Fréttablaðið - 07.12.2019, Síða 32

Fréttablaðið - 07.12.2019, Síða 32
Mig hefur alltaf langað að verða leikkona og það er eiginlega það eina sem ég hef alltaf verið viss um bara alveg frá því að ég var lítil,“ segir Þórdís Björk Þorfinnsdóttir leikkona. „Ég var uppskrift af óþol- andi barni sem elskaði að láta horfa á sig og fá athygli,“ bætir hún við og hlær. Þórdís sleit barnsskónum í Foss- voginum og er yngst þriggja systk- ina. „Ég er alveg langyngst. Bjössi bróðir er tólf árum eldri en ég og Bragi tíu árum eldri,“ segir hún. „Ég er algjört örverpi þannig að ég var dekurrassgat sem fékk mikla athygli heima.“ Eftir að hafa gengið í Fossvogs- skóla, Réttó og Versló ákvað Þórdís að sækja um í Leiklistardeild Lista- háskóla Íslands. Henni gekk vel í inntökuprófunum en komst þó ekki inn. „Ég komst í lokahópinn þegar ég sótti fyrst um og komst svo ekki inn. Það var alveg smá högg og fékk mig til að hugsa um það af hverju þetta væri það sem mig dreymdi um að gera. Sem er mjög gott og jafnvel nauðsynlegt þegar maður velur sér starfsframa,“ segir hún og bætir við að fram að þessu hafi hún átt frekar áfallalaust líf. Gafst ekki upp Þórdís segist hafa upplifað mikla höfnun þegar hún komst ekki inn í leiklistarnámið. „Ég er heppin með það að þetta var í fyrsta skipti sem ég fékk einhverja svona alvöru höfnun,“ segir hún. „Það er náttúrulega mjög mikil höfnun í þessum bransa svo eftir á að hyggja er ég mjög ánægð með að ég hafi ekki komist inn í fyrsta skipti. Þarna fékk ég heilt ár þar sem ég gat hugsað af hverju ég vildi gera þetta og ræktað aðra hluti.“ Þórdís var ákveðin í því að sækja um aftur í leiklistardeildina að ári liðnu og segir hún að höfnunin hafi hvatt hana enn frekar til þess að sækjast eftir því sem hana hafði allt- af dreymt um. „Ég hafði alltaf verið mikið í myndlist og á þessu ári fór ég í Myndlistaskólann í Reykjavík og svo setti ég upp sýningu með vin- konum mínum í Gaflaraleikhúsinu. Þetta var ótrúlega gott og lærdóms- ríkt ferli,“ segir Þórdís. Að árinu liðnu fór hún aftur í prufur og komst inn. „Það kom aldrei neitt annað til greina en að reyna aftur. Ég vissi að ef ég myndi ekki gera það þá yrði ég ekki sátt við sjálfa mig,“ segir hún. Upplifði mikinn kvíða Þórdís var virkilega spennt fyrir náminu og naut sín vel. „Ég var komin í draumanámið mitt og var í frábærum bekk með bestu vinum mínum og mér var búið að ganga mjög vel. Svo verð ég ófrísk og ég bara varð að eignast þetta barn. Það var einhvern veginn allt sem sagði mér að gera það,“ segir hún. „Ég var ekki með barnsföður mínum sem gerði það enn þá erfið- ara því ég vissi bara að ég væri að fara að gera þetta ein að miklu leyti þó að hann hafi alveg verið eitt- hvað til staðar. Þetta var mjög erfið ákvörðun og ég man að ég hugsaði hvað það væri mikið að taka mér ár frá náminu, vera ein ólétt og koma svo aftur og þurfa að fara í nýjan bekk og vera með barn,“ segir Þór- dís. „Ég var mjög kvíðin yfir þessu. Þjáðist af miklum kvíða alla með- gönguna og leið bara mjög illa,“ segir hún. Þórdís hafði verið lengi með barnsföður sínum áður en hún varð ólétt og upplifði hún aftur mikla höfnun þegar leiðir þeirra skildi. „Þarna er ég bæði ólétt og í ástarsorg og búin að upplifa mikla höfnun frá barnsföður mínum,“ segir hún. „Það er bara mjög erfitt að vera einn og óléttur. Þessi tími mótaði mig mikið og ég var berskjölduð,“ útskýrir Þórdís. „Ég var því búin að vera að takast á við mína galla og mitt líf í náminu og svo kemur það upp að ég verð ófrísk. Þá breyttist allt og kvíðinn tók yfir. Á tímabili leið mér þannig að ég kæmist ekki í gegnum með- gönguna, svo mikill var kvíðinn,“ segir Þórdís. Allt breyttist Rúmum níu mánuðum síðar eignað- ist Þórdís son sinn, Bjart Esteban, og segir hún að það hafi breytt sér að verða móðir. „Það er kannski ótrú- lega klisja en þetta hlutverk breytir manni svakalega mikið og mér finnst ég vera önnur manneskja í dag,“ segir Þórdís. „Svo er það líka þannig að þegar maður er búinn að ganga í gegnum svona mikla erfiðleika þá finnst manni eins og maður sé ósigrandi og það er mjög góð tilfinning,“ segir hún og stoltið leynir sér ekki í rödd- inni. Þórdís naut þess að vera heima með Bjart en kvíðinn hvarf þó ekki að fullu. „Ég upplifði það eftir að hann fæddist að ég varð hrædd um að tengjast honum ekki,“ segir hún. „Ég þurfti að fara snemma að vinna aftur því ég var ein með strákinn og þurfti að eiga pening. Svo þurfti ég að ferðast mikið bæði með Reykja- víkurdætrum og vegna verkefna í skólanum,“ segir hún. „Þarna var ég líka komin með manneskju í líf mitt sem mér leið eins og hægt væri að taka frá mér,“ segir hún. „Mér fannst mjög erfitt þegar hann fór til pabba síns og svona en við erum að reyna að finna tempó sem hentar okkur í þessum nýju hlutverkum.“ Þórdís tengdist þó Bjarti og nýtur þess að vera móðir. Hún reynir að verja tíma sínum í að gera eitthvað sem ræktar hjá henni góðar tilfinn- ingar og líður best ef hún er dugleg að hreyfa sig. „Svo hjálpar það mér mikið að drekka ekki áfengi því að það er eins og eitur þegar maður er með kvíða og svo hefur það ekki góð áhrif á röddina mína,“ segir hún. Varð Disney prinsessa Þórdís notar röddina mikið við vinnu sína. Hún er nú við æfingar á söngleiknum Vorið vaknar í Sam- komuhúsinu á Akureyri þar sem hún leikur aðalhlutverkið, f lytur tónlist með Reykjavíkurdætrum og þar að auki vinnur hún mikið við talsetningar. Landsmenn geta hlýtt á rödd hennar í bíóhúsum landsins um þessar mundir þar sem hún talar og syngur hlutverk Önnu prinsessu í Frozen. „Ég byrjaði eiginlega í talsetn- ingum fyrir algjöra tilviljun,“ segir Þórdís. „Ég var stödd í stúdíói hjá vini mínum og hann fer að tala um að ég geti nú alveg sungið og að hann sé að prufa fyrir hlutverk í bíó- mynd, svo býður hann mér að koma í prufu.“ Þórdís fer í prufuna án þess að vita fyrir hvaða hlutverk sé verið að prufa. ,,Svo kemur í ljós að hlutverk- ið er Anna í Frozen. Eftir prufurnar hér er prufan send út til Disney, þeir samþykkja og ég fékk hlutverkið,“ útskýrir hún. Ég gerði mér ekki grein fyrir því hversu stór myndin yrði en úr varð að hún varð bara eins og Lion King er fyrir mína kynslóð. Eftir að ég talaði fyrir Önnu fór boltinn að rúlla og nú tala ég fyrir hina ýmsu karaktera,“ segir Þórdís en hún hefur meðal annars talað fyrir Poppy í kvikmyndinni Trolls auk þess að tala fyrir hin ýmsu hlutverk í barnaefni sem sýnt er á sjónvarps- stöðvum landsins. „Mér f innst þetta ótrúlega skemmtilegt og ég nýt þess að fara í vinnuna og nota röddina mína, sem er jú stærsta verkfæri leikara, til að glæða alls konar karaktera lífi,“ segir Þórdís og hlær. „Ég horfði sjálf á allar þessar Dis- neymyndir þegar ég var lítil og lang- aði að vera eins og margar prinsess- urnar svo það gerir það að verkum að það er enn skemmtilegra að fá að vera Anna,“ segir hún. „Svo er Anna svo ótrúlega nett týpa og mér finnst hún geggjaður karakter. Það eru einhvern veginn allir með Elsu í liði og ég er ekki alveg nógu ánægð með það,“ segir hún og hlær. „Anna fórnar sér fyrir systur sína og reddar öllu, við megum ekki gleyma því,“ segir Þór- dís að lokum. Góð tilfinning að upplifa sig ósigrandi Þórdísi Björk Þorfinnsdóttir vissi alltaf að hana langaði að verða leikkona. Hún fór í leiklistarnám en líf hennar breyttist þegar hún varð ólétt og upplifði mikinn kvíða. Þórdís hefur talsett mikið magn barnaefnis og talar meðal annars fyrir Önnu í Frozen. Þórdís fer með aðalhlutverkið í Broadway-söngleiknum Vorið vaknar sem frumsýndur verður í Samkomuhúsinu á Akureyri í lok janúar. Þar leikur hún Weldu Bergmann. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN ÞARNA ER ÉG BÆÐI ÓLÉTT OG Í ÁSTARSORG OG BÚIN AÐ UPPLIFA MIKLA HÖFNUN FRÁ BARNSFÖÐUR MÍNUM. Birna Dröfn Jónasdóttir birnadrofn@frettabladid.is 7 . D E S E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R32 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.