Fréttablaðið - 07.12.2019, Blaðsíða 20
KARLAR
KONUR
LAU. 7. DESEMBER
1
6
.0
0
LAU. 7. DESEMBER
1
6
.0
0
LAU. 7. DESEMBER
1
7
.3
0
LAU. 7. DESEMBER
1
8
.0
0
LAU. 7. DESEMBER
1
4
.0
0
LAU. 7. DESEMBER
1
4
.0
0
LAU. 7. DESEMBER
1
6
.0
0
SUN. 8. DESEMBER
1
7
.3
0
MÁN. 9. DESEMBER
1
9
.3
0
OLÍS-DEILDINNI
NÆSTU LEIKIR Í
LAU. 7. DESEMBER
1
6
.0
0
KOMDU Á VÖLLINN
#O
lís
de
ild
in Tímasetningar geta breyst vegna veðurs. Sjá nánar á olis.is/deildin
7 . D E S E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R20 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT
Dauðavalsinn stiginn
Í nóvember fóru þrír knattspyrnustjórar
frá stórum knattspyrnuliðum. FC Bayern
rak Niko Kovac í byrjun mánaðarins.
Kovac stýrði liðinu í 65 leikjum, vann 45
þeirra og lyfti þremur titlum. Það dugði
bara ekki þýska risanum. Norður-Lund-
únaliðin Tottenham og Arsenal hentu
sínum stjórum svo undir lok mánaðarins.
Mauricio Pochettino var látinn taka
pokann sinn þann 19. nóvember enda
sjálfur Jose Mourinho á lausu. Poch-
ettino tók við Tottenham árið 2014 og
komst í úrslitaleik enska deildabikarsins
árið 2015 auk þess sem liðið fór í úrslita-
leik Meistaradeildarinnar á síðasta tíma-
bili þar sem það tapaði fyrir Liverpool
2-0. Tíu dögum síðar rak Arsenal Unai
Emery eftir sjö leiki í röð þar sem liðinu
tókst ekki að sigra. Það gerðist síðast
árið 1992. Þá fór Marco Silva á fimmtu-
dag frá Everton enda liðið í fallsæti þrátt
fyrir miklar fjárfestingar – misgáfulegar
reyndar. Þá hafa Lyon og AC Milan einnig
rekið sína stjóra.
Sjóðheitir stórliðastjórastólar
Með nánast botnlausa vasa af peningum nálgast pressan á árangur í fótboltanum suðumark. Nánast öll lið í Evrópu ætla sér að
vinna Meistaradeildina og helst deildina heima fyrir líka. Allt annað og forríkir eigendur hika ekki við að láta stjórana fara.
Diego Simeone Atletico Madrid
Simeone hefur verið lengi við stjórnvölinn
hjá Atletico Madrid eða síðan 2011. Það er
langur tími í nútíma fótbolta. Fréttir undan-
farið hafa bent til að Simeone sé líklegur til
að yfirgefa Madrídarborg enda staða liðsins
ekki ásættanleg, eða sjötta sætið, og aðeins
16 mörk skoruð. Fortíðin skiptir engu en
Simeone er búinn að vinna La Liga einu
sinni og Evrópudeildina tvisvar auk þess að
komast í úrslitaleik Meistaradeildarinnar.
Zinedine Zidane Real Madrid
Seinni stjóratíð Zidane hefur ekki beint
verið dans á rósum. Þó liðið sé jafnt Barce-
lona í efsta sæti er það bara ekki nóg.
Fótboltinn sem liðið spilar er ekki nógu fal-
legur, leikmenn ekki nógu góðir og leikstíll-
inn fyrir neðan virðingu Real Madrid. Þess
má geta að Real hefur aðeins tapað einum
leik í deildinni og er komið áfram í Meistara-
deildinni. Ástandið hefur verið að skána en
ekkert mikið meir.
Ernesto Valverde Barcelona
Einhvern veginn hefur Barcelona ekki hrist
4-0 ósigur gegn Liverpool af sér. Liðið náði
aðeins í sjö stig af 15 mögulegum sem var
versta byrjun liðsins í 25 ár. Það er þó á
toppi F-riðils í Meistaradeildinni, og einnig á
toppnum heima fyrir. En flestir stuðnings-
menn vilja þjálfarann burt, enda leikstíllinn
ansi frábrugðinn því sem menn eiga að
venjast á Nývangi. Langir boltar fram og
von um að Messi töfri fram úrslit.
Lucien Favre Dortmund
Það hefur gustað um Frakkann á hliðarlín-
unni enda tímabilið á góðri leið með að fara
í vaskinn þrátt fyrir mikla fjárfestingu inn
í leikmannahópinn. Pressan er að nálgast
suðumark þar á bæ. Meðhöndlun hans á
einni stærstu stjörnu liðsins, Jadon Sancho,
þykir einnig frekar undarleg. „Kæri Lucien,
þú hefur traust okkar, en á endanum snýst
fótbolti um úrslit,“ sagði framkvæmdastjóri
Dortmund fyrir stuttu.
Carlo Ancelotti Napoli
Trúlega er hægt að skrifa bók um hvað er
að gerast baksviðs hjá Napoli. Líklega mun
Ancelotti fá nóg bráðum og segja upp. Liðið
ætlaði sér langt og fjárfesti vel en er núna í
sjöunda sæti. Forsetinn hefur sektað leik-
menn um 25% af mánaðarlaunum þeirra því
leikmenn sögðu nei takk við æfingabúðum í
heila viku eftir tapleik. Leikmannasamtökin
hafa blandað sér í málið. Þá er völlurinn
hálfkláraður og í raun allt í bullinu.
Ole Gunnar Solskjær Manchester United
Solskjær virðist alltaf vera tveimur vondum
úrslitum frá því að vera rekinn. Leikmenn
virðast þó vera á bak við Norðmanninn
en spilamennska liðsins er einfaldlega
ekki nógu góð, hvað þá úrslitin og er liðið
sjö stigum frá fallsæti. Liðið tekur á móti
grönnum sínum í City um helgina þar sem
sigurlíkur eru nánast engar. Fjölmargir titla-
óðir stjórar eru á lausu og sæti Solskjær er
alveg ylvolgt - því verður ekki neitað.
Thomas Tuchel PSG
Það er auðvitað ekkert grín að reyna að
stýra liði sem hefur Neymar innan sinna
raða. Draumur félagsins er að vinna Meist-
aradeildina enda vinnur PSG deildina með
yfirburðum. Innan raða liðsins eru tveir af
dýrstu knattspyrnumönnum sögunnar.
Þrátt fyrir það nær Thomas Tuchel ekki að
komast lengra en í 16 liða úrslit og hann fær
ekki fleiri sénsa á að koma liðinu lengra í
keppninni en þetta tímabil – það þykir ljóst.