Fréttablaðið - 30.12.2002, Blaðsíða 25
25MÁNUDAGUR 30. desember 2002
Ali
can
te
Ver›lækkun!
Sumarhúsaeigendur á Spáni!
Beint leiguflug til Alicante
-takmarka› sætaframbo›.
Hlí›asmára 15 • Sími 535 2100
Sala er hafin á ód‡ru
sumarfargjöldunum til Alicante.
Flugdagar eru 11. og 24. apríl, 21. maí og alla miðvikudaga í sumar.
Flogið er í beinu leiguflugi með Flugleiðum í morgunflugi.
*Verðdæmi: M. v. að 2 fullorðnir og 2 börn, 2ja-11 ára, ferðist saman. 36.630 kr. á mann
ef 2 ferðast saman . Innifalið er flug og flugvallaskattar.
Munið, að hjá Plúsferðum er unnt að greiða með Atlasávísunum 5.000 kr.
og VR ávísunum að eigin vild og lækka ferðakostnaðinn.
Félagsmenn í Félagi Sumarhúsaeigenda á Spáni fá 2.000 kr. afslátt á mann,
ef 20 sæti eða fleiri eru bókuð saman.
Láttu ekki happ úr hendi sleppa. Fyrstir bóka fyrstir fá.
Ver› frá
32.245 kr./mann *
Íslandsvinurinn Eddie Izzard:
Leggur Kanann að fótum sér
FÓLK Grínistanum Eddie Izzard
gengur allt í haginn þessa dagana
og stefnir í að árið 2003 verði hans
besta hingað til. Þeir sem sáu uppi-
stand Izzard í Loftkastalanum hér
um árið eru sjálfsagt enn grátandi
í gegnum tárin, þvílíkar voru hlát-
urrokurnar í salnum, enda maður
með eindæmum fyndinn. Izzard
hefur nú náð fótfestu í Bandaríkj-
unum og vann meðal annars til
Emmy-verðlauna fyrir uppistand-
stúr sinn, Dress to Kill, eða laus-
lega þýtt Í drápsklæðum.
Margir voru búnir að spá því að
Izzard ætti litla möguleika á því að
slá í gegn í Bandaríkjunum með
sinn undarlega en þó breska
húmor, að því er fram kemur í við-
tali við hann á vefmiðli breska rík-
isútvarpsins BBC. Izzard segir
hins vegar engin geimvísindi
liggja að baki velgengninni hjá
„þurrum“ kananum. Málið sé bara
að henda sér í djúpu laugina og
vera þolinmóður þangað til þeir
gefa sig. Auk þess sé ekki mismun-
ur á bandarískri og breskri milli-
stétt. Báðar skorti tilfinningu fyrir
kaldhæðni. Izzard segist auk þess
vonast til þess að fleiri evrópskir
skemmtikraftar fari að leggja land
undir fót því þeir hafi umheimin-
um upp á margt að bjóða.
Uppistandið er ekki það eina
sem Izzard duflar við því hann
er einnig leikari og hefur fengið
góða dóma fyrir leik sinn í leik-
ritinu A Day in the Life of Joe
Egg, eða Dag í lífi Jóa eggs, sem
sýnt hefur verið í West End í
London og verður sett upp á
Broadway í New York á næsta
ári. Auk þess leggur Izzard upp
í sex mánaða uppistandstúr um
heiminn. Það er því nóg að gera
hjá þessum fertuga breska háð-
fugli sem segir lítið vandamál
að flakka á milli grínsins og al-
varlegra dramahlutverka á
sviði. ■
Alþýðan í Bangkok:
Huggun í
spádómum
SPÁDÓMAR Áhyggjufullir Tælend-
ingar í Bangkok eyddu 37 milljón-
um dollara í spákarla og -kerling-
ar á árinu 2002. Það er 50% aukn-
ing frá árunum 1997-2001. Stjórn-
völd í Tælandi segja þessa ásókn í
spádóma til marks um vaxandi
áhyggjur Tælendinga, en efna-
hagsástand í Asíu hefur farið hríð-
versnandi á undanförnum fimm
árum og fjármál heimilanna verða
æ strembnari, sem veldur stressi
hjá hinum almenna borgara. Fólk
leitar huggunar í spádómum,
segja yfirvöld, sem spá efnahags-
bata um 5% árið 2003 miðað við
1,9% í fyrra. ■
MCKELLEN
Sir Ian McKellen verður Dumbledore í
næstu mynd um Harry Potter.
Sir Ian McKellen:
Tekur við
hlutverki
Dumbledore
KVIKMYNDIR Breski leikarinn Sir
Ian McKellen mun taka við hlut-
verki prófessors Albus Dumble-
dore af Richard Harris í þriðju
kvikmyndinni um galdrastrákinn
Harry Potter.
Orðrómur hafði verið uppi um
að hinn 63 ára gamli McKellen
myndi taka við hlutverkinu af
Harris, sem lést í október. Tökur
á nýjustu myndinni í seríunni
hefjast í febrúar á næsta ári.
Framleiðendurnir höfðu vonast
til þess að láta Harris leika í
myndinni með því að nota tölvu-
teiknaðar myndir af honum og
tökur sem ekki höfðu verið not-
aðar. Það gekk hins vegar ekki
upp og því var McKellen fenginn
til starfans. Hann fer sem kunn-
ugt er með hlutverk Gandálfs í
Lord of the Rings-þríleiknum og
ætti því að vera vel undirbúinn
fyrir hin ýmsu ævintýri með
Harry Potter. ■
Ný neðanjarðarlest
veldur vandræðum:
Stjórnlausir
farþegar
NEÐANJARÐARLEST Nýjar neðanjarð-
arlestir í Nýju-Delhí, höfuðborg
Indlands, sem voru teknar í notkun
síðastliðinn miðvikudag, hafa slegið
rækilega í gegn. En vinsældir lest-
anna eru að snúast upp í martröð
borgaryfirvalda, sem hafa birt aug-
lýsingar í blöðum og beðið borgar-
búa að nota aðrar samgönguleiðir til
að komast ferða sinna. Lestarnar
ráða við að flytja 200.000 farþega á
dag, en frá fyrsta degi hafa um 1,2
milljónir manna tekið sér far með
þeim daglega. Rafrænir lestarmið-
ar eru uppurnir þar sem fólk hefur
stolið þeim í stórum stíl sem minja-
gripum og neyðarhátalarakerfi hef-
ur verið tekið úr sambandi vegna
þess að farþegar voru stanslaust
öskrandi á lestarstjórann að fara
hraðar.
Þetta eru fyrstu neðanjarðarlest-
ar sem teknar eru í notkun í borg-
inni og fargjaldið, sem jafngildir 8
sentum, er viðráðanlegt fyrir fá-
tæklingana, sem standast ekki nýj-
ungina og fara margar ferðir á dag.
Fyrsti áfangi lestarkerfisins,
sem er 38 mílur, á að vera tilbúinn
árið 2005 og ráða við tvær milljónir
farþega á dag. ■
EDDIE IZZARD
Búinn að heilla Íslendinga og nú eru það
Bandaríkjamenn.