Fréttablaðið - 07.01.2020, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 07.01.2020, Blaðsíða 26
Með örfáum undantekningum notast f lestir raf bílar við einfalda eins gírs skiptingu til að senda afl rafmótorsins til hjólanna. Leik- reglur í þessari deild gætu þó verið að breytast því að ZF, tæknirisinn í framleiðslu sjálfskiptinga, er að kynna til sögunnar nýja tveggja þrepa skiptingu. Skiptingin samanstendur í raun og veru af 140 kW rafmótor og tveggja gíra kassa. Rafmótorar hafa hingað til hentað best í borgarakstri þar sem minni hraði og tíðari hemlun, sem felur í sér niðurhröðun rafmótorsins, gerir honum kleift að endurhlaða rafhlöðuna. Á meiri hraða til lengri tíma þegar rafmótorinn snýst hratt reynir hann mun meira á rafhlöðuna vegna meiri loftmót- stöðu og viðnáms dekkjanna. Með nýja gírkassanum munu bílar með tveggja hraða ZF- skiptingunni skipta upp um gír þegar komið er yfir 70 km á klst. Við það lækkar snúningshraði raf- mótorsins og hann reynir minna á sig og nýtir betur snúningsvægi sitt. Hingað til hafa framleið- endur raf bíla þurft að velja á milli snúningsvægis á minni hraða eða endingar á meiri hraða og læsa þá ákvörðun í gírhlutfalli raf bílsins. Þessi nýja lausn mun því breyta því og hafa jákvæð áhrif á þætti eins og drægi og afköst. Fyrir lönd eins og Norður-Ameríku og Ástralíu skiptir þetta miklu máli þar sem mikið er um langar vega- lengdir. Eflaust mun þróunin leiða til f leiri gíra eins og í skiptingum með brunahreyflum, þar sem ZF-skiptingar eru nú með níu þrep mest. Það sem mun þó mest muna um er lægri kostnaður fyrir svona skiptingar með fjöldaframleiðslu þýska risans ZF. Ný skipting fyrir rafbíla RAFMAGNAÐUR AMPERA-E Nýr Opel Allt að 423 km. drægni* Opnunartímar Virka daga 9–18*Samkvæmt wltp staðli. Kynntu þér þína drægni á opel.is • Kemst lengra en þú heldur • Rúmar meira en þú heldur • Er sneggri en þú heldur Verð frá 4.990.000 kr. Verð á mánuði frá 139.900 kr. í langtímaleigu Laugardaga 12–16 Opel á Íslandi Reykjavík | Krókhálsi 9 Reykjanesbæ | Njarðarbraut 9 100% RAFMAGN Næsta kynslóð rafmótora frá breska tæknifyrirtækinu Swindon eru fréttir þegar kemur að framleiðslu raf bíla. Fyrir- tækið mun frumsýna í júni nýjan rafmótor sem kallast einfaldlega HPD. Skammstöfunin stendur einfaldlega fyrir „High Power Density“ og heitir það vegna þess að mótorinn verður sá öf lugasti í boði miðað við þyngd. HPD- vélin er aðeins 70 kíló og skilar að hámarki 107 hestöf lum og var hönnuð til að komast ofan í vélar- sal Mini-bíls. Sá hluti mótorsins sem sér um endurhleðslu er ofan á og þar af leiðandi er samstæðan minni um sig. Öflugri kynslóð rafmótora frá Swindon Rafmótorinn nýi er minni um sig en samt 107 hestöfl og aðeins 70 kg. Mazda-bílamerkið vill halda rafhlöðum bíla sinna af minni gerðinni til að minnka kolefnisfót- spor raf bíla sinna. Mazda MX-30 raf bíllinn er væntanlegur í sumar en hann verður með 35 kWh raf- hlöðu og rafmótor hans mun skila 141 hestafli og hafa um 210 km drægi. Mazda gengur svo langt að segja að þeir muni aldrei framleiða raf bíl með stórri rafhlöðu þar sem slíkir raf bílar séu jafnvel síður vistvænni en Skyactiv-dísilbíll yfir líftíma sinn. Benda þeir á japanska rannsókn því til staðfestingar. Mazda MX-30 raf bílsins er þó varla að vænta hingað til lands fyrr en á árinu 2021. Mazda á móti stórum rafhlöðum í bílum sínum Mazda MX-30 rafbíllinn var frum- sýndur á Bílasýningunni í Tókýó í nóvember. Tveggja þrepa skiptingin skiptist í 140 kW rafmótor og gírkassann sjálfan sem kemur í einu stykki. 12 BÍLAR 7 . JA N ÚA R 2 0 2 0 ÞRIÐJUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.