Fréttablaðið - 07.01.2020, Side 18

Fréttablaðið - 07.01.2020, Side 18
Blaðamaður hjá The Washington Post lét hakkara brjótast inn í tölvu bíls og ná í upplýsingar um eiganda hans. Bílar í dag eru að verða sífellt fullkomnari og tengdari en áður. Sumir nýir bílar eru meira að segja orðnir nettengdir beint við þjónustutölvur viðkomandi fram- leiðanda og þarf þá ekki einu sinni tengingar á verkstæði við. Vegna þessarar þróunar hefur sú umræða hver eigi að hafa vald yfir þessum gögnum aukist að undanförnu. FIA mótorsportsambandið hefur þar verið í fararbroddi og sett af stað herferð sem heitir „Bíllinn minn – gögnin mín“ og beint er gegn framleiðendum. Bíllinn þinn getur nefnilega sagt hvar hann hefur verið, í hverja þú hringdir, hvernig þú keyrðir og margt, margt f leira. Flestir bílar í dag geyma tals- vert af gögnum og má þar meðal annars finna síðustu 100 staði þar sem bílnum var lagt, síðustu staði sem slegnir voru inn í leiðsögu- kerfið, viðhaldssögu og gögn um aksturslag eiganda. Þetta kom fram í skýrslu ADAC árið 2015. Hann geymir einnig hversu oft það teygðist á öryggisbeltum vegna þess að þú hemlaðir snögglega. Allar þessar upplýsingar skapa vissa hættu fyrir eigendur öku- tækjanna. Það er betur hægt að fylgjast með viðkomandi sem kemur inn á persónuverndarlög, það er hægt að skoða aksturslag sem getur leitt til lækkunar á ábyrgð framleiðanda, auk þess sem aukinn búnaður af þessu tagi leiðir venjulega til þess að auðveld- ara verður að hakka sig inn á kerfi bílanna og stela upplýsingum. Bílaframleiðendur vilja kalla þetta hliðarsjálf bílsins, að þeir geti haft afrit af gögnum bílsins á tölvu í höfuðstöðvum sínum. Þetta þýðir í raun að framleiðendur hafa tögl og hagldir þegar kemur að geymslu gagna. Framleiðendur geta notað gögnin til að bæta þjónustu og jafnvel bæta bíla sína því að í þeim má sjá ýmislegt sem notendur þeirra gera. Framleiðendur vilja ekki að utanaðkomandi komist inn á tölvukerfi bíla sinna og bera við öryggi til að réttlæta einokun þeirra á upplýsingunum. Blaðamaður The Washington Post fékk á dögunum bíltölvusér- fræðing til að prófa að brjótast inn í tölvu 2017 árgerðar af Chevr- olet Volt. Það tók sérfræðinginn nokkra klukkutíma að rífa í sundur mælaborð bílsins til að hægt yrði að komast að tölvunni sem stýrir upplýsingakerfi bílsins. Eftir að hafa tengt hana við far- tölvu gat sérfræðingurinn sýnt eiganda bílsins hvar hann hafði verslað og borðað að undanförnu. Einnig gat hann séð í hverja hann hefði hringt, séð alla tengiliði hans, suma með myndum ásamt netfangi þeirra. Auk þess opnaði sérfræðingurinn sams konar tölvu sem blaðamaðurinn keypti notaða á eBay og viti menn. Þar mátti sjá að fyrri eigandi ferðaðist aðallega um norðurhluta New York-fylkis, hringdi oftast í aðila sem kallaðist „Sweetie“ og náði meira að segja í mynd af viðkomandi. Það mátti einnig sjá að bensín var venjulega keypt á Gulf-stöð og vinsælasti veitingastaður viðkomandi var Taste China. Upplýsingakerfi eru þau kerfi sem eigendur bílanna eiga mest samskipti við og því þarf ekki að koma á óvart að slíkar upplýsingar sé að finna í tölvunum. Hægt er að þurrka út þessi gögn með sér- stökum smáforritum eins og Pri- vacy4Cars. Samkvæmt sérfræðingi The Washington Post hefur hann hakkað sig inn í Ford-bíla sem skrá staðsetningu á nokkurra mínútna fresti. Hann hefur séð þýska bíla sem eru með 300 gígabita hörðum diskum, sem er stærra en í nokkrum farsíma. Tesla Model 3 getur safnað myndbandsupp- tökum frá myndavélum bílsins. Það sem er svo næst á dagskrá eru hlutir eins og andlitsskanni sem fylgist með athygli ökumannsins og tenging bíla við veraldarvefinn gegnum 5G-dreifikerfi. Allt sem tengist innra neti bílsins er þar með orðið viðkvæmt fyrir að þriðji aðili geti nálgast upplýsingar. njall@frettabladid.is Hver á gögnin sem bíllinn þinn geymir? 410 4000landsbankinn.isLandsbankinn Lægra lántökugjald við kaup á vistvænum bílum Viðskiptavinir Landsbankans greiða ekkert lántökugjald við fjármögnun rafbíla og fá 50% afslátt af lántökugjaldi við fjármögnun bíla sem skil greindir eru sem vistvænir. Gegnum tölvu bílsins sem tengist upplýsingaskjá má nálgast aragrúa upplýsinga um notandann, oft í gegnum far- símatengingu viðkomandi. 4 BÍLAR 7 . JA N ÚA R 2 0 2 0 ÞRIÐJUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.