Fréttablaðið - 07.12.2019, Page 44

Fréttablaðið - 07.12.2019, Page 44
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit- stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@ frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf Ábyrgðarmaður: Jóhanna Helga Viðarsdóttir Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@ frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103, Í Ístex hf. er ullarvinnslu-fyrirtæki sem hefur starfað samfellt frá árinu 1896, fyrst undir nafni Álafoss. Ístex tók við starfseminni árið 1991. Sigurður Sævar Gunnarsson er fram- kvæmdastjóri Ístex. Sigurður segir að íslenska ullin sé einstakt hráefni. „Okkar hlutverk hjá Ístex er að tengja saman ull frá íslenskum bændum til neytand- ans sem vill vinna úr einstöku náttúrulegu efni. Eitthvað sem er bæði skemmtilegt, nytsamt og gefandi,“ segir Sigurður og bætir við: „Lopa og lopapeysur þekkja allir Íslendingar, hins vegar eru ekki eins margir sem þekkja alla þá vinnu sem felst í að þróa þráð úr ull. Ferill sem liggur frá bónda, felur í sér þvott og spuna sem að lokum verða meistaraverk í höndum hönnuða og handverks- fólks víða um heim,“ greinir hann frá. „Eitt af okkar skemmtilegu en krefjandi verkefnum er að gefa út Lopabækur. Síðustu tvö ár hefur Védís Jónsdóttir hannað f líkur og ritstýrt bókunum. Það er alltaf jafn gaman að sjá fólk á förnum vegi í hönnun úr Lopabókunum okkar. Þá hefur Védís verið að skapa nýja línu í værðarvoðum sem verða til á næsta ári og auka fjölbreytni í þeim vöruf lokki.“ Metnaður í þróun Sigurður segir að hjá Ístex hafi verið lagður metnaður og mikil vinna í þróunarmál undanfarin ár og mörg verkefni séu þegar farin að bera ávöxt. „Hér njótum við þess að hafa reynt starfsfólk, þar af eru margir sem hafa ára- tuga reynslu í ullargeiranum. Þá höfum við bætt við okkur textíl- verkfræðingum og verkefnastjóra nýrra markaða til að ýta þessum nýjungum áfram. Við höfum haft að leiðarljósi tvö meginmarkmið til að þjónusta viðskiptavini okkar sem best. Það fyrra er að vera enn umhverfisvænni. Mikil vinna hefur farið í að þróa og gera litun umhverfisvænni. Vinna er hafin við að taka upp OEKO- Tex 100 staðalinn sem staðfestir að vörur okkar innihaldi engin skaðleg efni. Við gerum þá kröfu til allra okkar birgja að efnin frá þeim uppfylli þennan staðal. Hins vegar er um að ræða yfir 4.500 uppskriftir þannig að það tekur tíma að fá allar vörur vott- aðar. Við erum nú þegar búin að fá þessa vottun fyrir ullarþvotta- stöðina okkar á Blönduósi. Þann- ig að öll ull frá okkur hefur hlotið þessa viðurkenningu. Nokkuð sem okkar viðskiptavinir geta strax nýtt sér,“ útskýrir Sigurður. Ull er gull „Hitt markmiðið í okkar þróunar- vinnu er að búa til tækifæri fyrir ull sem við nýtum ekki nú þegar í handprjónaband, líkt og mislita ull. Sængurnar Embla og Iðunn sem við bjóðum á lopidraumur. is eru skemmtileg dæmi um slíkt. Þær hafa einmitt hlotið OEKO-Tex stimpilinn. Við erum þakklát fyrir þær frá- bæru viðtökur sem sængurnar hafa fengið,“ segir Sigurður og bætir við að mörg önnur spenn- andi verkefni séu í þróunarferli og nálægt því að komast á kopp- inn. „Lopi-Loft er einangrunarefni í f líkur sem fata- framleiðendur hafa verið að skoða í sína framleiðslu. Lopi-Fur sem er ullarefni sem líkist gæru, en hentar viðskiptavinum sem vilja náttúrulegt efni af lifandi skepnu. Olíuskiljur í skip og ofin efni í hljóðeinangrun og fatnað. Þá eru ótalin verkefni allt frá lista- verkum til ofinna ullarefna fyrir fataframleiðslu. Við hvetjum alla þá sem hafa góðar hugmyndir um úrvinnslu íslensku ullarinnar að hafa samband við okkur,“ segir Sigurður og bætir við að ull sé gull. Sjá upplýsingar um sængurnar á lopidraumur.is Ístex er eina ullarverksmiðjan sinnar tegundar á landinu. Ullin er unnin þegar hún kemur frá bændum. Hér stendur Sigurður við öfluga vinnsluvél. Ístex vinnur ýmsar vörur úr íslenskri ull. Sigurður Sævar segir að íslenska ullin sé afar verðmæt og í raun einstök. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Framhald af forsíðu ➛ Ullarteppin frá Ístex eru frábær jólagjöf. Íslensk ullarsæng er kjörin jólagjöf. 2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 7 . D E S E M B E R 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.