Fréttablaðið - 03.01.2020, Síða 30

Fréttablaðið - 03.01.2020, Síða 30
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Svava O’Brien svava@frettabladid.is, Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is TILRAUNAMENNSKAN ER MJÖG DRÍFANDI INNAN DANSFLOKKSINS, FÓLK ER GJARNARA Á AÐ LEYFA SÉR AÐ LEIKA SÉR MEÐ EFNIÐ. ÞETTA ER NÁTTÚRULEGA BARA TUNGUMÁL LÍKAMANS. ÉG ER MIKILL AЭ DÁANDI ÍSLENSKA DANSFLOKKSINS OG HEF LENGI VERIÐ. ÞETTA ER ÞVÍ ALGJÖR DRAUMASTAÐA, AÐ FÁ AÐ KOMA SVONA INN Í EITTHVAÐ SEM MAÐUR HEFUR LÍKA BRENNANDI ÁHUGA FYRIR. STJÓRNANDI & KYNNIR: Sigurður Flosason GESTASÖNGVARAR: KK Stína Ágústsdóttir Björgvin Franz Gíslason NÝÁRSTÓNLEIKAR Í ELDBORG 5. JANÚAR KL. 20.00 Einar Hraf n Stefáns-son er líklega f lestum kunnur sem meðlimur hljómsveitanna Vök og Hatara. Þegar hann byrjaði ungur í tón- listinni kviknaði hjá honum áhugi á markaðssetningu lista, enda þarf ungt tónlistarfólk að hafa sig allt við til að koma sjálfu sér á framfæri. Svo fór að Einar settist á skólabekk í Háskóla Íslands og lærði viðskipta- fræði. Hann hefur nú tekið við stöðu markaðsstjóra Íslenska dans- flokksins, en hann segir starfið full- kominn kokteil af tveimur helstu áhugamálum hans. Brennandi áhugi „Ég sá stöðuna auglýsta og fannst hún algjörlega tvinna saman mín helstu áhugamál, list og markaðs- setningu lista. Ég er mikill aðdáandi Íslenska dansflokksins og hef lengi verið. Þetta er því algjör drauma- staða, að fá að koma svona inn í eitt- hvað sem maður hefur líka brenn- andi áhuga fyrir,“ segir hann. Einar byrjaði að gera tónlist þrettán ára gamall. „Þá fann ég einhverja ástríðu fyrir því að koma hlutunum á framfæri og gera það vel. Það verður svo til þess að ég fer í viðskiptafræði í Háskóla Íslands, en ég útskrifaðist þaðan 2015. Það er gaman að geta nýtt eitthvað svona, sem er í grunn- inn frekar tölfræðilegt, og blandað því við listina. Látið þetta vinna saman, það verður svo ótrúlega skemmtilegt „fusion“,“ segir Einar. Nú þegar uppselt Bækistöðvar Íslenska dansflokksins eru í Borgarleikhúsinu. „Í grunninn eru átta dansarar í f lokknum en stundum fengnir fleiri í verkefni. Fyrsta sýning ársins er verkið Rythm of Poison, en það verður frumsýnt 28. febrúar. Verkið er eftir hina finnsku Elinu Pirinen, en hún er nýkomin til landsins til að æfa verkið. Það er nú þegar orðið uppselt á frumsýningu þess. Það verk er algjör tjáningarveisla. Í apríl verður svo frumsýnt verkið AIŌN í Eldborg í Hörpu. Það er eftir Ernu Ómarsdóttur, listrænan stjórnanda dansflokksins, og tónskáldið Önnu Þorvaldsdóttur. Verkið er f lutt í samstarfi við Sinfóníuhljómsveit Íslands,“ segir Einar. Kærasta Einars, Sólbjört Sig- urðardóttir, er dansari og dansaði meðal annars með Hatara í Euro- vision. Einar hefur því ágætis inn- sýn í líf og list dansara. „Hún hefur verið dugleg að draga mig á danssýningar. Ég hef fengið að kynnast dansi í öðru ljósi en ég hefði gert með því að upplifa hann með henni. Svo hef ég líka lært á samvinnu með dönsurum í gegnum tíðina, eins og með Hatara. Tveir núverandi dansarar í f lokknum hafa dansað með Höturum svo maður hefur lært af því.“ Vantar danshús Einar segir að Íslenski dansflokkur- inn sé í raun form af frumkvöðuls- starfi. „Þá innan sviðslistageirans. Það er mun sjaldgæfara að taka eldri verk, þetta er meiri nýsköpun en annars staðar í sviðslistum. Til- raunamennskan er mjög drífandi innan dansflokksins, fólk er gjarn- ara á að leyfa sér að leika sér með efnið. Þetta er náttúrulega bara tungumál líkamans,“ segir Einar. Þó að næstu mál á dagskrá séu vorsýningarnar brennur alltaf eitt málefni heitar en önnur í hjörtum íslenskra dansara og þeirra sem að Íslenska dansflokknum koma. „Já, það vantar danshús. Það er bráð þörf á almennilegu húsi fyrir danslistir á Íslandi.“ Miða á sýningar flokksins er hægt að nálgast á id.is. steingerdur@frettabladid.is Alltaf haft áhuga á markaðssetningu lista Einar Hrafn úr hljómsveitunum Vök og Hatara tók við starfi mark- aðsstjóra Íslenska dansflokksins um áramótin. Hann segir stöðuna sameina sín helstu áhugamál, listir og markaðssetningu lista. Einar fékk fékk áhuga á markaðssetningu lista þegar hann byrjaði í tónlist sem unglingur. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR 3 . J A N Ú A R 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R26 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.