Fréttablaðið - 07.12.2019, Page 34

Fréttablaðið - 07.12.2019, Page 34
Jurij er 38 ára gamall, einstæð-ur og barnlaus, og f lutti til Íslands fyrir tveimur árum. Blaðamaður spyr hvort það sé rétt að hann hafi aðeins átt 100 evrur þegar hann lenti á Keflavíkurflugvelli. „120,“ segir Jurij og glottir. „En ég þurfti að borga 22 í skutluna.“ Vinkona Jurij, Sandra að nafni, hafði f lutt hingað á undan og talaði vel um staðinn. „Ég þurfti eitthvað nýtt í lífinu og norðlægar slóðir heilluðu mig,“ segir Jurij en það var líka annað sem kom til. „Þið Íslend- ingar áttið ykkur kannski ekki á því en búsáhaldabyltingin eftir banka- hrunið 2008 vakti athygli í Evrópu, og þar með talið Slóveníu. Þið ættuð að vera stolt af þessu.“ Í Slóveníu stýrði Jurij góðgerðar- samtökum sem studdu fólk sem hafði lent í skuldum eða sektum. Aðstoðaði hann það við að semja og vinna af sér skuldirnar með samfélagsþjónustu. Eins og annars staðar hafði bankahrunið áhrif í Slóveníu, en Jurij segir að andlega hliðin hafi skipt meira máli en sú fjárhagslega. Slóvenía er lítið land en eitt það ríkasta í Austur-Evrópu. Uppgangurinn þar tafðist á árunum eftir hrun. Þúsundþjalasmiður Jurij er ánægður með lífið á Íslandi og hyggst setjast hér að til fram- búðar. Hann hefur þegar ákveðið að festa kaup á íbúð í byrjun næsta árs og hefur náð ágætis tökum á tungu- málinu. Þúsundþjalasmiður er eitt af orðunum sem hann hefur lært, og það er það sem hann er. „Mér líður mjög vel hérna. Ég veit að ég hef viljann og hæfnina til að skapa verðmæti og bjóða Íslending- um þjónustu,“ segir hann. „Í byrjun þurfti ég að leggja mikið á mig, bar út póst og vaskaði upp á veitinga- stöðum, til að safna fyrir verk- færum og slíku. Í janúar á þessu ári setti ég mitt eigið viðgerðafyrirtæki á laggirnar, Pahernik ehf.“ Heimaborg Jurij er Maribor, í norðausturhluta Slóveníu, upp við austurrísku landamærin. Borg sem er þekkt fyrir mikla fótboltahefð. Hún er svipuð að stærð og Reykja- vík en landslagið er allt öðruvísi. „Í Slóveníu er allt skógi vaxið. Hvert sem þú lítur eru tré. En Ísland hefur aðra náttúrufegurð upp á að bjóða. Vatnið er gott í Slóveníu, en ég verð að viðurkenna að það er betra hérna,“ segir hann og brosir. „Ég kann líka mjög vel við íslenska sumarið og hina eilífu birtu.“ Fyrsta ástin Slóvenía er þekkt fyrir ríka íþrótta- hefð, svo sem í handbolta, körfu- bolta og skíðum, enda alparíki. Sundknattleikur er þó íþróttin sem Jurij hefur ástríðu fyrir og hefur hann æft hana frá tólf ára aldri. Sundknattleikur er breskur að uppruna en er nú vinsælastur í Mið-Evrópu og á Balkanskaga, svo sem í Ungverjalandi, Serbíu, Króa- tíu og Svartfjallalandi. „Þetta var fyrsta ástin,“ segir hann. „Ég varð ástfanginn af sund- knattleik. Að eignast vini, æfa og keppa saman, finna traustið. Þetta var sérstakt og er enn.“ Á Íslandi æfa á fjórða tug sund- knattleik og Jurij hefur tekið að sér að þjálfa nýstofnað lið KR. Fyrir voru tvö starfandi lið, Ármann og Sundfélag Hafnarfjarðar. „Hingað til hefur stefnan verið að reyna að fá fólk sem kann íþrótt- ina fyrir að koma á æfingar, sem er f lest innf lytjendur, en mig langar til að kenna Íslendingum sjálfum að kynna sér íþróttina og mæta á æfingar. Þá myndast fótfesta og hefð,“ segir Jurij. „Á aðeins tveimur mánuðum höfum við náð fjöld- anum upp í níu iðkendur hjá KR. En ég vil fá f leiri inn og tel að þetta sé mjög heilsusamleg íþrótt.“ Órannsakaður markaður Íslendingar eiga sér nokkuð sér- staka sögu í sundknattleik því þetta var fyrsta liðsíþróttin sem við kepptum í á Ólympíuleikum og í fyrsta skipti sem við kepptum sem fullvalda þjóð. Var það árið 1936 í Þriðja ríki Hitlers. Ellefu manns skipuðu liðið, auk fjögurra þjálfara og fararstjóra, en í því liði voru meðal annars sundkennarar, læknir, dómari, skókaupmaður og píanisti. Íslenska liðið fékk skell í öllum leikjunum þremur en fékk líka mikið hrós, enda sett saman í hvelli, æfingaaðstaða bágborin og einungis 115 þúsund sálir í landinu. Nú er öldin önnur, fólki hefur fjölgað, meiri peningum er varið til íþróttastarfsemi og sundlaugar í hverju sveitarfélagi. Engu að síður hefur lítið farið fyrir sundknattleik síðan 1936. „Sundknattleikur hvarf í marga áratugi af því að það voru engir til að dæma leiki hérna,“ segir Jurij. „Í sundknattleik er mikil nánd á milli liðanna, rétt eins og í handbolta, og þegar enginn er að dæma leikina brjótast út leiðindi og slagsmál. Þá verður upplifunin neikvæð fyrir alla.“ Jurij segir að Ísland sé í raun til- valið land fyrir sundknattleik þó að hefðin sé ekki til staðar. „Ísland er hinn fullkomni órannsakaði markaður. Allir kunna að synda, frá smábörnum til gamalmenna og hér eru sundlaugar alls staðar. Kannski ekki keppnislaugar, en nýtast vel til að kenna þeim yngri í. Þetta er full- komið.“ Aðspurður hvort sundknattleik- ur sé ekki krefjandi íþrótt, að troða marvaða og kljást við aðra án þess að snerta bakkann, segir Jurij það vissulega svo. „Sumir segja að þetta sé erfiðasta íþrótt í heimi, en það ætti ekki að vera nein fyrirstaða. Íslendingum finnst skemmtilegt að fást við áskoranir, og eru hrifnir af hasarnum,“ segir hann og brosir. Jurij og félagar hans í sportinu eru metnaðarfullir og vongóðir um að íþróttin taki ærlega við sér á komandi árum. Nú þegar þrjú lið eru komin til sögunnar er hægt að hafa alvöru deildarkeppni og senda meistarana í Evrópukeppni. Þá sér Jurij einnig fyrir sér að hægt verði að koma landsliði á laggirnar í nálægri framtíð. Umgengst heimamenn Samkvæmt Hagstofunni eru 65 íbúar af slóvenskum uppruna á Íslandi og Jurij þekkir um 15 þeirra lítillega. Hann segist þó ekki umgangast þá mikið heldur frekar heimamenn. Hann ferðast heldur ekki mikið heim til Slóveníu. Mest- ur tími hans fer í vinnuna og íþrótt- ina. „Þegar ég á frítíma reyni ég að njóta lífsins. Hvíli mig, skemmti mér og fer í göngur út á land. Ég er mikill náttúruunnandi og lands- lagið hér er hreint ótrúlegt.“ Til Íslands með örfáar evrur í vasanum Jurij Pahernik kom nær allslaus til Íslands frá heimalandi sínu Slóveníu fyrir tveimur árum en hefur nú stofnað eigin fyrirtæki. Hann þjálfar einnig nýtt sundknattleikslið KR og segir Ísland tilvalið fyrir íþróttina. Jurij þjálfar nýtt sundknattleikslið KR í Laugardalslauginni þrisvar í viku, þriðjudags-, fimmtudags- og sunnudagskvöld . Frítt er að æfa og engin krafa um sundreynslu. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Í BYRJUN ÞURFTI ÉG AÐ LEGGJA MIKIÐ Á MIG, BAR ÚT PÓST OG VASKAÐI UPP Á VEITINGASTÖÐUM, TIL AÐ SAFNA FYRIR VERKFÆRUM OG SLÍKU. Í JANÚAR Á ÞESSU ÁRI SETTI ÉG MITT EIGIÐ VIÐGERÐAFYRIRTÆKI Á LAGGIRNAR. Kristinn Haukur Guðnason kristinnhaukur@frettabladid.is 7 . D E S E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R34 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.