Fréttablaðið - 30.12.2002, Side 10
Paul Merson, leikmaðurPortsmouth, vill að enska
knattspyrnusambandið gefi Mark
Bosnich, markverði Chelsea, ann-
að tækifæri og dæmi hann ekki í
langt bann fyrir lyfjanotkun.
„Hann er nú einu sinni mennskur
og getur gert mistök,“ sagði Mer-
son, sem átti sjálfur í baráttu við
fíkniefnadjöfulinn. Hann hafði þó
betur að lokum og stóð sig frá-
bærlega á vellinum.
Claudio Pizarro, leikmaðurBayern München, hefur hót-
að því að yfirgefa herbúðir liðs-
ins fá hann ekki frekari tæki-
færi. Pizarro hefur skorað tíu
mörk það sem af er leiktíðar en
þrátt fyrir það þarf hann meira
og minna að verma varamanna-
bekkinn. Í sjónvarpsviðtali fyrir
skömmu lýsti hann því yfir að
hann myndi hugsa sér til hreyf-
ings verði ekki breytingar á.
Það vefst fyrir forráðamönnumenska krikketlandsliðsins
hvort liðið eigi að taka þátt í
heimsmeistaramótinu í Zimbabwe
í febrúar eða sniðganga mótið í
mótmælaskyni við stjórn Roberts
Mugabe. Formaður þeirrar nefnd-
ar sem velur leikmenn vill að þeir
ákveði það en fyrirliði landsliðs-
ins vill að stjórnvöld taki ákvörð-
un fyrir leikmennina, nokkuð sem
íþróttamálaráðherrann neitar.
10 30. desember 2002 MÁNUDAGURFÓTBOLTI
EFTIRMINNILEGUR ATBURÐUR
Brasilía varð heimsmeistari í knattspyrnu
í ár eftir sigur á Þjóðverjum, 2-0.
AP fréttastofan valdi það íþróttaviðburð
ársins 2002.
STUTT
FÓTBOLTI Luiz Felipe Scolari,
nýráðinn landsliðsþjálfari Portú-
gals og fyrrverandi þjálfari Bras-
ilíu, ætlar sér að innleiða sama
hugarfar í leikmenn sína og það
hugarfar sem var til staðar í
brasilíska liðinu sem vann heims-
meistaratitilinn í sumar.
Portúgal verður gestgjafi í úr-
slitum Evrópukeppninnar árið
2004 og í janúar á næsta ári mun
Scolari byrja að undirbúa lið sitt
af fullum krafti fyrir átökin.
„Ég hef mikla trú á þeirri
vinnu sem er fram undan og ég
held að það sé rúm fyrir framfar-
ir í liðinu,“ sagði Scolari í nýlegu
viðtali. „Ég er viss um að árið
2004 komumst við í úrslitaleik
Evrópukeppninar.“
Fyrsti vináttuleikur Portúgals
undir stjórn Scolari verður háður
þann 12. febrúar gegn Ítölum.
Næsti vináttuleikurinn verður
síðar gegn fyrrverandi lærisvein-
um hans, heimsmeisturum Brasil-
íu, 29. mars á næsta ári. ■
Shaquille O’Neal:
Kvæntist
í laumi
KÖRFUBOLTI Körfuboltamaðurinn
risavaxni Shaquille O’Neal
kvæntist nýverið í laumi kær-
ustu sinni til langs tíma, Shaun-
ine Nelson, í einkaathöfn á
Beverly Hills hótelinu í Los Ang-
eles. Félagar O’Neal úr Los Ang-
eles Lakers voru á meðal við-
staddra.
Myndir frá brúðkaupinu náð-
ust úr bandarískri fréttaþyrlu
sem sveimaði yfir hótelinu þrátt
fyrir að mikil leynd hafi hvílt
yfir athöfninni.
O’Neal og Nelson eiga tvö
börn saman og eiga von á sínu
þriðja barni í maí. ■
SHAQ
Shaquille O’Neal fagnar ógurlega eftir að hafa troðið boltanum í körfuna í leik gegn
Sacramento Kings á dögunum.
AP
/M
YN
D
ÍÞRÓTTIR Í DAG
15.35 Stöð 2
Ensku mörkin
18.00 Sýn
Ensku mörkin
19.30 Sýn
Gillette-sportpakkinn
20.00 Sýn
Toppleikir
22.00 Sýn
Brassarnir bestir
22.50 Sýn
Ensku mörkin
01.20 Stöð 2
Ensku mörkin
BRASILÍA
Brasilíumenn, með Ronaldo í
fararbroddi, fagna heimsmeistaratitlinum
í sumar. Scolari var maðurinn á bak við
góðan árangur liðsins.
FÓTBOLTI James Milner, sem heldur
upp á 17 ára afmælið sitt næsta
laugardag, heldur áfram að skapa
sér nafn sem einhver efnilegasti
leikmaður ensku knattspyrnunn-
ar. Hann skoraði annað mark sitt í
jafn mörgum leikjum þegar Leeds
lagði Chelsea, sem hafði leikið
ellefu leiki í röð án þess að bíða
lægri hlut.
Hinn ungi sóknarmaðurinn
sem er að slá í gegn, Wayne -
Rooney, sýndi mikil tilþrif og var
nálægt því að skora fyrir Everton
gegn Bolton en leik liðanna lauk
með markalausu jafntefli. Þetta
var í fyrsta skipti í 16 leikjum
sem Bolton fékk ekki á sig mark.
Diego Forlan og David Beck-
ham skoruðu fyrir Manchester
United þegar liðið lagði Birming-
ham, undir stjórn fyrrum leik-
manns United, Steve Bruce, en
Alex Ferguson þakkaði Fabien
Barthez sigurinn og kvað snilldar-
markvörslu hans hafa tryggt liði
sínu öll þrjú stigin.
Kevin Lisbie tryggði Charlton
1-0 sigur á WBA og hefur liðið nú
leikið átta leiki í röð án þess að
tapa. Leikmenn WBA töldu sig illa
svikna af dómaranum þegar
Jason Roberts var felldur í víta-
teignum en ekkert dæmt. ■
MILNER Í SÓKNARHUG
Hinn 16 ára James Milner hélt áfram uppteknum hætti og skoraði fyrir Leeds í öðrum
leiknum í röð. Strákurinn knái er með 80 pund, rúmar 10.000 krónur, í vikulaun.
Scolari, landsliðsþjálfari Portúgals:
Ætlar í úrslitaleik EM
Sigurgöngu Chelsea lokið:
Magnaður
Milner