Fréttablaðið - 07.01.2020, Blaðsíða 36
Ragnar Bragason státar sem leikstjóri af úrvals-kvikmyndum á borð við Börn, Foreldra og Bja r n f reða r son að ógleymdum Vaktar-
seríunum vinsælu sem einmitt gátu
af sér síðastnefndu bíómyndina.
Hann reyndi fyrir sér með góðum
árangri á leiksviði með Gullregni
2012 en verkið hlaut átta tilnefn-
ingar til Grímuverðlaunanna sem
Ragnar hlaut síðan sem besti leik-
stjóri þess árs.
Gullregn fjallar um kerfisfræðing-
inn Indíönu sem býr í Fellahverfinu
og lifir á bótum þótt hún sé alheil-
brigð. Þar ræktar hún gullregn og
hatast við útlendinga þangað til
sonur hennar birtist með pólska
kærustu og stoðir heimsmyndar
hennar bresta.
Kunnugleg andlit úr menningar-
lífinu voru áberandi á hátíðarfrum-
sýningu myndarinnar í Háskóla-
bíói en almennar sýningar hefjast á
föstudaginn og í Bíó Paradís kveður
við þau nýmæli að myndin verður
sýnd á víxl með pólskum og enskum
texta en íslensk bíómynd í fullri
lengd hefur ekki áður verið frum-
sýnd með pólskum texta á landi hér.
toti@frettabladid.is
Gullregn á Hagatorgi
Gullregn, frumraun Ragnars Bragasonar í leikhúsi, gerði storm-
andi lukku á sínum tíma. Samnefnd kvikmynd verður frumsýnd
í vikunni en ekki var laust við að eftirvæntingar gætti í andlitum
gesta á hátíðarfrumsýningunni í Háskólabíói á sunnudagskvöld.
Hallgrímur Ólafsson, Sigrún Edda Björnsdóttir og Halldóra Geirharðsdóttir sem öll leika í Gullregni voru í góðum
gír með Ragnar leikstjóra og Guðna Th. Jóhannesson, forseta Íslands, á milli sín. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Leikaraparið Sveinn Geirsson og Tinna Hrafnsdóttir brostu sínu blíðasta.
Hagfræðingurinn Rósa Björk Sveinsdóttir og leikarinn Jóhannes Haukur
Jóhannesson létu sig ekki vanta á hátíðarfrumsýninguna á Gullregni.
Skarphéðinn Guðmundsson, dagskrárstjóri RÚV, og Hrund Þrándardóttir
sálfræðingur könnuðu stöðuna hjá kerfisfræðingnum í Fellunum.
Hjónin Ingibjörg Ösp og Magnús Geir voru að sjálfsögðu mætt en það var ein-
mitt í leikhússtjóratíð Magnúsar Geirs sem Ragnar frumsýndi Gullregnið.
Fréttasysturnar Lára og Alma Ómarsdætur í stuðinu.
Lena Viderø og Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir sem störf-
uðu í eina tíð saman á tímaritinu Nýju Lífi brostu breitt.
7 . J A N Ú A R 2 0 2 0 Þ R I Ð J U D A G U R20 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
LÍFIÐ