Fréttablaðið - 07.01.2020, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 07.01.2020, Blaðsíða 24
10 BÍLAR 7 . JA N ÚA R 2 0 2 0 ÞRIÐJUDAGUR Komnir eru fram á sjónarsviðið tveir tyrkneskir rafbílar sem verða settir á markað eftir tvö ár. Tyrkneska raf bílamerkið TOGG frumsýndi seint á liðnu ári tvo fyrstu raf bíla sína sem eru nánast tilbúnir til framleiðslu. TOGG stendur fyrir Turkiye'nin Otomo- bili Girisim Grubu sem þýðir ein- faldlega Tyrkneska bílasamsteyp- an en meðal þeirra sem koma að verkefninu er tyrkneska ríkið. Sá sem frumsýndi bílana var enginn annar en Erdogan Tyrklandsfor- seti en ríkið styður framleiðsluna um 450 milljarða króna sem þýðir að TOGG mun geta framleitt allt að 175.000 bíla á ári. Fyrsti bíllinn á markað verður jepplingur sem kemur á markað árið 2022 bæði fyrir Evrópu- og Tyrklandsmarkað. Þótt útlit jepplingsins minni talsvert á Mercedes-Benz EQC er ljóst að tækni hans verður í fáu ábótavant. Hönnun ytra byrðis kemur frá Pininfarina að nokkru leyti. Tvær gerðir rafhlaða verða í boði sem bjóða upp á drægi frá 300-500 km. Hægt verður að velja um afturdrif með 200 hestöfl að lágmarki eða fjórhjóladrif með allt að 400 hestöflum. Í þeirri út- gáfu verður bíllinn 4,8 sekúndur í hundraðið en 7,6 sekúndur með afturhjóladrifinu. Ekkert hefur verið gefið upp um stærð rafhlöð- unnar að öðru leyti en miðað við drægi og að hægt verði að hlaða bílinn upp í 80% hleðslu á hálftíma má búast við rafhlöðu lítið undir 80 kWh. TOGG lofar líka hálfsjálf- keyrandi búnaði frá upphafi sölu bílanna og mun uppfærsla fara fram í gegnum netið. Það sem er þó merkilegt við bílinn er þessi mikli stuðningur tyrkneska ríkisins við verkefnið. Sala raf bíla þar er talsvert undir sölu raf bíla í öðrum löndum Evrópusambandsins, en þar er sala raf bíla um 2% allra bíla. Þar eru það bílar eins og Tesla Model 3, Nissna Leaf og Renault Zoe sem leiða sölutölur. Með auknu framboði er líklegt að sala þeirra muni aukast talsvert og TOGG vill eflaust eiga sinn hluta kökunnar, sérstaklega í heimalandinu. Búast má við talsverðri f lotasölu til stofnana tyrkneska ríkisins til að hjálpa til með söluna. Eflaust munum við sjá ívilnanir þar líka og þá jafnvel sérstakar ívilnanir fyrir kaupendur TOGG í Tyrk- landi. Hvort það muni svo hjálpa TOGG í Evrópu með lægra verði sem verður samkeppnishæft við kínverskan innflutning verður svo að koma í ljós. Athyglisvert er að tyrkneska ríkið skuli styðja jafn vel við framleiðslu TOGG-raf- bílanna og raun ber vitni. Gæti það jafnvel haft áhrif á verð bílanna þegar fram í sækir og hvort þeir verði sam- keppnishæfir á Evrópu- markaði. Tyrkland styður við bakið á innlendri rafbílaframleiðslu Nú um áramótin tóku ný umferðarlög gildi sem höfðu verið lengi í smíðum, en vinna við þessa útfærslu laganna hófst 2007. Sam- hliða útgáfu laganna voru ný sekt- arákvæði samþykkt um áramót í nýrri reglugerð. Samkvæmt henni mega sektir vegna umferðarlaga- brota nema 20-500.000 krónum eftir eðli og umfangi brots. Við skulum aðeins skoða nokkur ný atriði úr nýju lögunum og hvaða sektir eiga við þau atriði. Lögboðin ökuljós Í nýjum umferðarlögum segir að við akstur vélknúins ökutækis skuli lögboðin ökuljós ávallt vera tendruð. Í skilgreiningu umferðar- laga kemur fram að það eru lög- boðin aðalljós eða dagljós sem loga að framan og að aftan á ökutæki. Því er komin heimild til að sekta þá sem keyra með aðeins dagljós og engin ljós að aftan, og er sekt við því broti 20.000 krónur. Hættuljós og viðvörunarþríhyrningur Nú er það orðin skylda að nota bæði viðvörunarþríhyrning og hættuljós þegar ökutæki hefur stöðvast á þeim stað sem ekki má leggja því. Einnig er nú leyft að nota hættuljós þegar ökumaður þarf að draga snögglega úr hraða svo að það geti valdið hættu. Sekt við því að nota ekki hættuljós eða viðvörunarþríhyrning á réttan hátt er 20.000 krónur. Snjalltækjanotkun Stjórnanda ökutækis er við akstur óheimilt að nota farsíma, snjall- tæki eða önnur raftæki er truflað geta aksturinn, án handfrjáls bún- aðar. Það gefur lögreglu ansi víð- tæka heimild til að skilgreina hvað telst snjalltæki en gera má ráð fyrir að notkun spjaldtölvu, leiðsögu- tækja og annarra nettengdra tækja sé bönnuð við akstur. Sekt við notkun snjalltækja án handfrjáls búnaðar er áfram 40.000 krónur. Óhreinkun vegar Í nýju lögunum er lagt blátt bann við að fleygja sorpi úr ökutæki, og gildir þá einu hvort það sé á vegi eða í náttúrunni. Valdi það hættu fyrir aðra vegfarendur er sektin 30-250.000 krónur en ef það óhreinkar aðeins veg eða náttúru er sektin 10-50.000 krónur. Forgangur eigi virtur Forgangur er nú betur skilgreindur í lögunum en áður og gagnvart hvaða ökutækjum hann gildir. Til dæmis þarf ökumaður nú að veita reiðhjólum á hjólarein forgang ef beygja á þvert á hana. Einnig má nú sekta fyrir að virða ekki hægri reglu. Sekt við þessum brotum er 20.000 krónur. Akstur á akreinum Bannað er samkvæmt nýjum lögum að aka ökutækjum eftir gangstétt með undanþágu fyrir létt bifhjól í f lokki I. Veghaldari má nú ákveða hverjir mega nota sérreinar eins og til dæmis strætó- reinar. Hafa skal eigi minna en þriggja sekúndna bil milli öku- tækja. Þar sem tvær beygjureinar eru inn á akbraut með tvær eða fleiri akreinar fyrir umferð í sömu akstursstefnu skal sá sem velur hægri akrein í beygju koma inn á akrein lengst til hægri á akbraut sem ekið er inn á. Sektir við brotum á þessum greinum eru 20.000 krónur. Akstur í vistgötum og bílastæðum Þau nýmæli eru í lögunum að vist- gata er sérstaklega skilgreind og er hámarkshraði þar aðeins 10 km á klst. Ef ekið er hraðar en 10 km á klst. er sektin 20.000 krónur og ef ekið er hraðar en 20 km á klst. hækkar hún upp í 40.000 krónur. Ef ekið er á bílastæði þar sem hámarkshraði er 15 km á klst. er hægt að missa prófið í 3 mánuði ef ekið er yfir 30 km hraða og er sektin þá 30.000 krónur. Lagning ökutækis Einungis raf bílar mega nú nota stæði sem merkt eru til rafhleðslu. Einnig er bannað að leggja í snún- ingshaus botnlangagötu og nú má ekki leggja á móti akstursstefnu. Loks er óheimilt að stöðva eða leggja ökutæki á gangstétt og gildir það um öll ökutæki. Viðurlög við brotum á lagningu ökutækja eru 20.000 krónur. Um akstur bifhjóla Létt bifhjól í f lokki I (gangstéttar- vespur) eru nú skráningar- og skoðunarskyld. Skylda er að nota hjálm við akstur allra bifhjóla, einnig léttra bifhjóla í f lokki I. Þá má eigi reiða á léttum bifhjólum nema viðkomandi sé orðinn 20 ára. Einnig má ekki lengur lyfta framdekki samkvæmt 45. grein laganna. Sektir á brotum í þessum flokki eru 20.000 krónur. Akstur án réttinda Nú er komin heimild í lögum til að svipta þann sem ekur án réttinda heimild til að öðlast ökuskírteini í fjóra mánuði. Má framlengja um fjóra mánuði fyrir hvert brot í við- bót. Gildir þetta um öll ökutæki, einnig bifhjól og létt bifhjól. Sektir við brotum hér eru háar. Þegar við- komandi hefur ekki öðlast ökurétt- indin áður er sektin 40.000 krónur í fyrsta sinn og 80.000 í annað sinn. Ef viðkomandi hefur verið svipur er sektin 120.000 krónur í fyrsta sinn og 200.000 í annað sinn. Auk þess má sekta um 10.000 krónur ef ökuskírteini er ekki meðferðis. Tíu ný atriði sem sekta má fyrir í umferðinni Samkvæmt nýjum umferðarlögum má nú sekta fyrir þetta uppátæki, að reiða undir aldri, að aka hjálmlaus og eftir atvikum án réttinda. TOGG-jepplingurinn er fyllilega sambærilegur við þá rafjepplinga sem væntanlegir eru 2022 í tæknilegu tilliti. TOGG mun einnig framleiða þennan sportlega fólksbíl sem er settur til höfuðs Tesla Model S.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.