Fréttablaðið - 30.12.2002, Side 14
14 30. desember 2002 MÁNUDAGUR
ARNARSON
„Það er hefð hjá stórfjölskyld-
unni að hittast á gamlárskvöld.
Þetta er rosalega stór hópur, um 50
manns,“ segir Felix Bergsson leik-
ari. „Það hefur verið gripið til þess
ráðs að leigja sal sem rúmar allt
þetta fólk og þarna er margt til
gamans gert, og að sjálfsögðu allir
með hatta sem hæfa tilefninu.“
Hefðbundinn matur við þetta tæki-
færi er hamborgarhryggur, segir
Felix, en svo fá fjölskyldumeðlimir
útrás fyrir skotgleðina sem ríkir
innan fjölskyldunnar og litlir strák-
ar á öllum aldri taka þátt í flugelda-
fjörinu. „Ég ætla nú reyndar ekki að
taka þátt í þessari stórfjölskyldu-
veislu í ár, verð bara heima í róleg-
heitum og er ekkert farinn að huga
að því hvað verður í matinn,“ svar-
ar hann aðspurður.“ Þetta verður
bara af fingrum fram.“ ■
Nú eru áramótin á næsta leiti ogrétt handan við hornið bíða
hinir árlegu nýjársfagnaðir með
tilheyrandi prjáli. Sjaldan gefst
jafn tilvalið tækifæri til þess að
klæða sig upp og láta ljós sitt skína
meðal samborgaranna en einmitt
þessa dagana. Í gegnum tíðina hef-
ur þróunin orðið sú hjá fjölskyldu-
fólki að áramótin sjálf eru fyrst og
fremst orðin hátíð barnanna og
það er þá frekar á nýárskvöld sem
menn draga spariskrúðann fram
og bregða sér á ball. Þetta á raunar
við hjá sífellt fleirum þótt
gamlárskvöld haldi auðvitað sín-
um sessi, einkum meðal yngri kyn-
slóðanna.
Í takt við þessa þróun hefur
færst í vöxt á undanförnum árum
að veitingahús boði til nýársfagn-
aðar þar sem slegið er upp glæsi-
legum dansleik að loknu íburðar-
miklu borðhaldi. Gestirnir sem
mæta þurfa venjulega að punga út
háum fjárhæðum til þess að fá not-
ið herlegheitanna og er stórhluti
útgjaldanna fólginn í klæðnaðinum
og ýmsum fylgihlutum.
Tískusveiflur í kjólum
Skrúðar gestanna á nýársfögn-
uðunum vekja iðulega athygli.
Klæðnaðurinn er auðvitað af ýmsu
tagi enda hefur hver og einn sinn
persónulega stíl. Tískuverslanir og
fataleigur reyna að bjóða upp á
fjölbreytt úrval sparifatnaðar en
auðvitað gætir einhverra tísku-
sveifla frá ári til árs.
„Nú er mjög vinsælt að vera
bara í pilsi og flottri kasmírpeysu
eða gylltri peysu við. Annars má
tvímælalaust segja að svart og
hvítt séu aðallitirnir,“ segir Arnar
Tómasson hárgreiðslumaður.
Hann ítrekar þó nauðsyn þess að
bera rétta fylgihluti með til þess að
lífga upp á klæðnaðinn verði svart
fyrir valinu. „Hvítur fatnaður er
alltaf mjög skemmtilegur. Brasilí-
ubúar eru til dæmis alltaf í hvítu á
áramótunum sem tákn um það að
þeir eru að hreinsa sálina og reka
burt illa djöfla. Þetta er auðvitað
bara hjátrú en það er gaman að
henni.“
En þó að svart og hvítt séu ráð-
andi bendir Arnar á að litir og
mynstur megi gjarnan fljóta með.
„Litir lífga meira upp á tilveruna
og það borgar sig oft að hafa sína
eigin liti með og bera þá næst and-
litinu. Á þessum tíma er líka oft
búið að vera mikið að gera hjá
fólki og margir orðnir lang-
þreyttir en ef maður er í
litum þá verða þreytu-
merkin minna áber-
andi.“ Arnar hefur jafn-
framt veitt því athygli
að fólk er líklegra til
þess að fá tekna af sér
mynd sé það í litskrúðug-
um klæðnaði. „Ef fólk sæk-
ist eftir því að fá birta af
sér mynd í Séð og heyrt þá
borgar sig að vera í litum.“
Þarf ekki að vera dýrt
Það getur verið afar
kostnaðarsamt að líta vel
út en með útsjónarsemi
er hægt að spara sér
mikla peninga án þess að
það komi niður á útkom-
unni. „Það er auðvitað til
fólk í samfélaginu í dag
sem kaupir sér rándýra
og flotta kjóla fyrir
svona lagað. En það er
líka fullt af fínum búð-
um sem selja ódýra
kjóla enda þurfa kjólar
alls ekki að vera of-
boðslega dýrir til þess
að vera smart,“ segir
Arnar. „Það er líka allt
í lagi að vera í göml-
um kjól en þá er snið-
ugt að poppa hann
aðeins upp með því
að taka „trendin“
sem eru í gangi á
hverjum tíma
og bæta
þeim við. Í
f y r r a
v o r u
margar
k o n u r
s e m
s a u m u ð u
skinn á kragana en
það getur líka komið vel út að festa
litlar perlur á kjólinn. Í föndurbúð-
um er til mikið af alls konar dóti
sem hægt er að nota á sniðugan
máta en það er auðvitað misjafnt
hvað fólk er duglegt við að gera
svona hluti.“
Háir hælar ómissandi
Skórnir hafa mikið að segja um
heildarútkomuna og þá ber að
velja af kostgæfni og í samræmi
við kjólinn. Arnar fer ekki leynt
með þá skoðun sína að öllum kon-
um fari best að ganga í háum hæl-
um þegar þær klæða sig upp. „Þó
að konur séu hávaxnar eiga þær
tvímælalaust að vera á hælum og
ganga beinar í baki.“
Að sögn Arnars er skótískan
ekki mikið breytt frá því sem var í
fyrra. „Támjóir skór eru áfram
inni en táin má kannski vera svolít-
ið ferkantaðri núna.“ Arnar hefur
líka tekið eftir því að spænskra
áhrifa gætir í sparikjólum kvenna
þessa dagana og ítrekar hann
nauðsyn þess að vera í léttum
bandaskóm við
slíkan klæðnað. „Þá
þarf auðvitað að
fara í fótsnyrtingu
og lakka táneglurn-
ar. Ég mæli líka
með því að konur
setji brúnkukrem á
kroppinn því það
er hálfasnalegt að
sjá næpuhvíta húð
við suðrænan kjól.“
Slaufur setja
svip
Því verður ekki
neitað að klæðnaður
kvenna vekur yfirleitt
töluvert meiri athygli
en föt karlmanna enda
er breiddin venjulega
minni á þeim vett-
vangi. „Við karlmenn-
irnir erum svo heppn-
ir að við getum leyft
okkur að fara í sömu
jakkafötin ár eftir ár,“
segir Arnar en viður-
kennir þó að karlmanna-
klæðnaður sé ekki alveg
óháður tískusveiflum. „Bur-
berry er mjög vinsælt núna. Mér
finnst ofsalega smart að vera í
gamla góða smókingnum eða kjól
og hvítt og með Burberry-slaufu
við. Skotastíllinn hefur líka verið
áberandi upp á síðkastið og það er
tilvalið að velja slaufu með þannig
mynstri. Í raun er alltaf sniðugt
að vera með slaufu í einhverjum
lit eða með mynstri og auðvitað er
huggulegt að hafa hana í stíl við
kjólinn sem konan er í.“
Uppsett hár og skínandi
andlit
Hárgreiðslan og farðinn
skipta ekki síður máli en klæðn-
aðurinn og þar er að ýmsu að
gæta. „Víddin í hárgreiðslum er
mjög mikil. Það hefur verið
„trendið“ síðastliðin tvö þrjú ár
að gera ekki svo mikið úr hár-
greiðslunni en þetta er að breyt-
ast núna og meira orðið um að
konur fari í greiðslu þegar tilefni
gefst. Mér finnst uppgreiðslur
alltaf mjög hátíðlegar en kjóllinn,
og þá sérstaklega hálsmálið, hef-
ur mikið um það að segja hvernig
hárgreiðslu konan getur borið,“
segir Arnar.
Hvað förðunina snertir virðist
engum blöðum um það að fletta að
glimmer og gloss er allsráðandi.
„Það er þetta „shiny look“ sem er
mest áberandi um þessar mundir“
segir Gréta Boða förðunarfræð-
ingur. „Glimmerið er samt öður-
vísi en þessi „sansering“ sem var
vinsæl hér áður fyrr því nú spilar
gljáinn með ljósinu sem maður er
í. Þess vegna er algjör vitleysa að
þroskaðar konur geti ekki verið
með glimmer.“ Gréta segir að
rautt sé alltaf mjög vinsælt um jól
og áramót. „Konum finnst þér
vera sparilegar með rauðan vara-
lit og rautt naglalakk. Rautt geng-
ur líka við allt og er eiginlega eini
liturinn sem maður er ekki bund-
inn af.“ ■
HVÍTUR ÁRAMÓTAKJÓLL
„Hvítir kjólar eru alltaf flottir í rökkrinu á
nýárskvöld þegar allir karlmennirnir eru í
dökkum fötum,“ segir Málfríður Loftsdóttir
í Tískuversluninni Mondo.
Samhljómur milli
fatnaðar, fylgihluta
og förðunar
ARNAR TÓMASSON
HÁRGREIÐSLUMAÐUR
„Síðan ég var barn hefur mér alltaf fundist
nýársdagur mjög spennandi enda fór
móðir mín alltaf á ball á Hótel Sögu.“
FELIX BERGSSON
Ætlar ekki að taka þátt í
stórfjölskyldupartíi í ár.
Felix Bergsson leikari:
Gamlárskvöld af
fingrum fram
Nýársfagnaðir hafa unnið sér fastan sess í og flykkjast þúsundir landsmanna ár
hvert á slíkar skemmtanir. Klæðnaður gestanna hefur iðulega vakið mikla athygli
enda leggja menn sig alla fram um að vera sem glæsilegastir til fara.
RAUÐUR JÓLAKJÓLL
Rauði liturinn er alltaf í
tísku á jólunum að
sögn Grétu Boða. Þetta
á einkum við um varalit
og neglur en rauður
kjóll er óneitanlega
jólalegur.