Fréttablaðið - 07.12.2019, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 07.12.2019, Blaðsíða 2
Veður Austan 10-18 m/s í dag, en 18-25 syðst. Snjókoma um landið sunnanvert, en hægari vindur og bjart með köflum á Norðaustur- landi. Frost 0 til 12 stig, kaldast í innsveitum norðaustanlands. SJÁ SÍÐU 50 Syndir gegn ofbeldi á börnum Crossfitkappinn Einar Hansberg stakk sér til sunds í Varmárlaug síðdegis á fimmtudaginn og hyggst synda í tvo sólarhringa til styrktar UNICEF. Þegar ljósmyndara Fréttablaðsins bar að garði hafði Einar synt í um sólarhring en hann var hress þrátt fyrir smá þreytu. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGRYGGUR ARI MENNING Stjarna Björgvins Hall- dórssonar var fjarlægð af Frægðar- stéttinni í Hafnarfirði að kröfu viðskiptaráðs Hollywood. Hún var afhjúpuð við hátíðlega athöfn við Bæjarbíó í júlí síðastliðnum og átti að vera sú fyrsta af mörgum. „Við fengum aðfinnslur um of mikil líkindi sem við áttuðum okkur ekki á heldur töldum okkur vera með séríslenskt atriði,“ segir Páll Eyjólfsson, framkvæmdastjóri Bæjarbíós í Hafnarfirði. Páll segist fagna því að hafa verið látinn vita af þessu. „Við í Bæjar- bíói vinnum með listamönnum sem hafa lifibrauð sitt af höfundar- rétti og það væri harla skrítið ef við myndum ekki skoða þetta vel. Af virðingu fjarlægðum við stjörnuna,“ segir hann. En jafnframt að málið sé í skoðun og til greina komi að setja hana niður aftur. Aðspurður um hvort til greina kæmi að gera eitthvað annað í staðinn til að heiðra Björgvin og aðra tónlistarmenn í framtíðinni segir Páll umræðuna ekki komna á það stig. „Núna þurfum við aðeins að staldra við og ræða hvað sé rétt að gera,“ segir hann. „Hugmyndin er frábær, við þurfum að skoða útfærsluna.“ – khg Útfærslur skoðaðar af stjörnunni Hollywood var ósátt við Frægðar- stéttina. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Gefðu frí um jólin með gjafabréfi Icelandair VIÐSKIPTI Nærri fjórar af hverjum fimm bókum sem eru til sölu á Íslandi eru prentaðar erlendis, hlutfallið breytist lítillega milli ára. Fram kemur í niðurstöðum könnunar Bókasambands Íslands, sem byggir á upplýsingum úr Bóka- tíðindum Félags íslenskra bókaút- gefenda fyrir árið 2019, að 145, eða 21,7 prósent, bókartitlar eru prent- aðir innanlands. Heildarfjöldi prentaðra bókar- titla er 667, sem er aukning um 53 frá því fyrra. Fjöldi titla sem prent- aðir eru erlendis er 522, eða 78,3 prósent. Hlutfallið var 79,8 prósent í fyrra. Hlutfall bóka prentaðra innan- lands er hæst þegar kemur að fræði- og listabókum, eða 42 prósent. Það er hins vegar lægst í ævisögum, hand- og matreiðslubókum, eða átta prósent. – ab Ein af hverjum fimm bókum prentuð hér FERÐALÖG „Þeir sem heima sitja fá alltaf að sjá glansmyndirnar af ferðalögunum. Heimsfræga ferða- mannastaði, hvítar strendur og kokteila. Ég er búinn að ferðast um í fjóra mánuði og inn á milli koma mjög erfiðar stundir. Ég hafði áhuga á þeirri hlið ferðalaganna og vildi reyna að semja um það texta við lag sem ég samdi,“ segir Anton. Í kjölfarið óskaði ég  eftir erfiðum reynslusögum íslenskra ferðalanga á vinsælli Facebook-síðu. „Það er greinilegt að ég er ekki einn um þessar tilfinningar. Ég fékk talsverð viðbrögð og fór strax í að klára lagið. Það tókst og núna mun ég taka það upp í hljóðveri hérna úti,“ segir Anton. Balí hefur notið mikilla vinsælda hjá Íslendingum undanfarið og ekkert lát virðist á því. „Þetta er eins og ég sé í Köben,“ segir Anton og hlær. Í kjölfar sambandsslita eftir sex ára samband ákvað Anton að leggja land undir fót og ferðast um heiminn í tæpt ár. Hann er að læra gítarleik við FÍH og var hugmyndin meðal annars að sækja sér inn- blástur í tónsmíðar á ferðalaginu. „Ég er í hljómsveit sem heitir Split Circle ásamt félaga mínum Alexander Frey Olgeirssyni. Ég sá einhverja rómantík í því að ferðast um heiminn með kassagítar, semja efni og jafnvel taka það upp í ein- hverjum stúdíóum um víða veröld,“ segir Anton. Hann byrjaði ferðalagið á megin- landi Bandaríkjanna og endaði í hinni sögufrægu borg Nashville þar sem hann keypti sér kassagítar. Þaðan var ferðinni heitið til Hawaii og áfram til Asíu þar sem hann hefur farið víða. „Það er auðvitað frábært að ferðast en það kom mér á óvart hvað það getur tekið á. Á milli skemmti- legra stunda finnur maður oft fyrir einmanaleika og þungum hugs- unum. Það hafa alveg komið dagar þar sem ég horfi bara á Netflix og kemst varla fram úr rúminu og ég hef sorglega oft borðað á McDon- alds á ferðalaginu. Ég ákvað því að reyna að ná þessum tilfinningum í lagasmíðarnar,“ segir Anton. Hann ráðgerir að taka upp lagið á næstu dögum ytra og vinna það svo með félaga sínum Alexander heimsálfa á milli. „Við ráðgerum síðan að gefa út plötu á næsta ári og troða okkur inn í íslenskt tónlistarlíf þegar ég er heim kominn,“ segir Anton. bjornth@frettabladid.is Semur texta um erfiða ferðareynslu íslenskra heimshornaflakkara Tónlistarmaðurinn Anton Guðjónsson hefur undanfarna mánuði ferðast einn um heiminn. Hann segir reynsluna skemmtilega en inn á milli komi erfiðar stundir sem hann átti ekki von á. Hann sóttist eftir svipuðum reynslu- sögum frá öðrum íslenskum ferðalöngum og viðbrögðin komu á óvart. Anton hefur ferðast um heiminn undanfarna mánuði og er einn á ferð. 7 . D E S E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.