Fréttablaðið - 07.12.2019, Síða 31
Opið alla virka daga frá kl. 8.30 - 18 og á laugardögum frá kl. 11 - 16 fram að jólum.
Öll tilboð gilda út desember 2019 eða meðan birgðir endast.
Jól 2019
Jólabæklingur Smith & Norland er kominn út.
Glæsilegar vörur á sérstöku jólaverði.
Þvottavél,
iQ 300
WM 14N1B8DN
Vindur upp í 1400 sn./mín. Kolalaus,
hljóðlátur og sparneytinn mótor með
10 ára ábyrgð.
Fullt verð: 104.900 kr.
Jólaverð:
83.900 kr.
Tekur mest
8
Orkuflokkur
ábyrgð á
iQdrive
mótornum
10 ára
Þurrkari,
iQ 300
WT 45RVB8DN
Gufuþétting, enginn barki.
Fullt verð: 129.900 kr.
Jólaverð:
99.900 kr.
Tekur mest
8
Orkuflokkur
N Ý T T
Ryksuga,
Serie 2
BZGL 2X100
Lítil og nett en öflug. Snúra: 8 m.
Hljóð: 80 dB.
Fullt verð: 19.900 kr.
Jólaverð:
14.900 kr.
N Ý T T
Espressó-kaffivél,
EQ.500
TQ 505R09
Hraðvirk upphitun. Kaffikvörn úr
keramík. Snertiskjár. Þrýstingur: 15 bör.
Fullt verð: 169.900 kr.
Jólaverð:
139.900 kr.
Stadler Form
Lofthreinsitæki
Roger little
Eyðir ólykt, ryki, frjókornum og
öðrum örverum í híbýlum okkar.
Herbergisstærð: Allt að 35 m2.
Fullt verð: 39.900 kr.
Jólaverð:
29.900 kr.
Molekyl
Borðlampi
68909-15
Hæð: 25 sm.
Fullt verð: 7.900 kr.
Jólaverð:
5.900 kr.
VIÐ HÖFUM HAFT SVO-
KALLAÐA GRÆNA EFNA-
FRÆÐI AÐ LEIÐARLJÓSI,
ÞAÐ ER EKKI AUÐVELD-
ASTA LEIÐIN EN SÚ EINA
SEM KOM TIL GREINA Í
OKKAR HUGA.
að efni sem þörungar í Bláa lóninu
framleiða hafi áhrif á ónæmiskerfið
og minnki bólgur Psóríasis-sjúkl-
inga. Framundan eru enn frekari
rannsóknir á bólguhemjandi virkni
þörunganna.
Framtíðin á eftir að leiða í ljós
hvort fyrirtækið komi til með að
framleiða lyf sem gagnast fólki með
húðsjúkdóma.
„Fyrstu árin unnum við að því
að rannsaka þessar sögur sem fólk
sagði af bata sínum. Það greindi til
dæmis frá því að það skipti máli
að bera kísilinn á húðina og lýstu
því að húðin yrði mýkri og greri
hraðar. Við rekum meðferðarstöð
fyrir psóríasis-sjúklinga og fólk
vildi geta tekið kísilinn með sér
heim. Læknisstarfsemin ýtti undir
vöruþróunina. Áskorun okkar
var þessi: Hvernig ætluðum við að
koma óspilltum áhrifum náttúru-
auðlindarinnar heim til fólks? Við
ákváðum að vera trú upprunanum
og halda í hreinleikann. Við höfum
ekki haggast í þeirri afstöðu okkar
öll þessi ár.
Umhverfisvæn nýjung
Framleiðsluferli okkar líkja eftir
þeim aðstæðum þar sem kísill og
þörungar verða til í náttúrunni.
Örþörungar sem koma úr jarðsjó
Bláa Lónsins eru mikilvæg lífvirk
efni í Bláa Lóns snyrtivörunum.
Þeir hafa frá upphafi verið ræktaðir
í ljóstillífunarkerfum þar sem þeir
binda koldíoxíð og breyta honum
í lífmassa og súrefni. Þörungarnir
eru fóðraðir á koldíoxíðríku jarð-
varmagasi sem annars færi út í
andrúmsloftið. Rannsóknir Bláa
Lónsin leiddu til þess að hægt er að
nota jarðvarmagas óbreytt og án
hreinsunar sem er byltingarkennd
og hrein umhverfisvæn nýjung,“
segir Ása frá.
„Við unnum með stórum dreif-
ingaraðila og vörunum var dreift
í gegnum apótek í Þýskalandi
á upphafsárum okkar. Þannig
komumst við í tengsl við þarlenda
vísindamenn og húðlækna sem
hafa unnið með okkur síðan þá
að lífvirknirannsóknum á vörum
okkar. Þessir samstarfsaðilar hafa
sérhæft sig í öldrun húðarinnar og
áhrifum umhverfisins á hana. Það
hefur vakið sérstakan áhuga þeirra
hvernig Bláa Lóns þörungarnir
virka gegn öldrun húðar og vernda
kollagenforða hennar.
Kollagen er burðarefnið í húðinni
okkar og það minnkar um 1% á ári
frá tvítugsaldri. Því meira sem við
erum í sólinni því meira brotnar
það niður. Þýsku samstarfsaðilarnir
hafa skoðað hvernig þörungarnir
örva nýmyndun á kollageni og verji
húðina fyrir niðurbroti á kollageni
sem verður fyrir tilstuðlan sólar-
innar. Þetta var upphaflega skoðað
í frumulíkönum og það komu mjög
spennandi niðurstöður úr þeim
rannsóknum.
Í kjölfarið var ákveðið að taka
þetta lengra og þróa vöru með þör-
ungum og fara í klínískar prófanir.
Byggt á niðurstöðum rannsókn-
anna fengum við einkaleyfi á nýt-
ingu á þörungunum í snyrtivörur og
lyf. Afrakstur þessa rannsókna eru
meðal annars ný andlitsolía, Algae
Bioactive Concentrate, sem vinnur
gegn öldrunareinkennum húðar.“
Brautryðjandi
Örþörungarnir eru ræktaðir á jarð-
varmagasi og jarðsjó. Það er líka
mikið sjónarspil að horfa á þá renna
í upplýstum glerpípum í setrinu.
„Við erum að nýta staðbundna
strauma frá jarðvarmavinnslu:
jarðsjó, gufu, gas og endurnýjanlega
raforku. Þetta er eini staðurinn þar
sem örþörungar eru ræktaðir með
þessum hætti til notkunar í snyrti-
vörur. Jarðgasið inniheldur mjög
hátt hlutfall koldíoxíðs og hentar
því vel í þessa vinnslu,“ útskýrir
Ása.
„Þegar við vorum að byrja var
engin græn bylting en þrátt fyrir
það hefur sjálf bærni alltaf verið í
orðabókinni okkar og við höfum
haft að markmiði að bera virðingu
fyrir náttúrunni, vernda auðlind-
irnar og efniviðinn og sporna gegn
sóun. Við höfum haft svokallaða
græna efnafræði að leiðarljósi, það
er ekki auðveldasta leiðin en sú eina
sem kom til greina í okkar huga“,
segir Ása.
„Við hefðum getað valið aðrar
leiðir sem hefðu kostað minna og
verið f ljótlegri. Til dæmis með því
að nota efnavörur sem fella kísilinn
út en við vildum leyfa þessu að ger-
ast á náttúrulegan hátt og vernda
gæðin og hreinleikann. Enda er það
svo að kísillinn er einn besti andlits-
hreinsir sem þú getur fengið. Hann
hefur svo mikla upptökueiginleika,
og ef við hefðum farið aðra leið þá
værum við hrædd um að missa þá
eiginleika. Hann hreinsar óhrein-
indi húðar og sýna rannsóknir að
kísillinn styrkir efsta varnarlagið
og jafnar áferð húðar.“
Ása segir að vísindamenn við
setrið vinni með hópi vísinda-
manna við háskóla og rannsóknar-
setur víða um heim. „Rannsókn-
irnar fara yfir svo mörg og ólík
svið, og höfum við því lagt upp úr
því að starfa með sérfræðingum
innanlands og erlendis. Við höfum
átt gott samstarf við háskólana hér
heima. Það má til gamans geta þess
að nýlega útkskrifuðust tveir dokt-
orsnemar við læknadeild HÍ sem
unnu verkefni sín í samvinnu við
Landspítalann og Bláa Lónið. Einn-
ig hefur fjöldi meistaranema unnið
að lokaverkefnum sínum hér.“
H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 31L A U G A R D A G U R 7 . D E S E M B E R 2 0 1 9