Fréttablaðið - 07.01.2020, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 07.01.2020, Blaðsíða 16
Dakarrallið hófst um helgina í Sádi-Arabíu í fyrsta skipti í sögu rallsins. Keppnin hófst í Jedda og eftir að ökutækin 334, sem taka þátt í fimm flokkum ökutækja, hafa lokið tæplega 8.000 kíló- metra akstri á 13 dögum endar það föstudaginn 17. janúar í bænum Qiddiyah, rétt fyrir utan höfuðborgina Ríad. Meðal keppanda í Dakarrallinu í Sádi-Arabíu er enginn annar en fyrrverandi heimsmeistari Formúlu 1, Fernando Alonso. Spánverjinn, sem er orðinn 38 ára, segir að þetta rall verði erfiðasta þolraun hans í mótorsporti hingað til. Alonso varð heimsmeistari í Formúlu 1 árið 2005 og 2006 og vann 24 stunda þolkappaksturinn tvö ár í röð fyrir Toyota 2018 og 2019. Hann á því aðeins eftir að vinna Indianapolis 500 til að ná hinni þreföldu kórónu mótor- sportsins, en eini ökumaðurinn sem náð hefur þeim árangri er Bretinn Graham Hill. Mun Alonso reyna við það verkefni síðar á árinu. Fernando Alonso mun keppa í Dakar fyrir Toyota Gazoo keppnisliðið á sérútbúnum Hilux. Vélin í keppnisbílnum er aftur í og er fimm lítra V8-vél sem skilar 385 hestöflum. Það sem skiptir þó meira máli í keppni sem þessari er hvernig snúningsvægi hennar er, en af nógu er að taka með 620 newtonmetra til að spila úr og ætti Hilux-jeppinn að ráða vel við risa- stórar sandöldurnar. Það er ekki aðeins aksturinn sem er erfiður í keppni sem þess- ari því að stór hluti af því að ná árangri í Dakarrallinu er að rata. Til þess að hjálpa Alonso við það verkefni er fimmfaldur sigurverari Dakarrallsins í mótorhjólaflokki, enginn annar en Marc Coma, og ef einhver getur ratað gegnum sand- hóla og vegleysur er það einmitt hann. Um 20 ökuþórar úr Formúl- unni hafa reynt við Dakarrallið en Alonso er sá eini sem landað hefur heimsmeistaratitli. Sá fyrsti þeirra til að vinna Dakarrallið var Jacky Ickx sem vann 1983 og varð annar 1986 og 1989. Að vinna Dakar- rallið er ekki auðvelt verkefni eins og nífaldur heimsmeistari í ralli, Sebastien Loeb, getur vitnað um. Hann keppti 2016-2019 og þó að hann hafi unnið 13 sérleiðir náði hann aldrei að vinna sjálft rallið þrátt fyrir alla reynslu sína. Þrátt fyrir að hafa átt í erfiðleikum í gær vegna skemmda á bíl sínum er ekki hægt að afskrifa Alonso enda var hann meðal efstu keppenda þegar það gerðist. Hann tapaði tveimur stundum vegna viðgerða og er í 61. sæti eins og er. w w w .fr et ta bl ad id .is Umsjón blaðsins NjallGunnlaugsson njall@frettabladid.isBílar Auglýsingar: Atli Bergmann atli@frettabladid.is | Sími 550 5657 Útgáfufélag: Torg ehf. | Kalkofnsvegur 2 | 101 Reykjavík | Sími 550 5000 700 600 500 400 300 200 100 0 n Til almennings n Til bílalega n Heildarsala Sala nýrra bíla 2019 Toyota og Alonso saman í Dakar Fernando Alonso er hæfileikaríkur ökumaður en hvað það dugar honum þegar á sandhólminn er komið sjáum við á næstu dögum. Toyota Hilux keppnisbíllinn er sérsmíðað tryllitæki með tæplega 400 hestafla V8-vél aftur í bílnum. Til landsins er komið eitt eintak af Honda E raf bílnum úr for- framleiðslu á honum og er hér um sýningareintak að ræða. Ekki verður því hægt að reynsluaka þessum bíl enn sem komið er. Að sögn Jónasar Kára Eiríkssonar hjá Öskju verða tvær gerðir bílsins í boði. „Báðar útfærslur eru mjög vel búnar en þetta er fyrsti rafmagns- bíll Honda og er tæknilega mjög fullkominn. Hann mun kosta frá 3.950.000 krónum og verður dýrari útfærslan á 4.290.000 krónur,“ segir Jónas Kári. Drægi Honda E er 220 km samkvæmt WLTP-staðl- inum enda bíllinn hugsaður sem borgarbíll. Báðir bílarnir verða með þremur skjáum í mælaborði, 8,8 tommu skjá fyrir framan öku- mann en tvo 12,3 tommu vinstra megin í mælaborðinu. Auk þess eru svo tveir minni sem sýna aftur með hliðum bílsins enda engir hliðarspeglar á Honda E. Í dýrari útfærslunni kemur hann svo með 360° myndavél, stafrænum bak- sýnisspegli, sjálfvirkri stæðalögn, 376 vatta hljóðkerfi með bassa- keilu og 154 hestöfl í stað 136. Fyrstu bílarnir verða afhentir væntanlegum kaupendum í júlí. Honda NSX er sannkallaður ofurbíll enda átti hann að keppa við Ferrari 348 og heimsmeistarinn Ayrton Senna kom að hönnun undirvagnsins. Sá bíll þótti framúrstefnulegur þegar hann kom fram á sjónarsviðið á miðjum níunda áratugnum, með yfirbygg- ingu og grind úr áli. Í dag er bygg- ingin flóknari, með miðjugrind úr áli ásamt tveimur aukagrindum fyrir fjöðrun og vél. Dempararnir eru segulstýrðir í tvöfaldri klafa- fjöðrun. Vélin er fyrir miðjum bíl, 3,5 lítra V6-bensínvél með tveimur forþjöppum. Vélin fer á rauða strikið við 7.500 snúninga og skilar 500 hestöflum og 550 newtonmetra togi. Þá er aflið ekki upptalið því að við vélina er 47 hestafla rafmótor og svo fyrir aftan hann níu þrepa sjálfskipting með tveimur kúplingum. Að framan eru svo tveir 36 hestafla rafmótorar, einn við hvort hjól. Samtals er bíll- inn því um 600 hestöfl og er aðeins 3,3 sekúndur í hundraðið sem er ansi gott fyrir sex strokka bíl. Þeir sem vilja skoða þennan bíl í fyrsta skipti á Íslandi geta mætt í Honda umboðið á Fosshálsi áður en hann fer aftur til síns heima næstu daga. Tveir frumlegir á Fosshálsinum Honda E vekur athygli fyrir þann mikla tæknibúnað sem í honum er, eins og skjáum hlaðið mælaborðið. Vélin í Honda NSX er V6 bensínvél en með hjálp rafmótora skilar bíllinn tæpum 600 hestöflum. Sala nýrra fólksbíla á árinu 2019 var nokkuð minni en 2018 en í heildina seldust 11.728 nýir fólks- bílar árið 2019 en 17.976 bílar árið 2018. Samdráttur milli ára var 34,8% en hafa ber í huga að 2018 var fyrir ofan meðallag söluára eftir aldamót. Vinsælasta einstaka vörumerkið var Toyota með 16,8% hlutfall, þar á eftir fylgdu Kia með 12,6% og Hyundai með 6,8%. Þegar sölutölur ársins 2019 eru skoðaðar út frá því hver var vin- sælasti bíllinn kemur ekki á óvart að Toyota-bíll tróni þar á toppn- um en nýr RAV4 var vinsælastur með 696 seld eintök. Toyota RAV4 var líka ofarlega í valinu á bíl ársins í ár og vann flokk jepplinga. Í öðru sæti varð Dacia Duster með 552 bíla og MMC Outlander þriðji með 418 eintök. Toyota var með þrjá bíla í topp 10 en Land Cruiser varð í fjórða sæti með 384 bíla, en til að eiga fyrir einum slíkum þarf að punga út að lágmarki 8.480.000 krónum. Toyota Yaris var svo fimmti en af honum seldist 371 bíll. Dæmið breytist svo aðeins þegar skoðað er hvaða bílar eru keyptir af almenningi og hvaða bíla hinar fjölmörgu bílaleigur landsins kaupa, en þær keyptu 41,5% allra bíla á árinu 2019. Vin- sælasti bílaleigubíllinn er Dacia Duster en hann kemst ekki einu sinni inn á listann yfir 10 vin- sælustu bíla meðal almennings. Þar fer MMC Outlander fremstur í f lokki með 397 bíla selda til ein- staklinga. Toyota RAV4 er þar fast á hæla honum í öðru sæti með 347 eintök og Hyundai Kona jepp- lingurinn þriðji með 208 bíla. Toyota RAV4 er einnig í öðru sæti þegar kemur að bílaleigum með 346 bíla og Land Cruiser salan er greinilega mest bílaleigumegin en þær keyptu 234 slíka. Toyota RAV4 mest seldi bíllinn 2019 RA V4 DU ST ER OU TL AN DE R LA ND C RU IS ER YA RI S SP OR TA GE GO LF CE ED QA SH QA I CR -V 2 BÍLAR 7 . JA N ÚA R 2 0 2 0 Þ R I ÐJ U DAG U R

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.