Morgunblaðið - 18.12.2019, Síða 16
dk iPos snjalltækjalausn
fyrir verslun og þjónustu
Einfalt, fljótlegt og beintengt dk fjárhagsbókhaldi
Smáratorgi 3, 201 Kópavogur • Hafnarstræti 53, 600 Akureyri
510 5800, dk@dk.is, www.dk.is
dk iPos er hluti af snjalltækjalínu dk hugbúnaðar.
Líttu við og fáðu kynningu á þeim fjölbreyttu lausnum
sem dk hugbúnaður hefur fyrir verslun og þjónustu.
VIÐSKIPTA
Viðskiptablað Morgunblaðsins Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100, vidsk@mbl.is Útgefandi Árvakur hf.
Umsjón Stefán Einar Stefánsson fréttastjóri, ses@mbl.is Auglýsingar sími 5691111, augl@mbl.is Bréfsími 5691110 Prentun Landsprent ehf.
VIÐSKIPTI Á MBL.IS
Ber skiptastjóra WOW þungum …
Rauður dagur hjá Icelandair
Búið að loka Búllunni í Noregi
Icelandair tilkynnir breytta áætlun
Gengi Icelandair hríðfellur
Mest lesið í vikunni
INNHERJI
RÉTTARRÍKIÐ ÞÓRODDUR BJARNASON
SKOÐUN
Norska eignarhaldsfélagið Selstad
Holding AS mun eignast meirihluta
í veiðarfæraframleiðandanum Ísfelli
í byrjun næsta árs. Um það hefur
tekist samkomulag milli fyrir-
tækisins og Péturs Björnssonar sem
nú fer með 57% hlut í fyrirtækinu.
Selstad hefur um langt árabil verið í
eigendahópi Ísfells og heldur nú á
43% hlut í fyrirtækinu. Selstad
Holding AS er einnig eigandi að
norska veiðarfæraframleiðandanum
Selstad AS sem m.a. þróar hið bylt-
ingarkennda STREAMLINE-troll
sem Ísfell hefur markaðssett hér á
landi. Heimildir ViðskiptaMoggans
herma að Selstad Holding AS verði
ekki eini eigandi Ísfells að loknum
eigendabreytingunum. Þannig mun
Guðbjartur Þórarinsson, fram-
kvæmdastjóri félagsins, einnig
koma inn í eigendahópinn. Þrátt
fyrir að Pétur Björgvinsson hverfi
úr eigendahópi fyrirtækisins er
fastlega gert ráð fyrir því að hann
muni áfram gegna stjórnar-
formennsku í fyrirtækinu.
Ásamt Pétri sitja nú í stjórninni
þau Marta Eiríksdóttir, Benedikt
Sveinsson auk feðginanna Hans-
Petter Selstad og Marit Selstad.
Rekstur Ísfells hefur farið versn-
andi á síðustu árum. Í fyrra nam
hagnaður fyrirtækisins 2,9 millj-
ónum króna samanborið við 10
milljónir árið áður. Árið 2016 nam
hagnaðurinn rúmum 23 milljónum
en árið 2015 var hagnaðurinn rúm
271 milljón króna. Velta félagsins
hefur haldist nærri þremur millj-
örðum króna öll fyrrnefnd rekstr-
arár.
Morgunblaðið/Eggert
Ísfell er gamalgróið og öflugt þjónustufyrirtæki við sjávarútveginn.
Selstad kaupir
meira í Ísfelli
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Norska félagið Selstad
Holding AS mun eignast
meirihluta í Ísfelli á nýju ári.
Félagið hefur verið minni-
hlutaeigandi um langt árabil.
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Það mátti heyra saumnál detta íBerlaymont í Brussel þegar út-
gönguspá fyrir bresku þingkosning-
arnar var birt að kvöldi fimmtudags-
ins síðasta. Gat verið að ófétið Boris
Johnson sem hafði leitt Brexit yfir
bresku þjóðina væri kominn með 368
sæti og hreinan meirihluta? Gat verið
að hann hefði nælt sér í hinn eftir-
sótta pálma sem allir vilja hafa í hönd-
unum og gæti nú fullkomnað óhæfu-
verkið?
Reyndar urðu þingsætin ekkinema 365 en meirihlutinn reynd-
ist öruggur og nú stefnir þingið að því
að setja gaffalinn á yfirvöld í Brussel.
Þann sama og búrókratarnir og and-
lýðræðisöflin í breska þinginu hafa ot-
að að almenningi þar í landi allt frá
því að úrsögn úr ESB varð ofan á í
þjóðaratkvæðagreiðslu árið 2016.
Þessi atburðarás var það verstasem Juncker og herdeildir hans í
skrifræðisbákni ESB gátu hugsað sér
að myndi nokkru sinni gerast. Þess
vegna var allt gert til þess að þvæla
málin og gera Bretum eins örðugt um
vik og hægt var að standa við stóru
orðin. En það tókst.
En martröðin er bara rétt að byrjafyrir ESB og þá sem þar sitja að
kjötkötlunum. Nú munu Bretar afla
sér nýrra bandamanna og endurnýja
kynni við þá gömlu. Með minna skrif-
ræði og sveigjanlegra hagkerfi um
leið munu þeir eiga auðveldara með
að tryggja hagvöxt til framtíðar og
um leið aukin og betri lífskjör lands-
manna. Það verður enn ný martröð
fyrir von der Leyen og hirðina í
kringum hana.
Stærsta
martröðin
Hefðu þau fengið að ráða hefðiLjósafossstöðin ekki verið
reist 1937. Heldur ekki Laxár- og
Írafossstöð 1953. Mjólkárvirkjun
hefði þótt víðáttuvitlaus og ekki
komist á koppinn 1956. Aldrei hefði
verið fallist á Steingrímsstöð 1959
né heldur Laxárstöð III árið 1973.
Virkjunin í Kröflu hefði aldrei kom-
ist á hugmyndastig, hvað þá orðið
að veruleika 1977 og hið sama hefði
átt við Sigöldustöð 1978. Dettur
einhverjum í hug að Blöndustöð
hefði verið gangsett 1991 eða
Fljótsdalsstöð 2007 ef sami hópur
hefði fengið sitt fram?
Ljósi punkturinn í dellunni allrier sá að ef framtakssamt fólk
með heilbrigða framtíðarsýn hefði
ekki keyrt raforkuuppbygginguna
áfram á síðustu 70 árum hefðum
við aldrei horft upp á þau vanda-
mál sem fylgdu fárviðrinu í liðinni
viku. Það hefði ekkert rafmagni
verið að miðla til heimila og fyrir-
tækja í landinu. En sá böggull
fylgir hins vegar skammrifi þessa
viðhorfs að ef það hefði orðið ofan
á hefðu lífsgæði í landinu orðið
miklum mun verri en þau eru í
dag. Sennilega fylltu Íslendingar
þá flokk fátækari þjóða í Evrópu í
stað þess að skipa þar efstu sætin
ásamt öðrum ríkustu velmegunar-
þjóðum heimsins.
Hamfarirnar sem gengu yfir ogollu mikilli röskun á raf-
orkuflutningi mættu verða okkur
áminning um hversu mikilvægt raf-
magnið er fyrir löngu orðið í sam-
félagi okkar. Það er hin ósýnilega
undirstaða velmegunar og við meg-
um þakka fyrir þá miklu gjöf sem
felst í fallvötnum og jarðvarma.
Enn frekar má þakka því fólki sem
hafði djörfung til þess að beisla
þessa orku og breyta henni í verð-
mæti, þjóð og landi til heilla.
Þessi áminning virðist raunarhafa náð í gegn. Þeir sem hvað
hatrammast hafa barist gegn upp-
byggingu raforkukerfisins hafa haft
sig lítið í frammi síðustu vikuna,
jafnvel þeir sem í dag verma æðstu
sessur íslensks stjórnkerfis. Ekki
er víst að staðreyndirnar telji þeim
hughvarf til lengri tíma litið en þá
er mikilvægt að minnast þess að
veður, lík því sem gekk á land nú í
desember, munu án efa sækja okk-
ur heim að nýju. Þá er eins gott að
búið verði að gera átak í uppbygg-
ingu raforkuinnviða landsins.
Fjallagrasahagfræðin
EasyPark hefur keypt
bílastæðaþjónustuna
Leggja og er þar með
orðin nýjasta bílastæða-
þjónusta landsins.
EasyPark hefur
keypt Leggja
1
2
3
4
5