Fréttablaðið - 07.12.2019, Page 10
STJÓRNSÝSLA Leigusamningurinn
um lóðina Sólvelli var undirritaður
í júlí 2016 af Haraldi Sverrissyni,
bæjarstjóra Mosfellsbæjar, og Hol-
lendingnum Henri Middeldorp
stjórnarformanni MCPB á þeim
tíma. Leigusamningurinn var til 99
ára og var með kauprétt að landinu
að uppfylltum ákveðnum skil-
yrðum.
Fram kom að Middeldorp hygðist,
ásamt innlendum og erlendum aðil-
um, fjárfesta í einkareknum spítala
og hóteli fyrir rúma 50 milljarða
króna. Átti spítalinn fyrst og fremst
að þjónusta erlenda sjúklinga og
vera með 150 herbergjum. Hótelið
átti að vera 250 herbergja og var ráð-
gert að verkefnið myndi skapa um
1.000 ný störf.
Málið varð f ljótt afar umdeilt
og var mikið fjallað um það í fjöl-
miðlum. Meðal annars skrifaði Kári
Stefánsson grein þar sem hann full-
yrti að „útlendingaspítalinn“ myndi
ganga af íslensku heilbrigðiskerfi
dauðu. Segja má að tvær ástæður
hafi verið fyrir því að fregnir af
verkefninu féllu í grýttan jarðveg.
Einkarekstur í heilbrigðiskerfinu
er viðkvæmt mál hér á landi en ekki
síður var Middeldorp dularfullur í
meira lagi.
Fljótlega fóru að berast fregnir af
því að hann hefði sett sig í samband
við fjölda aðila hér á landi, kynnt
fyrir þeim verkefni og sagst vera með
fjársterka aðila á bak við sig. Engin
slík áform höfðu þó raungerst og var
hann meðal annars sakaður um að
hafa blekkt hugsanlega meðfjárfesta
í öðrum verkefnum.
Verkefnið í Mosfellbæ átti að vera
fjármagnað með láni frá félaginu
Burbanks Capital í Hollandi sem var
sagt vera fjármagnað af fjársterkum
aðilum. Hollendingurinn varðist þó
allra fregna um hverjir þessir aðilar
væru. Á heimasíðu fyrirtækisins var
meðal annars fullyrt að það væri í
samvinnu við kísilframleiðandann
Silicor Materials.
Aðeins rúmum tveimur mán-
uðum eftir undirskrift lóðarleigu-
samningsins fór að hrikta í stoðum
verkefnisins. Íslendingar í stjórn
MCPB ehf, sem tengdust VHE-véla-
verksmiðju Hjalta Einarssonar ehf.
og áttu að eiga tveggja prósenta hlut,
drógu sig úr verkefninu. Verkefnið
fjaraði því fljótt út og ekkert hefur
spurst til Middeldorp síðan.
Nokkru síðar virðist athafnamað-
urinn Sturla Sighvatsson hafa eygt
tækifæri í uppbyggingu á lóðinni.
Hann eignaðist MCPB ehf. í gegnum
tvö einkahlutfélög og breytti nafni
fyrirtækisins í Sólvellir – Heilsu-
klasi ehf. Lítið hefur þó komið fram
um byggingaráform á lóðinni enda
hefur Sturla verið upptekinn við að
slökkva elda í hinum ýmsu verkefn-
um sem hann hefur á sinni könnu og
Fréttablaðið hefur fjallað um.
Þau bál snúa meðal annars að hlut
hans í leigurisanum Heimavöllum
sem hann missti frá sér, byggingu
fjölbýlishúss í Gerplustræti í Mos-
fellsbæ sem fór úr böndunum og
fjárfestingu í fjölbýlishúsi á Ásbrú
sem hefur ítrekað verið auglýst á
nauðungarsölu.
Í leigusamningi milli Mosfellbæjar
og MCPB ehf., síðar Sólvalla – Heilsu-
klasa ehf, var ákvæði sem heimilaði
sveitarfélaginu að fella niður samn-
inginn ef engar framkvæmdir væru
hafnar innan tveggja ára frá undir-
skrift hans. Um þessar mundir eru
um þrjú og hálft ár frá undirritun-
inni og vísað er í þetta ákvæði í þeirri
ákvörðun bæjarráðs að freista þess
að fella niður samninginn.
Sturla Sighvatsson kaus að tjá sig
ekki um málið þegar eftir því var
leitað. bjornth@frettabladid.is
Leigusamningur um
Sólvelli felldur niður
Bæjarráð Mosfellsbæjar hefur falið lögmanni sveitarfélagsins að fella niður
leigusamning lóðar sem er í eigu fyrirtækis sem athafnamaðurinn Sturla Sig-
hvatsson á. Árið 2016 var ráðgert að reisa þar einkarekinn spítala og hótel.
Til stóð að reisa sjúkrahús og hótel á Sólvöllum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Meðal annars skrifaði
Kári Stefánsson grein þar
sem hann fullyrti að „út
lendingaspítalinn“ myndi
ganga af íslensku heil
brigðiskerfi dauðu
Mjúk og bragðgóð jógúrt með stökkum
kornkúlum sem leika við bragðlaukana.
Tilvalinn kostur sem sparimorgunverður,
gómsætur millibiti eða ljúengur eftirréttur.
… hvert er þitt eftirlæti?
UMHVERFISMÁL Umhverfisstofnun
hefur gert tillögu um að Goðafoss
í Þingeyjarsveit verði friðlýstur
sem náttúruvætti. Tillagan kemur
frá samstarfshópi sem í sátu full-
trúar Umhverfisstofnunar, Þing-
eyjarsveitar, umhverfis- og auð-
lindaráðuneytisins, landeigenda á
svæðinu auk Minjastofnunar.
Í tilkynningu frá Umhverfisstofn-
un segir að markmið tillögunnar sé
að vernda sérstakar náttúruminjar,
breytileika jarðmyndana og fossinn
sjálfan. Það verði meðal annars gert
með því að viðhalda náttúrulegu
vatnsrennsli í fossinn.
Veittur er frestur til að gera
athugasemdir við friðunartillög-
unar til 9. mars næstkomandi.
Goðafoss er í Skjálfandaf ljóti í
Bárðardal í Þingeyjarsveit en hann
er um 30 metra breiður og hæð hans
á milli 9 og 17 metrar. Samkvæmt
þjóðsögu varpaði Þorgeir Ljósvetn-
ingagoði heiðnum goðalíkneskjum
í fossinn við kristnitökuna. – sar
Goðafoss verði friðlýstur
Goðafoss er vinsæll viðkomustaður ferðamanna. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
SAMFÉLAG Skauta fé lag Akur eyrar,
Skauta sam band Ís lands, Í þrótta-
banda lag Akur eyrar og Í þrótta- og
Ólympíu sam band Ís lands hafa nú
gefið út yfir lýsingu í máli Emilíu
Rósar sem greindi frá því í síðasta
mánuði að hún hafi þurft að flýja
Akur eyri vegna á reitni þjálfara síns.
Hún hafði ekki fengið stuðning frá
í þrótta hreyfingunni og í yfir lýsingu
frá Skauta fé lagi Akur eyrar var lýst
yfir stuðningi við þjálfarann.
Frétta blaðið greindi síðan frá því í
vikunni að enginn hafi beðið Emilíu
af sökunar vegna málsins þrátt fyrir
að málið hafi vakið mikla at hygli
og Samtök kvenna í íþróttum hafi
krafist svara. Þá hafði Frétta blaðið
sam band við for mann stjórnar
Skauta fé lags Akur eyrar, fyrr verandi
for mann list hlaupa deildar fé lagsins
og fram kvæmda stjóra fé lagsins en
enginn vildi tjá sig um málið.
„Í til efni af við tali Frétta blaðsins
við fyrrum iðkanda í Skauta fé lagi
Akur eyrar vilja Skauta fé lag Akur-
eyrar, Skauta sam band Ís lands (ÍSS),
Í þrótta banda lag Akur eyrar (ÍBA) og
Í þrótta- og Ólympíu sam bands Ís-
lands (ÍSÍ) koma eftir farandi á fram-
færi: Í þrótta hreyfingin getur ekki
fjallað efnis lega um ein stök mál af
þessu tagi á opin berum vett vangi,“
segir í yfir lýsingunni.
„Mikil vægt er að taka fram að
um rætt mál er í far vegi innan hreyf-
ingarinnar undir for ystu Skauta fé-
lags Akur eyrar með að komu Skauta-
sam bandsins, ÍBA og ÍSÍ,“ segir að
lokum en þegar Frétta blaðið ræddi
við Emilíu í vikunni hafði hún ekki
fengið nein svör eða af sökunar-
beiðni vegna málsins.
„Þau hafa ekki enn beðið mig
afsökunar en vilja fá mig á fund til
að ræða málið,“ segir Emilía. – fbl
Hafa ekki enn beðið Emilíu af sökunar
Emilía Rós hefur hvorki fengið svör né afsökunarbeiðni vegna málsins.
7 . D E S E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R10 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð