Fréttablaðið - 07.01.2020, Page 22
Það munar hressilega um nýja
vél í Toyota CHR sem nú kemur
með 182 hestafla, tveggja lítra
vél. Einnig hefur hann fengið
milda andlitslyftingu og betri
búnað.
Það eru þrjú ár liðin síðan hinn
eftirtektarverði Toyota CHR kom
á markað og kannski var kominn
tími á smávegis andlitslyftingu,
og þó. Bíllinn var framúrstefnu-
legur fyrir þremur árum og þykir
það enn svo að útlitsbreytingar
eru litlar. Að framan eru smávægi-
legar breytingar á grilli og endur-
hönnuð ljós og að aftan breytingar
á stuðara og afturljósum. Loks var
vindskeið að aftan máluð svört og
nýir litir kynntir til sögunnar, og
eru þá ytri breytingar upptaldar.
Vinsældir CHR hafa að mestu leyti
einskorðast við tvinnútgáfuna en
8 af hverjum 10 seldum CHR voru
tvinnbílar. Því kemur ekki á óvart
að komin sé útgáfa með tveggja
lítra vél sem eykur til muna afl
bílsins miðað við fyrri útgáfur.
Þegar sest er inn í bílinn sjást
minniháttar breytingar á innrétt-
ingu sem eru allar af hinu góða.
Betri efnisval er á sumum snerti-
flötum og komið er nýtt og betra
upplýsingakerfi með átta tommu
snertiskjá. Auðveldara er að nota
nýja kerfið sem fljótlegt er að
tengja við símann og það styður
bæði Apple Carplay og Android
Auto. Auk þess er komin velkomin
viðbót sem er þráðlaus uppfærsla á
leiðsögukerfi. Prófunarbíllinn var
vel búin HIC-útgáfa og því voru
leðursæti staðalbúnaður. Bíllinn
er þokkalega rúmgóður fram í og
útsýni ágætt miðað við bíl með
afturhallandi þaki. Að vísu eru
C-bitarnir aftast þykkir og búa til
blint horn en stórir hliðarspeglar
með blindhornsviðvörun gera sitt
til að bjarga því. Aðeins þrengra
er um aftursætisfarþega og það er
ókostur að opnun á afturhurð er
með handfangi sem er alltof hátt
fyrir smáfólkið. Loks er lítið pláss
í farangursrými og er það jafn-
vel aðeins minna í tveggja lítra
bílnum og munar þar 19 lítrum.
Stærsta breytingin á bílnum felst
í vél og breytingum á undirvagni
en hann er á GA-C undirvagninum
sem er sami og Corolla er byggður
á. Komin er ný tveggja lítra vél
með CVT-skiptingu sem er sama
uppsetning og í RAV4 og Corolla.
Vélin sjálf er 152 hestöfl og sam-
eiginlegt afl vélar og rafmótors er
184 hestöfl. Það er aukning í afli um
50% á meðan eyðsla eykst aðeins
um 10% miðað við 1,8 lítra vélina.
Það finnst vel í akstri hvað bíllinn
er allur snarpari þrátt fyrir CVT-
skiptingu, sem er endurhönnuð og
mun akstursvænni en áður. Segja
má að bíllinn sé loksins kominn
með vél í stíl við útlitið. Með
tveggja lítra vélinni er bíllinn 8,2
sekúndur í hundraðið og hjálpar
rafmótorinn við að ná betra upp-
taki. Auk þess liggur CHR ágætlega
þótt hann sé enginn sportbíll og
hann er líka hljóðlátari en áður.
Toyota CHR hefur hækkað
aðeins í verði með nýrri útfærslu,
kostaði 4.630.000 krónur áður en
hækkar núna í 4.840.000 krónur í
grunnútfærslu sinni. Toyota CHR
2,0 kostar hins vegar frá 5.540.000
krónum og í dýrustu útfærslu
5.990.000 krónur svo auðvelt er að
sjá að bestu kaupin eru í vel búinni
tvinnútgáfu með tveggja lítra vél.
En hverjir skyldu helstu keppi-
nautar CHR vera hér á Íslandi? Sá
helsti er eflaust nýr Nissan Juke
sem væntanlegur er á allra næstu
mánuðum. Sá er þó aðeins minni
og CHR er í raun og veru nær
Nissan Qashqai í stærðartölum.
Verð á Nissan Juke er frá 3.890.000
krónum en Qashqai kostar frá
4.050.000 krónum og eru því báðir
töluvert ódýrari. Á móti kemur
meiri tækni í tvinnútfærslu CHR
og góður staðalbúnaður.
Loksins kominn með vél í stíl við útlitið
Bíllinn er snarpari í akstri en áður en útlitsbreytingar eru minniháttar. MYNDIR/TRYGGVI ÞORMÓÐSSON
Handfang fyrir afturhurð er eins
ofarlega og hægt er sem er ekki gott.
Það munar um 182 hestöfl á móti 122 hestöflum í 1,8 lítra vélinni. Komið er betra efnisval í innréttingu og fullkominn upplýsingaskjár.
Reynsluakstur
Njáll
Gunnlaugsson
njall@frettabladid.is
KOSTIR OG GALLAR
Toyota CHR
Grunnverð: 4.840.000 kr.
Hestöfl: 184/6.000 sn.
Tog: 190 Nm/4.400-5.200 sn.
Hröðun: 0-100 km 8,2 sek.
Hámarkshraði: 180 km
Eyðsla bl.ak.: 5,2 lítrar
CO2 losun: 118 g/km
L/B/H: 4.390/1.795/1.555 mm
Hjólhaf: 2.640 mm
Rafmótor: 80 kW
Eiginþyngd: 1.485 kg
Farangursrými: 358 lítrar
n Búnaður
n Afl
n Hljóðlátur
n Handfang á afturhurð
n Farangursrými
n Verð
KOSTIR GALLAR
8 BÍLAR 7. J A N Ú A R 2 0 2 0 Þ R I Ð J U D A G U R