Fréttablaðið - 07.12.2019, Síða 6
Berlín er heimsborg
og það verður
gaman að sjá hvernig málið
þróast
Lárus Karl Ingason ljósmyndari
Mikið úrval af frökkum
og úlpum í jólapakkann
D-vítamínbætt
nýmjólk frá MS
fæst nú einnig
án laktósa
NÝTT
Samgöngustofa auglýsir laus til umsóknar
2 leyfi til leiguaksturs fólksbifreiða á
á Akureyri og 1 leyfi í Árborg.
Þau ein geta sótt um leyfi sem hyggjast stunda
akstur leigubifreiðar að aðalatvinnu og hafa lokið
námskeiði fyrir leigubifreiðastjóra. Til að öðlast
leyfi þurfa umsækjendur að uppfylla leyfisskilyrði,
skv. 5. gr. laga nr. 134/2001 og rg.nr. 397/2003 um
leigubifreiðar, með síðari breytingum.
Úthlutun leyfis fer fram á grundvelli starfsreynslu
við akstur leigubifreiðar, sbr. 6. gr. reglugerðarinnar.
Umsóknareyðublöð má nálgast á heimasíðu
Samgöngustofu, www.samgongustofa.is.
Umsóknarfrestur er til og með 13.12.2019.
Sími: 480 6000 . www.samgongustofa.is
AUGLÝSING
VEGNA ÚTHLUTUNAR
ATVINNULEYFA
TIL AKSTURS
LEIGUBIFREIÐA
Samgöngustofa
SAMFÉLAG Lichtenberghverfið í
Berlínarborg vill gerast vinabær
Hafnarfjarðar og hefur hverfis
stjórnin þar sent bæjarstjórn
Hafnarfjarðar bréf þess efnis. Ljós
myndarinn Lárus Karl Ingason hélt
ljósmyndasýningu þar í sumar og
viðraði hugmyndina við borgar
stjóra Lichtenberg.
Sýningin var í tengslum við
heimsmeistaramót íslenska hests
ins, sem var haldið í Lichtenberg
hverfinu í sumar. „Ég ræddi við
borgarstjórann og menningarfull
trúann á sýningunni um að vina
bæjarsamband yrði gott fyrir báða
staðina. Þjóðverjar elska Ísland og
mér fannst góð hugmynd að tengj
ast svona stórum stað,“ segir Lárus.
Í Lichtenberghverfinu búa tæplega
270 þúsund manns, um 10 sinnum
fleiri en búa í Hafnarfirði.
Þegar á bærinn í vinabæjarsam
bandi við tvær þýskar borgir, Cux
haven og Flensburg. Gefur Cux
haven Hafnarfirði jólatré á hverju
ári. „Berlín er heimsborg og það
verður gaman að sjá hvernig málið
þróast,“ segir Lárus. Ef af verður sér
hann fyrir sér að samstarfið yrði
fyrst og fremst á sviði menningar
en einnig á sviði hestamennsku. Í
bréfinu frá Lichtenberg er menn
ingin einmitt tíunduð, sem og æsku
lýðsstarf og íþróttir.
Á tíma kalda stríðsins var
Lichten berg hluti af AusturBerlín
og er þar Stasísafnið til húsa. Í dag
er þar meðal annars stærsta asíska
hverfi borgarinnar. – khg
Vinabæjum Hafnarfjarðar gæti fjölgað
Um 270 þúsund manns búa í Lichtenberg hverfinu. NORDICPHOTOS/GETTY
78
prósent þeirra sem sofa of
lítið drekka fjóra eða fleiri
orkudrykki daglega.
HEILBRIGÐISMÁL Upp hafa komið
nokkur tilvik þar sem einstakling
ar hafa leitað á bráðamóttöku með
almenn einkenni vegna neyslu
orkudrykkja.
Þetta kemur fram í svari Svan
dísar Svarsdóttir heilbrigðisráð
herra við fyrirspurn Rósu Bjarkar
Brynjólfsdóttur alþingismanns,
f lokkssystur Svandísar úr VG.
Í fyrirspurn Rósu um orkudrykk
ina var meðal annars spurt hvort
heilbrigðisráðuneytið hefði „upp
lýsingar um tilvik þar sem neysla
orkudrykkja hefur haft bein áhrif á
heilsufar neytanda, til dæmis orsak
að yfirlið, hjartsláttartruf lanir,
krampaflog, nýrnabilun eða jafnvel
dauðsföll líkt og skráð hefur verið
annars staðar á Norðurlöndum og í
nokkrum Evrópulöndum?“
Ráðherra segir í svari sínu að
engin staðfest alvarleg einkenni
af völdum orkudrykkja séu meðal
einstaklinga sem leitað hafi á bráða
deild. Ekki sé skráð hvort talið sé
að einkenni séu af völdum orku
drykkja. „Á þessu ári hefur eitrun
arupplýsingamiðstöðin á Landspít
ala fengið þrjú símtöl vegna barna
sem drukku orkudrykki, ekkert
þeirra þurfti að koma á bráðamót
töku og þau fundu ekki fyrir alvar
legum einkennum.“
Enn fremur segir ráðherra að
ráðuneytið hafi ekki aðrar upp
lýsingar um tilvik þar sem neysla
orkudrykkja hafi haft bein áhrif á
heilsufar neytenda eins og yfirlið,
hjartsláttartruflanir, krampaflog,
nýrnabilun eða jafnvel dauðsföll.
„Þá hafa engin tilvik um líkamleg
áhrif orkudrykkja verið tilkynnt
Embætti landlæknis.“
Sagt er að orkudrykkir eigi það
sameiginlegt að innihalda koffín
og flestir innihaldi líka önnur virk
efni. „Ef koffíns er neytt í miklu
magni getur það haft ýmis óæskileg
áhrif á líðan og heilsu fólks, getur
t.d. valdið hjartsláttartruf lunum,
hækkuðum blóðþrýstingi, höfuð
verk, svima og haft neikvæð áhrif
á svefn. Börn og ungmenni eru
almennt viðkvæmari fyrir koffíni
en fullorðnir og er neysla koffíns
því sérstaklega óæskileg fyrir þann
hóp.“
Þá er vísað í niðurstöður úr rann
sókninni Ungt fólk á vegum Rann
sókna og greiningar við Háskólann
í Reykjavík. Samkvæmt þeim var
hlutfall framhaldsskólanema sem
daglega eða oftar neytti orku
drykkja með koffíni, 55 prósent
árið 2018 og hafði þá hlutfallið snar
hækkað frá árinu 2016 er það var 22
prósent.
„Svipað hlutfall stelpna og stráka
neytti orkudrykkja daglega árið
2018 en aukning milli kannana var
mun meiri meðal stelpna eða tæp
lega fjórföld, fór úr 14 prósentum
árið 2016 í 54 prósent árið 2018,“
segir í svari ráðherra. „Í rannsókn
inni kom jafnframt fram að 78 pró
sent þeirra sem sofa of lítið (um sjö
klukkustundir eða minna) drekka
fjóra eða fleiri orkudrykki daglega
sem innihalda koffín.“
Hlutfall nemenda í 8.10. bekk
grunnskóla sem neytti orkudrykkja
daglega fór úr 16 prósentum árið
2016 í 28 prósent 2018.
Rósa spurði hvort uppi væru
áform um að endurskoða reglur um
sölu orkudrykkja til barna og ung
menna. Ráðherra svarar því ekki en
segir að Matvælastofnun hafi óskað
eftir mati á áhættu af koffínneyslu
ungmenna. Landlæknir telji að ekki
ætti að veita leyfi fyrir sölu á orku
drykkjum sem innihalda 320 milli
grömm á lítra eða meira af koffíni
og að ekki ætti að selja drykki með
koffíni á bilinu 150 til 320 milli
grömm börnum yngri en átján ára.
gar@frettabladid.is
Neysla ungmenna á
orkudrykkjum eykst
Neysla framhaldsskólastúlkna á orkudrykkjum með koffeini meira en fjór-
faldaðist á aðeins tveimur árum. Landlæknir vill banna sölu á alsterkustu
orkudrykkjunum og banna sölu koffínríkustu drykkjunum til undir átján ára.
Neysla ungmenna á orkudrykkjum er mikil. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
7 . D E S E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð