Fréttablaðið - 07.12.2019, Page 12
• Innréttingar frá JKE Danmörku
• Boðið er upp á þrjár gerðir innréttinga
• Innanhússhönnun M/STUDIO Reykjavík
• Steinborðplötur
• Bílskúrar fylgja ákveðnum íbúðum
• Tvö baðherbergi
• Þaksvalir/þakgarðar með
einstöku útsýni
• Lofthæð 280 cm
• Gólfsíðir VELFAC-gluggar
• Miele-tæki
• Free@home
• Lokaður og skjólgóður garður
• Bílastæði í bílakjallara
• Hægt er að kaupa ákveðnar íbúðir
tilbúnar til innréttingar
• Rafmagn í gluggatjöldum
• Myndavélardyrasími sem tengist
við snjallsíma
• Álklætt og einangrað að utan
• Aukin hljóðvist
• Rafmagnshönnun og innfelld lýsing
hússins hönnuð af Lúmex
• Allar íbúðir með LED-lýsingu
• Rafbílaheimtaug í bílakjallara
1 0 2 H L Í Ð A R E N D I
Einstök hönnun í hjarta Reykjavíkur
Skráið ykkur í forsölu á
www.102hlidarendi.is
A R N A R H L Í Ð 2
Glæsilegar og mjög vel staðsettar íbúðir í byggingu við Arnarhlíð 2 í nýju
póstnúmeri, 102, við rætur Öskjuhlíðar. Íbúðunum fylgir stæði í bílakjallara,
lokaður og mjög skjólgóður garður ásamt þaksvölum með stórbrotnu
útsýni. Lokið verður við að steypa upp allt húsið í desember 2019.
Íbúðirnar eru 2-4 herbergja, á bilinu 74 – 204 fermetrar.
FORSALA
BRETLAND „Hegðun þín er óafsak-
anleg og hefur valdið konungsfjöl-
skyldunni skaða. Nú heldur þú þig
frá sviðsljósinu. Þú ert ekki að fara
að snúa aftur í bráð.“ Eitthvað á þessa
leið sagði Karl Bretaprins við litla
bróður sinn Andrés á fundi þeirra
með Filippusi föður þeirra á Sand-
ringham-setrinu fyrir nokkrum
dögum.
Mikið hefur gengið á hjá bresku
konungsfjölskyldunni undanfarna
áratugi. Framhjáhöld, skilnaðir og
stíf fjölmiðlaumfjöllun blikna í sam-
anburði við tilhugsunina um að sá
sem er áttundi í röðinni að krúnunni
sé talinn hafa tekið þátt í kynferðis-
brotum og mansali. Sama hvernig
Andrés reynir að bera af sér sakir
er ekki hægt að neita því að hann
var vinur barnaníðingsins Jeffreys
Epstein og voru svör hans í viðtali
við Newsnight á BBC svo neyðarleg
að það þurfti hreinlega að reka hann
í útlegð frá hirðinni.
Filippus, sem sagði sig frá opin-
beru lífi fyrir tveimur árum, á
samkvæmt breska dagblaðinu The
Telegraph að hafa sagt syni sínum
að það væri einfaldlega ekkert
annað í stöðunni. „Þú tekur út þína
refsingu,“ á hann að hafa sagt. Vildi
heimildarmaðurinn meina að Fil-
ippus hefði raunverulegar áhyggjur
af framtíð konungsfjölskyldunnar
og stöðu hennar vegna vinskapar
Andrésar við Epstein.
Glæpir Epsteins voru viðurstyggi-
legir. Mansal á stúlkum allt niður í
tólf ára gömlum sem var nauðgað af
Epstein, bæði á heimili hans í New
York og á eyju í Karíbahafi. Hefur
fjöldi fórnarlamba stigið fram með
ásakanir gegn vinum Epsteins um
að þeir hafi tekið fullan þátt í kyn-
ferðisbrotum.
Epstein fannst látinn í fangaklefa
í New York í ágúst. Strax í kjölfarið
fóru spjótin að beinast að Andrési
Bretaprins. Virginia Giuffre, áður
Virginia Roberts, hafði sagt við yfir-
völd í Flórída árið 2015 að Andrés
hefði brotið á sér þegar hún var
sautján ára, sem er undir lögaldri.
Í eitt skiptið í húsi Ghisl aine Max-
well, kærustu Epsteins, í Lundúnum,
annað skiptið á heimili Epsteins í
New York og í þriðja skiptið á eyju
hans í Karíbahafi.
Maxwell er nú til rannsóknar
vegna aðkomu sinnar að glæpum
Epsteins. Samkvæmt bandarískum
dómsskjölum er Maxwell sögð hafa
tekið virkan þátt í mansali og jafnvel
kennt ungum stúlkum hvernig þær
ættu að bera sig að í kringum Epstein
og vini hans.
Andrés neitar alfarið öllum ásök-
unum. Hann hefur ekki rætt við
bandarísku alríkislögregluna eða
saksóknara vestanhafs. Í viðtalinu
við BBC sagðist hann vera tilbúinn
til þess að ræða við rannsakendur,
það verður þó ekki að fyrra bragði.
David Boies, lögmaður fimm
kvenna, undirbýr nú stefnu til að fá
Andrés til Bandaríkjanna til að bera
vitni. Bandarískir lögspekingar sem
ræddu við The Guardian segja að ef
Andrési verði gert að ræða við sak-
sóknara án friðhelgi þá yrði honum
alltaf ráðlagt að bera fyrir sig fimmtu
grein stjórnarskrárinnar um að
svara engu á grundvelli þess að hann
gæti borið sök á sjálfan sig.
Fundur þeirra feðga í Sandring-
ham fór fram stuttu áður en viðtal
BBC við Giuffre fór í loftið og vissu
þeir Filippus og Karl að það myndi
gera útslagið. Ólíkt Andrési var
Giuffre sannfærandi. „Þetta er ekki
ein hver sóða leg kyn líf s saga. Þetta
er saga um man sal. Þetta er saga
um mis notkun og saga um mann
af konungs ættum,“ sagði Giuffre.
„Ég sár bæni fólkið í Bret landi að
standa með mér, hjálpa mér í þess-
ari bar áttu, og sam þykkja ekki slíka
hegðun.“ arib@frettabladid.is
Andrés prins
sendur í útlegð
Andrési prins hefur verið gert að halda sig til hlés
um ókomna tíð. Mögulega verður honum stefnt
fyrir rétt í Bandaríkjunum vegna Epstein-málsins.
Tímalína samskipta Andrésar og Epsteins
1990-2000 óljós tími
Epstein og Andrés prins
kynnast.
2001 mars
Virginia Giuffre, þá sautján ára,
segir að Andrés hafi brotið á sér
kynferðislega. Mynd tekin af
þeim saman á heimili Epsteins.
2008 júní
Epstein játar á sig kynferðisbrot
gegn börnum.
2010 desember
Epstein sleppt úr fangelsi.
Andrés gistir á heimili Epsteins í
New York í fjóra daga.
2015 febrúar
Giuffre segir yfirvöldum að
Andrés hafi brotið á henni árið
2001. Breska hirðin neitar ásök-
unum fyrir hönd Andrésar.
2019 júlí
Epstein handtekinn fyrir grun
um mansal. Ákæra gefin út og
honum neitað um tryggingu.
2019 ágúst
Epstein finnst látinn í fanga-
klefa sínum.
2019 nóvember
Andrés fer í viðtal við News-
night á BBC, viðtalinu er mjög
illa tekið. Andrés segir sig frá
öllum opinberum skyldu-
störfum.
2019 desember
Giuffre fer í viðtal á BBC þar sen
hún endurtekur ásakanir sínar
á hendur Andrési og hvetur
bresku þjóðina til að standa
með henni.
Karl Bretaprins hefur
beðið bróður sinn Andrés að
halda sig fjarri sviðsljósinu.
7 . D E S E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R12 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð