er hjarta- hreinn frjálshyggjumaður og heldur úti hlaðvarpinu The Tom Woods Show alla virka daga. Robert „Bob“ Murphy er einn af nánustu vinum og samstarfsmönnum Woods, með dokt- orsgráðu í hagfræði frá NYU og reglulegur gestur í viðtalsþætti Woods. Fljótlega rann það upp fyrir félög- unum að þeir þurftu svo oft að leið- rétta rangfærslur og rangtúlkanir í reglulegum pistlum Paul Krugman í New York times, að best væri að búa til sérstakt hlaðvarp í kringum þá iðju. Þannig fæddist Contra Krug- man (www.contrakrugman.com). Eins og lesendur vita er hagfræð- ingurinn Paul Krugman mikilsvirtur Nóbelsverðlaunahafi og heimsins há- værasti talsmaður Keynesískrar hag- fræði. Er hrein unun að heyra þá Woods og Murphy kryfja bullið í Krugman til mergjar, og útlista hvernig hann hefur rangt fyrir sér um flesta hluti. Léttur andi er yfir hlaðvarpinu og þess gætt að útskýra efnið vel fyrir bæði leikmönnum og hagfræðinördum, en þáttastjórn- endur leggja sig líka fram við að sýna Krugman sanngirni og hrósa þegar hann á það skilið. ai@mbl.is Woods og Murphy hjóla í Krugman Lítil frétt á Reuters vakti athygli víða um heim fyrirtveim vikum. Þá var fyrsti álfarmurinn seldur tilApple sem framleiddur er án losunar koldíoxíðs eða CO2. Það er fyrirtækið Elysis sem stendur að þróun á þess- ari byltingarkenndu tækni, en að baki því standa Alcoa og Rio Tinto. Quebec-fylki á einnig lítinn hlut. Í grunninn felst tæknin í því að rafskautum úr kolefni er skipt út í rafgreiningarferli áls, sem þýðir að ekkert kolefni er til staðar í ferlinu og því myndast ekki CO2 heldur súrefni O2. Taka íslensk stjórnvöld þátt? Þessi byltingarkennda tækni hefur verið þróuð áratug- um saman af Alcoa, en straum- hvörf urðu í fyrra þegar tilkynnt var um samstarf Alcoa og Rio Tinto í Elysis. Jafnframt að stefnt yrði að því að hefja þróun á kolefn- islausri framleiðslulínu og að álið yrði sett á markað fyrir 2024, en lagt er upp með að hægt sé að inn- leiða tæknina í álverum sem þegar eru starfandi. Stjórnvöld í Kanada og Quebec taka ásamt Apple þátt í kostnaði við rannsóknir og þróun verkefnisins og leggja til þess 144 milljónir dollara eða um 18 milljarða. Apple notar sem kunnugt er ál í flestar sínar vörur, svo sem iPhone-farsíma, Apple-úr og Mac-tölvur, og hefur unnið að því að lágmarka sitt kolefnisfótspor. Það blasir við að íslensk stjórnvöld hafa tækifæri til að stíga inn í þetta verkefni, þar sem bæði Alcoa og Rio Tinto reka álver á Íslandi. Ef það gengi eftir, þá yrði hverfandi heildarlosun frá íslenskri álframleiðslu, þar sem orkan hér á landi er endurnýjanleg. Það myndi skapa Íslandi sér- stöðu, því heildarlosun álframleiðslunnar verður áfram mikil í löndum sem sækja orkuna í gas eða kol, svo sem í Kína og Mið-Austurlöndum. Snjallvæðing og sjálfvirkni Óhætt er að fullyrða að tækifærin eru mörg til að ýta undir rannsóknir og þróun í áliðnaði hér á landi. Byggst hefur upp gróskumikill álklasi á liðnum áratugum og auð- vitað felst forskot í því fyrir fyrirtæki í klasanum að hafa aðgang að svo öflugum alþjóðlegum fyrirtækjum sem eru sýningargluggi út í heim. Það segir sína sögu að á liðnu ári keyptu álverin þrjú vörur og þjónustu af hundruðum innlendra fyrirtækja fyrir um 23 milljarða, auk þess sem raforkukaup námu um 40 milljörðum. Alls námu innlend útgjöld álvera á Ís- landi um 86 milljörðum. Því ber að fagna að tvö áltengd verkefni fengu úthlutað styrk úr Rannís nú í desember. Annarsvegar var það sprotafyrirtækið DTE, sem er leiðandi í sjálfvirknivæð- ingu efnagreiningar á álbráð eða melmi. Yfirskrift verk- efnisins er „Snjallvæðing og sjálfvirkni að fjórðu iðnbylt- ingu“. Annar sproti sem fékk styrk er Álvit, sem vinnur að þróun á nýjum umhverfis- vænum kragasalla. Rannsóknarmiðstöð í áliðnaði Í sumar skrifuðu fulltrúar stjórnvalda, Orkuveitu Reykjavík- ur og stóriðju undir viljayfirlýs- ingu um að hleypa af stokkunum viðamiklu rannsóknar- og þróun- arverkefni um hvort fýsilegt sé að binda kolefnisútstreymi stóriðju í berglögum með Carb- fix-aðferðinni, sem einnig er nefnd „gas í grjót“. Ekki fékkst styrkur til verkefnisins úr Horizon 2020 sjóði ESB, en áfram verður unnið að fjármögnun verkefnisins. Þá er rannsóknarverkefni í gangi hjá Nýsköpunar- miðstöð um þróun á kolefnislausum skautum og með ný- legum styrk Alcoa Foundation hefur myndast vísir að rannsóknarmiðstöð í áliðnaði hér á landi. Álklasinn er ein- mitt þar til húsa með innan sinna raða á fjórða tug fyrir- tækja og stofnana. Í síðustu viku var kynnt ný skýrsla Álklasans „Snjallál, þróun og snjallvæðing í áliðnaði“ og áhersla verður lögð á lausnir í loftslagsmálum á næsta ári. Framþróunin er ör hjá framleiðslufyrirtækjum um all- an heim. Ef rétt er á spilum haldið eru Íslendingar í fær- um að vera framarlega í rannsóknum, þróun og hag- nýtum lausnum í álframleiðslu á heimsvísu, m.a. í snjalliðnaði og loftslagsmálum þar sem gerjunin er mest. Þar hafa Íslendingar sögu að segja. Kolefnislaus álframleiðsla handan við hornið? UMHVERFISMÁL Pétur Blöndal framkvæmdastjóri Samáls ” Það segir sína sögu að á liðnu ári keyptu álver- in þrjú vörur og þjón- ustu af hundruðum innlendra fyrirtækja fyrir um 23 milljarða. EGGERT

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.