Fréttablaðið - 07.12.2019, Síða 22
Hver er kveikjan að þessum teikning-um og hvernig var vinnuferlið? „ V e r k e f n i ð byrjaði sem röð
teikninga af tilfinningaf lækjum.
Það sem upprunalega hófst sem
lítið teikniverkefni, óx og vatt upp
á sig og eftir því sem teikningunum
fjölgaði fór ég að skrifa texta við
þær líka. Verkefnið f læddi áfram,
tók stjórnina og bók tók á sig mynd.
Spenna og togstreita er áberandi í
teikningunum. Alls kyns tákn-
myndir og fyrirbæri berjast um.
yfirhöndina en reyna líka að lifa
og funkera í góðu jafnvægi.
Í tölfræði eru til dæmis gröf
notuð til að setja fram mælanleg
fyrirbæri. Það er hins vegar erfitt
eða jafnvel ómögulegt að mæla til-
finningar, en þessar teikningar eru
hins vegar tilraun til þess. Þær eru
eins konar tilfinningagröf.
Textann skrifaði ég hægt og
rólega meðfram því að teikna. Þar
af leiðandi er textinn og myndefnið
nátengt og talar hvort við annað.
Textinn lýsir ólíkum stigum f lók-
innar tilfinningakúrfu. Umfjöllun-
arefni textans er því þróunarsaga
stökkbreyttra f lókinna tilf inn-
inga,“ útskýrir Arnar.
Hann á skýra minningu af því
þegar hann byrjaði á teikningaröð
sinni. „Ég var í togstreitu og fullur
tilfinninga sem ég átti erfitt með
að lýsa eða færa í orð. Kannski var
ég að reyna að teikna þetta hugar-
ástand mitt. Ég efast um að ég hafi
náð að fanga það í teikningu en mér
líkaði þessi aðferð svo ég hélt áfram
að teikna án þess að setja of mikla
hugsun eða alvöru í það, ég ákvað
að fylgja tilf inningunni fremur
áreynslulaust. Teikningarnar urðu
72 talsins og hverri og einni fylgir
stuttur texti. Þá fannst mér liggja
beint við að gefa út bók.“
Teikningarnar fá líf í klæðnaði,
hvernig fæddist sú hugmynd að
klæðast teikningunum?
„Pólska listakonan og fatahönn-
uðurinn Agata Mickiewicz stakk
upp á að við myndum sameina
krafta okkar og búa til íþróttagalla
eða tracksuit úr einni teikning-
unni. Hún valdi teikningu af snák
að sleikja sjálfan sig, kannski svona
eins og hann sé að bragða á sér áður
en hann ákveður hvort hann vilji
borða sjálfan sig.
Agata silkiþrykkti myndina á
efni og saumaði nokkrar prótótýp-
ur af íþróttagalla. Rauðar peysur
og hvítar buxur. Við fengum mikil
viðbrögð við gallanum í útgáfuhófi
bókarinnar í Berlín á dögunum svo
við ákváðum að gera hópsöfnun og
bjóða 20 stykki af gallanum. Hægt
er að finna verkefnið inni á Karol-
inafund undir Ouroboros Tracksu-
it, Atagata x Arnar Ásgeirsson.“
Þú sýnir fyrst í Þýskalandi og nú
á Íslandi, eru sýningarnar að ein-
hverju leyti ólíkar?
Mér var boðið að taka þátt í sýn-
ingarverkefninu _in conversation
with_ sem þýski sýningarstjórinn
Katharina Wendler stendur fyrir.
Sýningarverkefnið hennar snýst
um að para saman listamann
við sý ningarstjóra, r ithöfund
eða annan listamann og búa til
sýningu og texta út frá samræðum
þeirra.
Hún paraði mig saman við annan
sýningarstjóra, Annabelle Von
Girsewald og Agötu Mickiewicz,
og út frá því settum við saman sýn-
inguna Cozy Catastrophe sem fór
fram í Berlín í nóvember. Sýningin
var útgáfupartí á bókinni og allar
teikningarnar úr bókinni voru til
sýnis. Á þeirri sýningu fékk ég til
liðs við mig góðkunningja, frænda
og samstarfsmann til margra ára,
Styrmi Örn Guðmundsson.
Við klæddumst íþróttagöllunum
og frömdum gjörning á opnuninni,
við sungum mis frumsamin lög og
sögðum sögur. Gjörningurinn var
eins konar tískusýning og kynn-
ing á göllunum. Í Harbinger verður
þetta aðeins rólegra, hægt verður
að skoða bókina og teikningar úr
bókinni og ég verð einn þarna í
mínum galla og býð fólki upp á
mandarínu eða eitthvað jólalegt.
kristjanabjorg@frettabladid.is
Tilraun til að mæla tilfinningar
Arnar Ásgeirsson myndlistarmaður fagnar útgáfu bókar sinnar Transmutants and Emotional Curves í Harb
inger galleríi í dag. Teikningar úr bókinni verða til sýnis og Arnar klæðist fatnaði með teikningum sínum á.
Vegna mikillar eftirspurnar hefur Arnar Ãsgeirsson myndlistamaður hafið sölu á íþróttagöllum eins og hann klæðist sjálfur á Karolina fund. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTONBRINK
Teikningar Arnars af snák að sleikja sjálfan sig fá líf í klæðnaði.
ÉG VERÐ EINN ÞARNA Í
MÍNUM GALLA OG BÝÐ
FÓLKI UPP Á MANDARÍNU
EÐA EITTHVAÐ JÓLALEGT.
7 . D E S E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R22 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
HELGIN