Fréttablaðið


Fréttablaðið - 03.01.2020, Qupperneq 6

Fréttablaðið - 03.01.2020, Qupperneq 6
Tilkynning um framboðsfrest til stjórnarkjörs Samkvæmt 37. gr. laga Félags íslenskra rafvirkja skal fara fram allsherjaratkvæðagreiðsla um kjör stjórnar og trúnaðarráðs. meðmæli minnst 18 fullgildra félagsmanna. Reykjavík 2. janúar 2020 Stjórn Félags íslenskra rafvirkja Skila ber tillögum ásamt meðmælendum fyrir þann tíma á skrifstofu félagsins. Kosið verður um formann, ritara, einn meðstjórnanda og níu fulltrúa í trúnaðarráð. Með hliðsjón af framansögðu og 34 gr. tilkynnist hér með að framboðsfrestur hefur verið ákveðinn til kl. 16.00 miðvikudaginn 15. janúar 2020. PHILIPS 55” UHD SNJALLSJÓNVARP 55PUS7354 PHILIPS GUFUBURSTI GC36120 PS4 JUST CAUSE 4 PS4JC4 GOOGLE HOME MINI GAGNVIRKUR HÁTALARI GOOGLEHMINIS -H -A GOURMIA SLOW JUICER SAFAPRESSA GSJ200 SAMSUNG GALAXY A50 SMA505BLA -PIN -WHI99.995 áður: 149.895 8.995 áður: 13.990 1.995 áður: 4.994 5.995 áður: 7.995 8.995 áður: 12.995 39.995 áður: 49.990 -33% -36% -60% -20% -25% -31% útsalan er hafin Átjan manns og hálfur milljarður dýra hefur látið lífið í gróðureldunum sem nú geisa í Ástralíu. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA ÁSTRALÍA Í það minnsta átján hafa látið lífið í skógareldunum sem geisað hafa í Ástralíu síðan í september og sautján er saknað. Eldarnir eru sagðir þeir skæðustu sem nokkurn tímann hafa orðið í álfunni. Eldarnir eru mestir í Nýja Suður-Wales og Suður-Ástralíu og hafa um fimm milljónir hektara af landi brunnið og yfir þrettán hundruð heimili eru eyðilögð. Þar hefur 381 heimili brunnið í Nýja Suður-Wales í þessari viku. Gladys Berejiklian, fylkisstjóri Nýja Suður-Wales, hefur lýst yfir sjö daga neyðarástandi á svæðinu. Þúsundir manna, bæði ferðamenn og heimamenn, hafa verið f luttir frá austurströnd Ástralíu með hjálp frá ástralska hernum sem hefur notað þyrlur, f lugvélar og skip við björgunina. Scott Morrison, for- sætisráðherra Ástralíu, segir að búast megi við því að neyðarástand muni ríkja í landinu næstu mánuði. Mikill hiti hefur verið í Ástralíu undanfarnar vikur og hefur hann farið upp í 40 gráður í öllum lands- hlutum. Síðustu daga hefur kólnað örlítið og með kólnandi veðri hefur slökkvistarf gengið betur ásamt því að fólki hefur gefist tækifæri til að kaupa inn mat og nauðsynja- vörur. Miklar raðir hafa myndast við bensínstöðvar og verslanir og mikil umferð er á hraðbrautum. Talið er að enn geisi eldar á 200 stöðum í landinu. Búist er við miklum hita í Ástral- íu á morgun ásamt hvössum vindi, en mikið rok hefur gert slökkviliði erfitt fyrir við að slökkva eldana síðustu mánuði. Berejiklian segir mikilvægt að gera ráðstafanir vegna veðursins sem spáð er og forða þurfi fólki frá svæðum þar sem mestu eldarnir loga. „Þetta eru ekki auðveldar ákvarðanir en við viljum vera viss um að hafa gripið til ýtrustu varúðarráðstafana svo að við séum viðbúin því sem gæti gerst á laugardaginn, sem gæti orðið hræðilegur dagur.“ Skógareldarnir hafa haft mikil og neikvæð áhrif á loftgæði í land- inu og hafa loftgæði í höfuðborg- inni Canberra aldrei mælst verri. Forsætisráðherrann sagði við fjöl- miðla í gær að nær ómögulegt virt- ist að ná tökum á eldunum og að óskandi væri að það færi að rigna. „Eldarnir sem hafa logað mán- uðum saman munu loga áfram þar til við fáum rigningu sem ræður við þá,“ sagði Morison. birnadrofn@frettabladid.is Enn loga gríðarlegir skógareldar í Ástralíu Enn geisa miklir skógareldar í Ástralíu og hafa í það minnsta átján manns látið lífið í eldunum. Búist er við miklum hita og roki í landinu á morgun sem áætla má að geri slökkvistarf erfiðara. Mörg þúsund manns hafa flúið eldana. 381 heimili hefur eyði lagst í Nýja Suður-Wales í þessari viku. Julian Castro hefur gagnrýnt innflytjendastefnu Trump. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA BANDARÍKIN Julian Castro, fyrrver- andi húsnæðismálaráðherra Banda- ríkjanna og fyrrverandi bæjarstjóri í San Antonio í Texas, hefur dregið til baka framboð sitt í forvali Demó- krataflokksins til forsetaframbjóð- anda í komandi kosningum. Castro tókst hvorki að afla nægilegs fjár- magns né stuðnings til að geta tekið þátt í næstu sjónvarpskappræðum frambjóðendanna. Castro greindi frá ákvörðun sinni á samskiptamiðlinum Twitter í gær þar sem hann sagðist stoltur af þátt- töku sinni í kosningunum. „Ég er svo stoltur af kosningaher- ferðinni sem við höfum átt saman. Við höfum mótað samtal um ótal- mörg mikilvæg mál, staðið upp fyrir þá sem eru berskjaldaðir og gefið þeim sem gjarnan gleymast rödd. En þegar einungis mánuður er í flokksfundinn í Iowa og aðstæður hafa breyst hef ég ákveðið að nú sé ekki okkar tími. Í dag tilkynni ég því með sorg í hjarta en fullur þakklætis að ég dreg til baka framboð mitt til forseta.“ Castro var eini frambjóðandi Demókrataf lokksins af rómönsk- um uppruna en afi hans f lutti til Bandaríkjanna frá Mexíkó í leit að betra lífi. Castro hefur talað fyrir réttindum innf lytjenda í Banda- ríkjunum í kosningabaráttu sinni og hefur hann einnig gagnrýnt núverandi forseta, Donald Trump, fyrir innflytjendastefnu hans. Eftir að Castro dró til baka fram- boð sitt eru eftir fjórtán frambjóð- endur í forvali Demókrataf lokks- ins. Forsetakosningar fara fram í Bandaríkjunum í nóvember næst- komandi. – bdj Castro dregur framboð sitt til baka 3 . J A N Ú A R 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.