Fréttablaðið - 07.12.2019, Page 38

Fréttablaðið - 07.12.2019, Page 38
„Ég var búin að ganga með þá hugmynd lengi að skrifa barnabók sem foreldrar gætu lesið og upplifað í gegnum hana þessi heilbrigðu, tengslamyndandi samskipti sem ég tala svo mikið fyrir í mínu starfi. Í sögunni er fjallað um það hvern- ig er hægt að viðurkenna stórar til- finningar barna á sama tíma og sett eru skýr mörk. Allar tilfinningar eiga rétt á sér og tjáning þeirra á að fá samkennd og skilning. En það er ekki það sama og að leyfa alla hegðun og til- finningar,“ segir Kristín Maríella og segir þetta algengan misskilning sem komi upp varðandi uppeld- isaðferðirnar og það megi ekki segja nei. Við erum ekki ströng, refsum ekki og sendum ekki í skammar- krókinn. En við erum heldur ekki foreldrið sem er hrætt við að setja mörk. Heldur snýst þetta um að vera óhræddur við að setja skýr mörk af ró og yfirvegun. Þetta krefst stórrar hugarfars- breytingar og er nýtt fyrir mörgum. Að bjóða tilfinningar velkomnar á sama tíma og hegðun er sett mörk. Því þar sem tilfinningar eru viður- kenndar, samþykktar og börnum leyft að klára sínar tilfinningaöldur fær barnið að þroskast og öðlast stjórn á tilfinningum sínum. Mér fannst vanta bók eins og þessa fyrir foreldra, hún er í raun tækifæri fyrir þá til þess að sjá samskiptamynstur og máta sig við það. Og það er áhrifaríkt bæði fyrir foreldri og barn að segja upphátt setningar sem viðurkenna tilfinn- ingalíf barna.“ Ekki okkar að dæma Við lestur bókarinnar er farið í gegnum andstæða póla á tilfinn- ingarófinu. „Það sem skiptir mig svo miklu máli er að það er fjallað um þessar tilfinningar, gleði og grát, á algjörlega hlutlausan hátt. Það er ekki okkar að dæma hvaða tilfinn- ing á rétt á sér og ég tel mikilvæga vitundarvakningu að fræða um til- finningalegt heilbrigði. Að foreldrar átti sig á því að það skiptir máli að geta setið í tilfinningum sínum án þess að upplifa skömm eða hræðslu. E f v ið æt lu m að a f neit a mennskum parti af okkur og forð- ast tilfinningar sem koma upp og eru sjálfsagður hluti tilverunnar þá lendum við í vandræðum. Því hvað gerist? Við skiljum ekki hvað tilfinningar eru, kunnum ekki að nefna þær og vinna úr þeim. Erum mögulega hrædd við þær, skömm- umst okkar og förum að bæla þær niður. Það er svo mikið frelsi fólgið í því að líta á allar tilfinningar sem heilbrigðar. Líðan barnanna okkar gefur vísbendingar. Mikil van- líðan er vísbending um að það sé eitthvað í umhverfi barnsins sem þarfnast athugunar. Við foreldrar þurfum að læra að hlusta, skilja og setja í samhengi. Og leyfa tilfinn- ingum að líða hjá, dæma þær ekki því allar tilfinningar eiga rétt á sér. Það er grunnurinn að því að barnið læri seinna að stjórna tilfinningum sínum.“ Kristín Maríella þakkar eigin- manni sínum að bókin kom út að lokum. „Ég er með svo mikinn athyglisbrest og því var framleiðsl- an á herðum eiginmanns míns. Við gáfum bókina út bæði á íslensku og ensku og þetta er þrekvirki sem maðurinn minn fær fullt af krediti fyrir.“ Greind með athyglisbrest Kristín Maríella er greind með athyglisbrest og hefur stundað mikla sjálfsvinnu til að njóta jákvæðra afleiðinga fremur en nei- kvæðra. „Það eru margar hliðar á athyglisbresti, ég hef til dæmis mjög slæmt tímaskyn. Ég segi oft sögu af fyrirlestri sem ég hélt þar sem ég missti allt skyn á tíma. Ég var á kafi í því að kynna glærurnar og tala út frá þeim þar til að það kom að glæru þar sem ég tilkynnti hlé á fyrirlestr- inum. Þá leit ég yfir salinn og sagði: Jæja, og nú tökum við hlé. Ég fann hvernig orkan breyttist í herberginu og sá að þátttakendur voru með spurnarsvip á andlitinu. Ég skildi af hverju þegar ég leit á klukkuna því klukkan var að verða sjö og aðeins tíu mínútur eftir af námskeiðinu.“ Hvernig kom athyglisbresturinn fram í barnæsku? Nú er stundum sagt að hann fari fremur leynt hjá stúlkum. „Athyglisbrestur er oft þannig að þú ert með sterkan fókus á því sem þú hefur áhuga á og getur verið framúrskarandi í því en svo vantar upp á aðra þætti í þínu lífi. Ég er svona sjö hundruð prósent manneskja þegar ég er að fást við það sem brennur á mér. Verkefni mitt í lífinu er að finna jafnvægi, þegar maður er með athyglisbrest fer maður krókaleiðir að hlutum sem aðrir fara beinni leið að. Og það er ekki í boði að vera með full- komnunaráráttu þegar maður er með athyglisbrest. Því maður væri þá reglulega að falla saman yfir mis- tökum. Viðkvæmni og athyglisbrestur Mér finnst óspennandi markmið að ætla sér að vera fullkominn og finnst maður ekki geta verið góð fyrirmynd með það að markmiði. Ég hef ekki áhuga á því að vera full- komin en hef mikinn áhuga á því að vera heil í því sem ég fæst við. Að hugsa og framkvæma af heilum hug. Foreldri sem gerir mistök og lærir af þeim er miklu betri fyrirmynd,“ segir Kristín Maríella. „Ég er með klassískan athyglis- brest, gat verið framúrskarandi en síðan bara stundum alls ekki. Fólk klóraði sér stundum í hausnum yfir mér. Það vantaði ekki hæfi- leikana en að nýta þá til fulls var ekki alltaf gefið. Ég var sveimhugi með mikið ímyndunarafl og mikil jarðýta ef það var áhugi fyrir hendi á viðfangsefninu. Líðan mín í æsku er eitt af því sem drífur mig áfram í þessari vegferð sem ég er á í dag. Ég var nefnilega með mikið skap en hef unnið mikið í mér og hef róast með árunum. Fólk með athyglis- brest upplifir sig oft sem viðkvæmt. Það er hrifnæmt og skynjar djúpar tilfinningar. Það sem gerist oft er að þessi viðkvæmu börn fá frekar skammir og hörku en stuðning. Refsingu í stað skilnings, en þessi viðkvæmu og orkumiklu börn þurfa mest á stuðningi að halda.“ Kristín Maríella segir of marga for- eldra hafa að leiðarljósi að þeirra hlutverk sé að móta börn sín. „Við erum ekki í því hlutverki. Við erum ekki smiður sem fínpússar stól eftir ákveðinni fyrirmynd. Mér finnst betri líking að líkja foreldrum við garðyrkjumann. Sem ræktar rós, ef hún dafnar ekki eða blómstrar þá stekkur hann ekki inn í skúr og reynir að spreyja hana rauða eða líma blöðin á. Hann skoðar umhverfið. Er nógu góð næring í jarðveginum? Nýtur hún sólar? Hann hugar að öllum þeim þáttum sem hann veit að stuðla að því að rósin vaxi og dafni,“ segir hún og bendir á að ef foreldrar veldu eitt- hvað eitt til að breyta í uppeldi barna sinna væri það að reyna að fjarlægja skömmina úr uppeldisað- ferðum sínum. Burt með skömmina „Flest okkar upplifðu mikla skömm fyrir hegðun í æsku. Það að kenna lexíu með því að velta skömm á barnið þegar það á erfitt er rótgróin hegðun í mörgum okkar. Þá erum við að reyna að stýra því með sárs- auka, erum að lýsa vonbrigðum og reiði í garð barnsins. Með því erum við að hafna því og búa til tengslarof. Það er rangt að til þess að kenna barni eitthvað þurfum við að valda því sársauka. Ef það er eitthvað sem gjörbreytir líðan og hegðun barns þá er það að upplifa tilfinningalegt öryggi með foreldrum sínum. Skömmin hefur ekkert upp á sig, hefur ekk- ert jákvætt í för með sér. Ég tengi sérstaklega við þetta og vil hjálpa foreldrum að sjá lengra. Að það er alltaf eitthvað sem drífur áfram hegðun og vekur tilfinningar. Börn standa sig vel ef þau geta það. “ ATHYGLISBRESTUR ER OFT ÞANNIG AÐ ÞÚ ERT MEÐ STERKAN FÓKUS Á ÞVÍ SEM ÞÚ HEFUR ÁHUGA Á. ÉG ER SVONA SJÖ HUNDRUÐ PRÓ SENT MANNESKJA ÞEGAR ÉG ER AÐ FÁST VIÐ ÞAÐ SEM BRENNUR Á MÉR. Skömmin hefur ekkert upp á sig, hefur ekkert jákvætt í för með sér. 7 . D E S E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R38 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.