Fréttablaðið - 03.01.2020, Blaðsíða 28
Bransabiblíurnar The Hollywood Reporter og Variety, fréttatímaritið Time og aðrir fjölmiðlar sem láta sig skemmtanabransann
vestan hafs og frægðarfólkið sem
þar lifir og hrærist varða eru ekkert
að bíða eftir að Óskarsverðlauna
akademían tilkynni hverja hún telji
hafa skarað fram úr í kvikmynda
leik árið 2019.
Alls konar listar, ekki síst sígildir
Topp 10, eru komnir í umferð og
þar er sama fólkið áberandi frekt til
fjörsins sem vissulega gefur ákveðn
ar vísbendingar um hvernig Óskars
tilnefningunum verður útdeilt. - þþ
Uppvakningar
og ellismellir
bregða á leik
Eddie Murphy, Antonio Banderas, Renée
Zellweger og Jennifer Lopez eru áberandi á
listum yfir bestu kvikmyndaleikara síðasta
árs og þótt tilþrif þeirra hafi komið mis-
mikið á óvart blandast þau ferska blóðinu í
Hollywood vel þegar þau minna á að lengi
er von á einum. Meira að segja Joe Pesci.
Antonio Banderas
Pain & Glory
Samstarf leikstjórans Pedro Almodóvar og leikarans Antonio Band
eras hófst 1982 þegar Banderas fékk ungur hlutverk hjá Almodóvar í
myndinni Labyrinth of Passion. Saman öðluðust þeir síðan heimsfrægð
með myndum á borð við Konur á barmi taugaáfalls frá 1988 og Bittu
mig, elskaðu mig frá 1989.
Samband þeirra minnir um margt á farsælt samstarf Martins Scorsese
og Roberts De Niro og því sérlega viðeigandi að sama ár og þeir tveir
kyrja sinn mafíósasvanasöng skuli Banderas fara á kostum undir stjórn
Almodovars í Pain & Glory þar sem hann leikur einhvers konar sýn leik
stjórans á sjálfan sig.
Banderas er oftar en ekki í efsta sæti fyrrnefndra lista fyrir túlkun sína
á farsælum leikstjóra sem á efri árum lítur um öxl yfir feril varðaðan
sigrum og sorgum.
Adam Driver og Scarlett Johansson
Marriage Story
Marriage Story hefur undanfarið, rétt eins og The
Irish man, skipt áskrifendum Netflix í tvær fylkingar
sem ýmist engjast úr leiðindum eða halda vart vatni
af hrifningu yfir skilnaðardrama ársins 2019.
Lítið er hins vegar deilt um að Adam Driver og Scar
lett Johansson sýni stórleik sem hjónin sem þrátt
fyrir ástina geta ekki haldið sambúðina út. Leikar
arnir dúkka ýmist upp saman eða sitt í hvoru lagi
á topplistunum og í því uppgjöri hallar þó frekar á
Johansson.
Jennifer Lopez
Hustlers
Áhugi slúðurpressunnar á Jennifer Lopez og áhersl
urnar í umfjölluninni hafa ítrekað orðið til þess að
það vill gleymast að þegar hún nennir er söngkonan
frábær leikkona. Nægir í því sambandi að minna á frá
bæra frammistöðu hennar í U Turn og Out of Sight.
Hún sneri síðan í fyrra aftur í toppformi í Hustlers
þar sem hún fer á kostum í hlutverki súludansmeyjar
sem sér sér leik á borði og féflettir ríka bissnisskalla
með kvenlegum þokka og klækjum.
Eddie Murphy
Dolemite is My Name
Eddie Murphy hefur risið upp jafn oft og hann hefur
verið afskrifaður og fer með himinskautum í þessari
sannsögulegu Netflixmynd um Rudy Ray Moore
sem hætti ekki fyrr en honum tókst að slá í gegn. Og
þá í gervi uppistandsgrínarans og frumrapparans
Dolemite. Óneitanlega ákveðið og sannfærandi
afturhvarf til upprunans hjá Murphy sem átti sína
uppistandsgullöld á öndverðum níunda áratugnum.
Joe Pesci
The Irishman
Aldursforsetinn á leikaralistum ársins 2019 kemur þar
víða og verðskuldað við. Joe Pesci var hættur að leika
en í krafti gamallar vináttu og glæsilegs samstarfs í
gegnum árin tókst Martin Scorsese að fá hann með í
The Irishman.
Snjallt hjá Scorsese og gott hjá Pesci að láta til
leiðast þar sem hann sýnir yfirvegaðan og óvenju
hófstilltan stórleik og skyggir fyrirhafnarlítið á stóru
spámennina Al Pacino og Robert De Niro sem eru þó
báðir í toppformi.
Joaquin Phoenix
Joker
Joker er ein umdeildasta mynd síðasta árs og engin
sátt um raunveruleg gæði hennar í sjónmáli. Joa
quin Phoenix þykir þó hvað sem öllum þrætum um
boðskap og dýpri merkingu myndarinnar líður alveg
frábær í hlutverki þessarar sérstæðu útgáfu af erki
fjanda Leðurblökumannsins.
Brad Pitt
Once Upon a Time in Hollywood
Enn eitt meistarastykkið frá Quentin Tarantino er
fullskipað stórstjörnum og frábærum leikurum en
Brad Pitt virðist þó hafa mesta vigt og hefur í krafti
þess að hann er Brad Pitt tekist að skyggja á Leon
ardo DiCaprio og aðra meðleikara. Það er helst spútn
ikið Margot Robbie sem nær að láta að sér kveða í
risastóru aukahlutverki sem vomir yfir myndinni frá
upphafi til enda.
Topp 10 hjá Time
n Antonio Banderas
Pain & Glory
n Jennifer Lopez
Hustlers
n Adam Driver
Marriage Story
n Taylor Russell
Waves
n Matthias Schoenaerts
The Mustang
n Renée Zellweger
Judy
n Joe Pesci
The Irishman
n Margot Robbie
Once Upon a Time in Hollywood
n Eddie Murphy
Dolemite Is My Name
n Kristen Stewart
Seberg
3 . J A N Ú A R 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R24 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
LÍFIÐ