Fréttablaðið - 07.12.2019, Qupperneq 36
Kristín Maríella Frið-jónsdóttir býr ásamt eiginmanni sínum og tveimur börnum á Balí en er í stuttu stoppi á Íslandi til
að fylgja eftir útgáfu fyrstu barna-
bókar sinnar, Stundum græt ég/
Stundum hlæ ég. Hún hefur síðustu
ár helgað sig uppeldisaðferð sem
byggir meðal annars á því að bera
virðingu fyrir tilfinningum barna,
RIE, Respectful Parenting, eða virð-
ingarríkt tengslauppeldi.
Hlátur og grátur mætast
Bókin er fagurlega myndskreytt
af Unu Lorenzen og eiginmaður
Kristínar Maríellu, Orri Helgason,
á ríkan þátt í útgáfu bókarinnar
og má kalla það þrekvirki að gefa
hana út bæði á íslensku og ensku
frá heimili þeirra á Balí. Uppsetning
bókarinnar er táknræn, tvær sögur
mætast í miðri bók. Hlátur og grátur
mætast og fjallað er um tilfinning-
arnar á hlutlausan hátt.
„Þetta er í fyrsta sinn sem ég er ein
heila nótt frá börnunum mínum,“
segir Kristín Maríella sem hittir
blaðamann á Kaffi Laugalæk. Þar
er þétt setið og hún segist njóta þess
að vera á Íslandi. „Það er svo gaman
að fá smjörþef af jólastemningunni
og mér finnst gott fyrir bæði mig og
börnin að brjóta aðeins upp rútín-
una. Eldri dóttir mín átti reyndar
sex ára afmæli í gær og mér fannst
auðvitað leiðinlegt að missa af því
. En ég er búin að lofa að koma með
jólin með mér frá Íslandi til Bali til
fjölskyldunnar,“ segir hún.
Fjölskyldan hefur fest rætur á
Balí. Þar áður bjuggu þau í nærri
fimm ár í stórborginni Singapúr.
Hvernig kom það til að þið fluttuð
hinum megin á hnöttinn?
„Við ætluðum fyrst að dvelja í
Singapúr í eitt ár á meðan maðurinn
minn stundaði meistaranám í staf-
rænni stjórnun við Hyper Island,
sænskan háskóla sem er með starf-
Vill skömmina
burt úr lífi barna
Kristín Maríella Friðjónsdóttir segir frá óhefðbundnu lífi fjölskyldu
sinnar í Singapúr og á Balí og virðingarríkum uppeldis aðferðum.
Hún er greind með athyglisbrest og líðan hennar í barnæsku er
á meðal þess sem drífur hana áfram í að leiðbeina foreldrum um
hvernig þeir geta stuðlað að heilbrigðu tilfinningalífi barna sinna.
Það sem heillar okkur er einstakt mannlífið sem markast af hindúatrú íbúanna sem er mikill hluti af daglegu lífi þeirra,“ segir Kristín Maríella um lífið á Balí. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
semi úti um allan heim. Þegar við
f luttum út var eldri stelpan okkar
aðeins sex mánaða. En okkur fannst
það henta vel og mikils virði að fá að
vera heima með hana í eitt til tvö ár
á meðan Orri stundaði námið. Þetta
var æðislegt nám og Orra var f ljót-
lega boðin vinna sem kennari við
skólann. Og þar sem okkur leið vel í
borginni þá var það algjör draumur.
Við höfðum ekki búið lengi í borg-
inni þegar við vissum að við vildum
vera lengur.
Við bjuggum fyrsta árið í Singa-
púr í pínulítilli stúdíóíbúð og hug-
leiddum meira að segja að leigja
með öðru fólki. Þetta er nefnilega
dýrasta borg í heimi og því lifðum
við klassísku námsmannalífi, borð-
uðum hafragraut, pasta og núðlur
og lifðum spart. Fólk var duglegt
að hughreysta okkur, við myndum
einhvern tímann líta aftur til þessa
tíma og sjá hann í rósrauðum
bjarma. Okkur fannst það nú ólík-
legt! En, svo gerðist það nýlega að
við litum um öxl og finnst þetta
hafa verið dásamlegur tími. Við
áttum eitt hjól og hjóluðum á því út
í búð og svona,“ segir Kristín Mar-
íella og hlær að minningunni.
Borgin í garðinum
Hvað er það sem er svona heillandi
við Singapúr?
„Singapúr er algjör suðupottur og
þangað streymir að fólk frá Vestur-
löndum sem býr þar til skamms
tíma, annaðhvort til að stunda nám
eða taka að sér stjórnunarstöður.
Borgin er skipulögð með þetta í
huga, enska er opinbert tungumál
í borginni. Hún er þægileg, hrein,
barnvæn og örugg. Og hún er mjög
græn, það er það helsta sem ég elska
við þessa borg. Stefna borgaryfir-
valda er ekki að byggja garða inni í
borg heldur borgina í garðinn. Það
er auðvitað auðvelt því hún er við
miðbaug. En svo er líka ótrúlega
mikil og metnaðarfull barnamenn-
ing í borginni,“ segir Kristín Mar-
íella sem segir þó miklar andstæður
einkenna menningu borgarinnar.
„Fólk vinnur mikið og það eru
reknir leikskólar í borginni sem
bjóða upp á vistun frá klukkan 7 á
morgnana til klukkan 7 á kvöldin,
það er auðvitað alltof langur dagur
fyrir börn og maður sér foreldra
leika við börn sín í myrkrinu á leik-
völlum. Þetta er framandi fyrir aðra
að sjá og upplifa,“ segir Kristín Mar-
íella. „En fyrir þá sem þurfa ekki að
vera langdvölum frá börnum sínum
vegna vinnu er mikið að sækja til
borgarinnar í menningu og metn-
aðarfullum viðburðum fyrir börn.“
Nærandi orka á Balí
Kristín Maríella og Orri fóru að
leiða hugann að því að flytja til Balí
eftir þriggja ára búsetu í Singapúr.
„Það er mjög stutt á milli Balí og
Singapúr, aðeins tveggja klukku-
stunda flug. Við fórum oft þangað
í frí og heilluðumst af orkunni á
eyjunni. Að flytja til Balí gerist hins
vegar ekki einn, tveir og þrír. Það
er ekki hægt að finna sér atvinnu
á Balí, heldur þarf maður að vera
með tekjur annars staðar frá. Við
settum okkur metnaðarfull mark-
mið og stefndum að því að láta þetta
ganga upp. Ég með mitt fyrirtæki
sem byggist á fræðslu um RIE og
Orri í starfi sínu fyrir Hyper Island.
Hann náði því í gegn að fá að vinna
fyrir skólann frá Balí og við tókum
stökkið eftir að hafa búið í nærri
fimm ár í Singapúr,“ segir hún til
marks um skipulagðan metnað og
langtímamarkmið þeirra hjóna.
„Okkur finnst nærandi og sterk
orka á Balí en ég held að Íslendingar
eigi svolítið skakka mynd af Balí í
huga sér. Að hún sé eins konar para-
dísareyja með hvítum ströndum
og tærum sjó. Það finnast strandir
á eyjunni með hvítum sandi en
f lestar þeirra eru svartar. Bærinn
sem við búum í er strandbær, svo-
lítið grófur. Það sem heillar okkur
er einstakt mannlífið sem markast
af hindúatrú íbúanna sem er mikill
hluti af daglegu lífi þeirra.“
Áhrifaríkur kvöldlestur
Kristín Maríella rekur bloggsíðuna
Respectful mom og samnefnda
Instagram-síðu. Þar fjallar hún um
virðingarríkt uppeldi við miklar
vinsældir. Hún hefur haldið fjölda
fyrirlestra og námskeið um upp-
eldi og hefur sett af stað samfélags-
miðlaherferðinni #viðurkennumtil-
finningar og #stundumgrætég sem
tengist bókinni. Í gegnum verkefnið
hvetur hún ásamt völdum þekktum
Íslendingum fólk til vitundarvakn-
ingar um mikilvægi þess að tjá til-
finningar sínar og viðurkenna þær.
FÓLK VINNUR MIKIÐ OG
ÞAÐ ERU REKNIR LEIK
SKÓLAR Í BORGINNI SEM
BJÓÐA UPP Á VISTUN
FRÁ KLUKKAN 7 Á MORGN-
ANA TIL KLUKKAN 7
Á KVÖLDIN,
Kristjana Björg
Guðbrandsdóttir
kristjana@frettabladid.is
7 . D E S E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R36 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð