Fréttablaðið - 07.12.2019, Page 8
NEYTENDUR Dæmi eru um að allt
að 87 prósenta munur sé á hæsta
og lægsta verði á algengum lyfjum
í fjórum apótekum á höfuðborg-
arsvæðinu. Þetta kemur fram í
niðurstöðum könnunar almanna-
tengslafyrirtækisins Athygli.
Skoðuð var verð á þrettán lyfja-
tegundum, um er að ræða kvef-,
maga-, nikótín-, hægða-, ofnæmis-
og verkjalyf sem fást í Costco, Lyfja-
veri, Lyfju, Lyfjavali og Lyfjum og
heilsu. Þau apótek ná yfir um 80
prósent af markaðnum.
Það skal tekið fram að ekki voru
skoðuð verð í öðrum apótekum á
borð við Reykjavíkur Apótek, Apó-
tekarann og Garðsapótek.
Verðið var oftast hæst í Lyfjum
og heilsu en lægst í verslun Costco.
Munar til dæmis tæplega 1.100
krónum á stórum pakka af Nicot-
inell í Costco og Lyfjum og heilsu.
Ef öll lyfin eru keypt saman kosta
þau um 25 þúsund krónur í Costco
en nærri 34 þúsund í Lyfjum og
heilsu, er um að ræða 35 prósenta
mun.
Ly f javer er næstódý rast, er
verðið að meðaltali 15 prósentum
hærra en í Costco. Munur á verði
er lítill á milli verslana Lyfju og
Lyfjavals, en verðið er 26 og 27 pró-
sentum hærra en í Costco.
Breki Karlsson, formaður Neyt-
endasamtakanna, segir lyfjaverð á
Íslandi lengi hafa verið of hátt.
„Þessi verðmunur sem þarna
birtist er sláandi og er með engu
móti eðlilegur. Því miður hefur
þetta verið svona um langt skeið
að lyf eru mun dýrari á Íslandi en
víðast í nágrannalöndunum,“ segir
Breki.
Fram kemur í skýrslu Hagfræði-
stofnunar frá því í maí að lyf á
Íslandi séu ekki alltaf dýrari en í
nágrannalöndunum. Í þeim tölum
var þó ekki gerður greinarmunur á
lyfseðilsskyldum lyfjum og öðrum.
Mældust sykursýkislyf til dæmis
ódýrari á Íslandi en í Kanada og
Danmörku. Dagskammtur á sýkla-
lyfjum var hins vegar talsvert dýr-
ari hér en þar.
Breki segir að mörg dæmi hafi
borist til Neytendastofu vegna
ly f javerðs. Nefnir hann f imm
manna fjölskyldu sem fór óvenju-
lega leið til þess að minnka heimil-
isútgjöldin.
„ Allir f imm f jölsk yldumeð-
limirnir þjást af frjókornaofnæmi.
Þau lyf eru svo dýr hérlendis að
það borgaði sig fyrir fjölskylduna
að senda einn meðlim hennar
til Bretlands til að kaupa sumar-
skammtinn,“ segir Breki.
Segir hann hátt lyfjaverð koma
verst niður á þeim sem séu þegar í
viðkvæmri stöðu, öryrkjum og líf-
eyrisþegum.
arib@frettabladid.is
bjornth@frettabladid.is
Dæmi eru um 87 prósenta
verðmun á algengum lyfjum
Dæmi eru um að algeng
lyf kosti mun meira í
Lyfjum og heilsu en í
Costco. Formaður Neyt-
endasamtakanna segir
muninn sláandi.
Því miður hefur
þetta verið svona
um langt skeið að lyf eru
mun dýrari á Íslandi en
víðast í nágrannalöndunum.
Breki Karlsson,
formaður
Neytendasam-
takanna
Endurbætt Hverfisgata er tilbúin að taka við jólagestum.
Sérstaða götunnar sem áfangastaðar með flóru verslana,
skemmtunar, matstaða og menningar á sér nú nánast ekki
hliðstæðu hér á landi.
Íbúar og rekstraraðilar eru sammála um að endurbætur
á götunni hafi skilað fallegri, nútímalegri og aðgengilegri
borgargötu þar sem fjölbreytt mannlíf blómstrar.
Allt yfirborð götu og gangstétta hefur verið endurnýjað,
lagnir endurnýjaðar eftir þörfum og snjóbræðsla sett í
upphækkuð gatnamót og göngu- og hjólaleiðir.
Þá hefur gatan verið fagurlega skreytt með margs konar
jólaljósum og bjöllum og nýtur nú vaxandi vinsælda sem
ein af skemmtilegustu götum borgarinnar.
Velkomin á Hverfisgötuna!
Velkomin
á nýja og betri
Hverfisgötu.
HEILBRIGÐISMÁL Um ellefu prósent
fullorðinna Íslendinga hafa notað
ljósabekki einu sinni eða oftar á
síðustu tólf mánuðum. Þetta eru
niðurstöður könnunar sem Gallup
framkvæmdi fyrir samstarfshóp
Embættis landlæknis, Geislavarna,
húðlækna og Krabbameinsfélags-
ins.
Ekki reyndist marktækur munur
á ljósabekkjanotkun frá síðasta
ári en þetta hlutfall hefur verið í
kringum tíu prósent frá árinu 2013.
Umrædd könnun hefur verið fram-
kvæmd frá árinu 2004 en frá þeim
tíma hefur notkunin dregist mjög
saman. Alls höfðu um 30 prósent
notað ljósabekki samkvæmt könn-
uninni 2004.
Í tilkynningu frá Landlækni er
meðal annars vísað í nýlega ályktun
norrænu geislavarnastofnananna
þar sem varað er við notkun ljósa-
bekkja. Alþjóðaheilbrigðismála-
stofnunin telur að notkun ljósa-
bekkja valdi meira en tíu þúsund
tilfellum af sortuæxlum árlega og
meira en 450 þúsund tilfellum af
öðrum húðkrabbameinum í Evrópu,
Bandaríkjunum og Ástralíu. – sar
Ellefu prósent
nota ljósabekki
Hlutfall þeirra sem fara í ljós helst
svipað milli ára. NORDICPHOTOS/GETTY
Mismunur
hæsta og
Tegund lyfs Costco Lyfjaver Lyfja Lyfjaval Lyf&heilsa lægsta verð
Nicotinell Fruit 2mg 204 stk 3.564 kr. 3.989 kr. 4.549 kr. 4.524 kr. 4.698 kr. 32%
Omeprazol Actavis 20mg 28 stk 1.518 kr. 1.649 kr. 1.879 kr. 1.852 kr. 1.998 kr. 32%
Otrivin Menthol 868 kr. 1.063 kr. 1.089 kr. 970 kr. 1.218 kr. 40%
Voltaren Gel 150ml 3.149 kr. 3.821 kr. 3.726 kr. 3.824 kr. 4.298 kr. 36%
Paratabs 500mg 30 stk 380 kr. 435 kr. 471 kr. 464 kr. 498 kr. 31%
Strepsils hunang og sítrónu 36 stk 1.600 kr. 1.797 kr. 2.199 kr. 1.952 kr. 2.198 kr. 37%
Treo 60 stk 1.713 kr. 1.967 kr. 2.166 kr. 2.089 kr. 2.318 kr. 35%
Íbúfen 400mg 50 stk 712 kr. 769 kr. 862 kr. 798 kr. 968 kr. 36%
Valablis 500mg 10 stk 1.520 kr. 1.995 kr. 1.814 kr. 1.855 kr. 2.098 kr. 38%
Panodil Hot 848 kr. 995 kr. 1.348 kr. 1.034 kr. 1.588 kr. 87%
Loritin 10mg 100 stk 1.484 kr. 1.751 kr. 1.876 kr. 2.690 kr. 1.998 kr. 81%
imodium 2mg 16 stk 998 kr. 1.227 kr. 1.370 kr. 1.216 kr. 1.428 kr. 43%
Nicorette QuickMist 2 x 150 úðaskammtar 6.759 kr. 7.362 kr. 8.349 kr. 8.578 kr. 8.598 kr. 27%
Samtals 25.113 kr. 28.820 kr. 31.698 kr. 31.846 kr. 33.904 kr.
Verðmunur í prósentum 15% 26% 27% 35%
✿ Verðsamanburður á nokkrum algengum lyfjum
7 . D E S E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð