Fréttablaðið - 07.12.2019, Page 24

Fréttablaðið - 07.12.2019, Page 24
Þau Aron Einar og Kristbjörg með sonum sínum á heimili sínu í Katar. Flutningurinn hefur verið viðbrigði fyrir fjölskylduna. Hjónin Aron Einar Gu n na r s son og Kristbjörg Jónas-dóttir eiga að baki langan og farsælan feril á sviði íþrótta. Blaðamaður sló á þráðinn til þeirra hjóna á heimili þeirra í Katar, forvit- inn um líf á framandi slóðum, bak- grunn þeirra og framtíðarverkefni. Hjónin eiga það sameiginlegt að hafa haft brennandi áhuga á íþróttum frá unga aldri. Lífið snerist um íþróttir og Aron Einar var ekki nema sautján ára þegar hann hélt utan á vit atvinnumennsku í fót- bolta. „Ég er alinn upp á Akureyri og tók þátt í f lestöllum íþróttum sem ég komst í og það snerist allt um það. Eftir að hafa kláraði fyrsta árið í Menntaskólanum á Akureyri, fékk ég tækifæri í atvinnumennsku og f lutti til Hollands þar sem ég lék fyrir AZ Alkmar næstu tvö árin,“ segir Aron Einar. Kristbjörg iðkaði meðal annars frjálsar íþróttir, fimleika og fót- bolta. „Ég er alin upp á Álftanesi og er það svona mitt „heima“ en bjó líka í nokkur ár úti á landi í litlum bæ sem heitir Stöðvarfjörður þegar ég var lítil. Ég hef alltaf verið á bóla- kafi í íþróttum, hvort sem það voru frjálsar, fimleikar eða fótbolti,“ segir Kristbjörg af hógværð. Hún er ein fremsta íþróttakona okkar Íslend- inga í fitness og hefur unnið til þó nokkurra verðlauna bæði heima og erlendis. Kristbjörg hefur lagt fitnessskóna á hilluna en hefur skapað sér gott orð sem einkaþjálfari og heldur úti vinsælum Instagram-reikning þar sem hún deilir ýmsum fróðleik tengdum hreyfingu, mataræði og öllu því sem viðkemur heilbrigðum lífsstíl í bland við að veita áhuga- sömum innsýn í lífið í Katar. „Ég spái ekki í útlitinu þegar ég þjálfa, heldur því að verða heil- brigðari, sterkari og liðugri. Það sem mér finnst mikilvægt að komi frá mér sem þjálfara er þessi gullni meðalvegur. Þú þarft ekki að æfa mörgum sinnum í viku og fara eftir ströngu mataræði, þetta þarf ekki að vera f lókið, ef þú kemst ekki í ræktina þá er fínt að fara út að labba. Það sem skiptir máli er að gefa sér tíma og hlúa að sér. Það er það sem ég legg áherslu á; heilbrigði og vellíðan.“ Hún er þekkt fyrir að vera alþýð- leg og heldur ekki úti glansmynd af sjálfri sér á samfélagsmiðlum. „Ég vil tengjast mínum fylgj- endum persónulega og mér finnst nauðsynlegt að fólk sýni ekki alltaf bara hvað allt sé frábært. Þess vegna hef ég reynt að tala um það opinber- lega þegar ég er uppgefin eða á erf- iðan dag. Lífið er ekki alltaf dans á rósum en erfiðleikarnir ganga alltaf yfir. Mér finnst alveg magnað að ég hafi aldrei fengið nein leiðinleg við- brögð eða neikvæðni í minn garð. Mér finnst gott að geta gefið eitt- hvað af mér og það er frábært ef ég get hjálpað einhverjum,“ segir Krist- björg. „Fólk heldur að þetta líf atvinnu- manna úti í heimi sé glæst ævin- týralíf en glansmyndir eru skað- legar. Við verðum að geta talað um lífið eins og það er og ég er að glíma við það sama og allir aðrir.“ Kristbjörg missti nána vinkonu sína, Fanneyju Eiríksdóttur, á árinu. „Ég er alls ekki búin að vinna úr því að hafa misst hana. Ég er ekki búin að átta mig á því að hún sé dáin. Þetta er svo óraunverulegt, ég sakna hennar svo mikið. Ég talaði við hana á hverjum degi á Facebook og finnst stundum eins og hún gæti þess vegna slegið á þráðinn til mín og birst á spjallinu. Það er búið að vera svo mikið í gangi síðasta ár, ég hef ekki haft tíma til að meðtaka hlutina.“ Foreldrahlutverkið vinna Kristbjörg hefur einmitt reglu- lega sagt frá foreldrahlutverkinu á Instagram-síðunni og viðurkennt að það geti verið erfitt að vera ein með strákana þegar Aron er á ferða- lögum vegna vinnunnar. Þau segja foreldrahlutverkið mjög gefandi en krefjandi á sama tíma. „Maður þarf að þroskast svo- lítið mikið og það breyttist ýmis- legt þegar við vorum komin með tvo gaura svona eins og gengur og gerist en okkur finnst þetta passa við okkur. Hérna úti í Katar búum við í mjög fjölskylduvænu hverfi þar sem öryggisgæslan og annað er alveg tipp topp. Núna er gott veður fyrir Oliver til þess að fara út að leika sér og það er svona það sem maður var vanur að geta gert þegar maður var yngri. Maður fékk að fara út að leika sér og það er svona stemmingin yfir þessu hérna finnst mér. Foreldrahlutverkið er frábært og ég er hrikalega stoltur af þeim. Þetta gefur manni svo mikið,“ segir Aron sem er greinilega hreykinn af drengjunum. „Þetta er virkilega krefjandi en á sama tíma mjög gefandi. Það er ynd- islegt að fá að upplifað það að vera foreldri en það er alveg hægt að segja að þetta sé vinna,“ segir Kristbjörg. Fjarri stórfjölskyldunni Þau Aron og Kristbjörg gengu í það heilaga árið 2017 og fékk brúðkaup- ið talsverða athygli bæði í íslenskum og erlendum fjölmiðlum, enda eitt þekktasta par landsins. Saman hafa þau gengið í gegnum ýmislegt, bæði tap og sæta sigra innan vallar sem utan, allt frá því að þau kynntust fyrir sjö árum í gegn- um sameiginlega vini. Kristbjörg lagði svo land undir fót og fluttist til Cardiff 2013 þar sem Aron gegndi veigamiklu hlutverki í liðinu frá árinu 2011 og þar til í lok síðasta árs. Þau hjón eiga saman tvo drengi, þá Óliver og Tristan og aðspurð um hvernig fótboltalífið samræmist fjölskyldulífinu segja þau þetta allt saman hafa sína kosti og galla eins og bara allt annað. „Auðvitað fylgir þessu fullt af fríð- indum en sömuleiðis gallar eins og tíð ferðalög sem dæmi. Því að vera atvinnumaður í fótbolta fylgir mikil pressa og þeir þurfa alltaf að vera í standi. Við áttum ekki börn þegar ég f lutti út til Arons á sínum tíma þannig að ég hef kynnst þessu á báða vegu. Þetta er vissulega öðru- vísi en við erum búin að venjast vel og við reynum að gera það besta úr því,“ segir Kristbjörg. Hún viður- kennir þó að það geti tekið á að hafa stórfjölskylduna ekki nær en raun ber vitni. Lífið er ekki alltaf dans á rósum Hjónin Aron Einar Gunnarsson, fyrirliði íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu, og Kristbjörg Jónasdóttir einka- þjálfari fluttu fyrr á þessu ári til Katar. Þau segja frá aðlögun að lífi á framandi slóðum og sýn sinni á lífið. Aníta Estíva Harðardóttir anita@frettabladid.is 7 . D E S E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R24 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.