Fréttablaðið - 07.01.2020, Blaðsíða 33
Færsla Hringbrautar, Skógarhlíð
Á fundi skipulags- og samgönguráðs þann 6. nóvember 2019 og borgarráðs Reykjavíkur þann 14.
nóvember 2019 var samþykkt að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Færslu Hringbrautar vegna
afmörkunar nýrrar lóðar fyrir smáhýsi að Skógarhlíð. Velferðarsvið Reykjavíkurborgar leitast eftir að koma
fyrir smáhýsum á völdum stöðum í borginni sem búsetuúrræði fyrir skjólstæðinga sína. Í breytingunni felst
að koma fyrir allt að 3 smáhýsum á nýrri lóð. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
Veðurstofuhæð, Bústaðavegur
Á fundi skipulags- og samgönguráðs þann 6. nóvember 2019 og borgarráðs Reykjavíkur þann 14.
nóvember 2019 var samþykkt að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Veðurstofuhæðar vegna
afmörkunar nýrrar lóðar fyrir smáhýsi að Bústaðavegi. Velferðarsvið Reykjavíkurborgar leitast eftir að koma
fyrir smáhýsum á völdum stöðum í borginni sem búsetuúrræði fyrir skjólstæðinga sína. Í breytingunni felst
að koma fyrir allt að 5 smáhýsum á nýrri lóð. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
Borgartúnsreitur Vestur 1.216, Guðrúnartún
Á fundi skipulags- og samgönguráðs þann 6. nóvember 2019 og borgarráðs Reykjavíkur þann 14.
nóvember 2019 var samþykkt að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Borgartúnsreits Vestur 1.216
vegna afmörkunar nýrrar lóðar fyrir smáhýsi að Guðrúnartúni. Velferðarsvið Reykjavíkurborgar leitast eftir að
koma fyrir smáhýsum á völdum stöðum í borginni sem búsetuúrræði fyrir skjólstæðinga sína. Í breytingunni
felst að koma fyrir allt að 3 smáhýsum á nýrri lóð. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
Tillögurnar má einnig nálgast á skjá og tölvu í þjónustuveri Reykjavíkurborgar að Borgartúni 12-14, 1.
hæð, virka daga kl. 8:20 – 16:15 frá 7. janúar 2020 til og með 18. febrúar 2020. Einnig má sjá tillögurnar
á vefnum, www.reykjavik.is, skipulag í kynningu. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir
til að kynna sér tillögurnar. Ábendingum og athugasemdum við tillögurnar skal skila skriflega til
skipulagsfulltrúa eða á netfangið skipulag@reykjavik.is, eigi síðar en 18. febrúar 2020. Vinsamlegast
notið uppgefið netfang fyrir innsendar athugasemdir með tölvupósti.
Reykjavík 7. janúar 2020
Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur
Skrifstofa borgarstjóra
Skrifstofa borgarstjóra
Borgarverkfræðingur
Borgarverkfræðingur
Hagdeild
Hagdeild
Dagvist barna
Dagvist barna
Reykjavíkurborg
Umhverfis- og skipulagssvið
Auglýsing um tillögur að breytingu
á deiliskipulagi í Reykjavík
Í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, eru hér
með auglýstar tillögur að breytingu á deiliskipulagi í Reykjavík.
Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík, sími: 411 1111, www.reykjavik.is
Grasið græna, hassið væna
TÓNLIST
Stórsveit Reykjavíkur flutti
sveiflualdartónlist
Eldborg í Hörpu
Sunnudaginn 5. janúar
Stjórnandi: Sigurður Flosason
Fram komu: Stína Ágústsdóttir,
KK, Björgvin Franz Gíslason og
dansarar frá Sveiflustöðinni
Einhver brandarakarl sagði að saxó-
fónar væru í rauninni ásláttarhljóð-
færi. Það ætti að berja þá með hömr-
um. Stórum hömrum. Saxófónarnir
geta vissulega verið skerandi, en það
voru þeir þó ekki á tónleikum Stór-
sveitar Reykjavíkur á sunnudags-
kvöldið. Stjórnandinn var líka einn
besti saxófónleikari landsins, Sig-
urður Flosason.
Sigurður kynnti jafnframt hvert
atriði tónleikanna, og hann var haf-
sjór af fróðleik. Efnisskráin saman-
stóð af svokallaðri sveif lutónlist
frá fyrri hluta aldarinnar sem leið.
Þekktasta tónlistarfólkið sem til-
heyrir þessari stefnu er m.a. Count
Basie, Ella Fitzgerald, Glenn Miller,
Benny Goodman og Artie Shaw.
Sá síðastnefndi var helvítis drullu-
sokkur að sögn Sigurðar. Hann var
með átta mislukkuð hjónabönd á
samviskunni, fór illa með allar eigin-
konurnar og fleiri til.
Drukkin tónlist
Lögin á tónleikunum voru yfirleitt
býsna fjörug, og sum voru meira að
segja ögn tilraunakennd. Hassvím-
an var sennilega umfjöllunarefnið í
laginu Chant of the Weed eftir Don
Redman. Það byggðist að hluta til á
svokölluðum heiltónaskala. Hann
er alltaf dálítið annarlegur, og fyrir
bragðið var heildarsvipurinn á tón-
listinni ekki beinlínis edrúlegur.
Útsetningin einkenndist af fjöl-
breytileika, málmblásarar og tré-
blásarar kölluðust á, sem var smekk-
lega útfært. Útkoman var mögnuð.
Þrír söngvarar tróðu upp með
sveitinni. Stína Ágústsdóttir söng
Tisket, a Tasket sem Ella Fitzgerald
gerði frægt. Stína söng með afbrigð-
um fallega. Alveg rétta stemningin
var í söngnum, hann var dillandi
fjörugur, örlítið barnslegur og ávallt
gæddur réttu litbrigðunum. Tvö lög
sem Marylin Monroe söng svo eftir-
minnilega, Diamonds are a Girl’s
Best Friend og I Want to be Loved by
You, voru ekki síðri. Þau voru full af
smitandi innlifun og gleði. Þannig
mætti áfram telja.
Röddin of hörð
Björgvin Franz Gíslason var ekki
eins sannfærandi. Hann var bestur
í laginu Minnie the Moocher, sem
hann söng með tilþrifum, en ýmis
Sinatra-lög náðu aldrei flugi. Röddin
var of hörð, söngstíllinn stirður. KK
var miklu betri, enda gamalt brýni í
svona tónlist. Lögin sem hann söng
virkuðu, flutningurinn var áreynslu-
laus, röddin sjarmerandi hrjúf,
sviðsframkoman heillandi.
Dansarar úr danshópnum Sveiflu-
stöðinni voru augnayndi. Dansinn
þeirra var hrár og hömlulaus. Fyrsta
dansatriðið, sem var sóló, minnti
mjög á Josephine Baker, en hún
gerði allt brjálað þegar hún dans-
aði næstum nakin í París árið 1927.
Dansinn nú gaf tónlistinni líf, og
ekki bara það, maður fór hreinlega
aftur í tímann, slík var stemningin.
Hér mætti halda að söngvararnir
og dansararnir hafi verið í aðalhlut-
verki, en svo var ekki. Um helmingur
dagskrárinnar var „aðeins“ tónlist
með Stórsveitinni sjálfri, og hvert
atriði var öðru betra. Í lokin brast á
ægilegur trumbusláttur í laginu Sing,
Sing, Sing (With a Swing), en þar fór
trommuleikarinn á kostum. Mig
langaði þá mest til að standa upp
og stíga trylltan dans, og svo var um
fleiri eins og greinilegt var. Þetta var
flott. Jónas Sen
NIÐURSTAÐA: Stórfenglegir tón-
leikar með líflegri tónlist, frábær-
lega leikin. Söngurinn var yfirleitt
góður og dansinn líka.
Lögin á tónleikunum voru yfirleitt býsna fjörug, segir Jónas Sen.
Hvað?
Hvenær?
Hvar?
Þriðjudagur
hvar@frettabladid.is
7. JANÚAR 2020
Hvað? Eðlisfræði alheimsins og
fjarreikistjörnur
Hvenær? 12.00
Hvar? Þjóðminjasafnið
Eðlisfræðingarnir Lárus Thor-
lacius og Guðmundur Kári Stef-
ánsson kynna Nóbelsverðlauna-
hafana í eðlisfræði 2019.
Hvað? Fyrsta kúnstpása ársins
Hvenær? 12.15
Hvar? Norðurljós, Hörpu
Barítónsöngvarinn Jóhann
Schram Reid og píanóleikarinn
Aladaar Racz f lytja ljóðasöngva.
Enginn aðgangseyrir.
Hvað? Kvartettinn Smekksatriði
Hvenær? 20.30
Hvar? Kex Hostel, Skúlagötu 28
Hvað? Tango milonga
Hvenær? 20.30-22.30
Hvar? Iðnó
Argentínskur tangó dunar. Dj
er Kristinn og gestgjafi er Svan-
hildur Ó.
M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 17Þ R I Ð J U D A G U R 7 . J A N Ú A R 2 0 2 0
DAGSKRÁIN
á Hringbraut
FRÉTTIR, FÓLK &
MENNING á Hringbraut
og hringbraut.is/sjonvarp
Fylgstu með!
Alltaf á fimmtudögum
kl. 20.00 - Stjórnandi
þáttarins er Sigmundur
Ernir Rúnarsson.
MANNAMÁL
Mannamál er persónulegur viðtalsþáttur
þar sem áhugaverðir og jafnvel þjóðkunnir
Íslendingar segja frá lífi sínu og starfi á
opinskáan og hispurslausan hátt.
Frétta- og
umræðu þátturinn 21
alla virka daga
klukkan 21.00