Fréttablaðið - 07.12.2019, Blaðsíða 46
Oddur Freyr
Þorsteinsson
oddurfreyr@frettabladid.is
Það verður sífellt algengara að fólk slasi sig því það er svo upptekið við snjallsímann
sinn. Samhliða aukinni notkun
snjallsíma hefur slíkum slysum
fjölgað mjög hratt.
Þetta er niðurstaða nýrrar
rannsóknar sem birtist í ritrýndu
læknisfræðitímariti sem fjallar um
háls- og höfuðmeiðsli.
Þetta er líklega í fyrsta sinn
sem gerð er rannsókn til að átta
sig á hlutverki snjallsíma í slíkum
meiðslum, en aðrar rannsóknir
hafa bent á fjölgun slysa sem
verða því að fólk sem er á gangi er
annars hugar.
Yfirleitt eru slík slys ekki
alvarleg, en stundum slasast fólk
í andliti eða verður fyrir alvar-
legum höfuðmeiðslum sem geta
haft langtímaáhrif.
Dr. Boris Paskhover er lýta-
læknir sem starfar við læknadeild
Rutgers-háskóla í New Jersey í
Bandaríkjunum. Hann hjálpar
fólki eftir slík meiðsli og er aðal-
höfundur rannsóknarinnar.
Hann byrjaði að kanna tölfræð-
ina bakvið slys sem tengjast snjall-
símum eftir að hafa hitt sjúklinga
sem voru kjálkabrotnir og með
meiðsli í andliti og sögðu honum
að þeir hefðu dottið á meðan þeir
voru að stara á símann og ekki að
fylgjast með umhverfi sínu.
„Ég held að fólk geri sér ekki
grein fyrir því hvað við mann-
eskjur erum viðkvæmar,“ sagði
læknirinn í samtalið við frétta-
stofu NBC. „Við erum þrautseig,
en líka viðkvæm. Ef maður dettur
getur maður slasast ansi illa.“
Sífellt fleiri slasast vegna síma
Niðurstöður nýrrar rannsóknar sýndu að samhliða notkun snjallsíma hafi orðið mikil
aukning á meiðslum sem orsakast af því að fólk fylgist ekki með þegar það er á gangi.
Rannsakendur segja að það þurfi að auka almannavitund um að það sé ekki bara í akstri sem það geti verið hættulegt að láta símann trufla sig. NODICPHOTOS/GETTY
Aukning með iPhone
Í rannsókninni var leitað að
meiðslum á höfði og hálsi sem
tengdust farsímum í stórri rafrænni
slysaskrá. Þar var upplýsingum
frá bráðamóttökum um hundrað
bandarískra spítala safnað saman.
Á tímabilinu frá janúar 1998
til desember 2017 leitaði 2.501
sjúklingur aðstoðar vegna slíkra
slysa. Rannsakendur áætla að það
þýði að um 76 þúsund manns í
öllum Bandaríkjunum hafi þurft að
leita sér hjálpar vegna svona slysa á
sama tímabili.
Meiðslin voru tiltölulega sjaldgæf
þar til það varð skörp aukning árið
2007, árið sem fyrsti iPhone-síminn
kom á markað. Eftir það jukust þau
hratt næstu árin og náðu hámarki
árið 2016.
Ungt fólk meiddist oftast
Tæplega 40 prósent af sjúkling-
unum voru farsímanotendur á aldr-
inum 13 til 29 ára og þessi aldurs-
hópur varð fyrir flestum meiðslum
sem urðu vegna truflunar frá síma.
Í þriðjungi slysanna meiddist fólk
á höfði, í þriðjungi meiddist fólk
í andliti og í um 12 prósentum af
slysum meiddist fólk á hálsi.
Mörg meiðslanna urðu þegar
fólk datt á meðan það var að horfa
á símann og ekki að fylgjast með
umhverfi sínu.
Börn undir 13 ára aldri voru
líklegri til að verða fyrir meiðslum
af völdum símans sjálfs, til dæmis
ef þau urðu óvart fyrir tæki sem
foreldri þeirra hélt á. Paskhover
segir að það komi líka fyrir að fólk
sé að leika sér í símanum og hann
renni úr höndunum á þeim, lendi á
andlitinu og nefbrjóti þau.
Algengustu meiðslin voru
skurðir á andliti, en það gerðist í
26 prósentum tilfella. Rannsak-
endur taka fram að örmyndun eftir
slíka áverka geti leitt til kvíða og
minnkað sjálfstraust þeirra sem
verða fyrir þessum meiðslum.
Fjórðungur sjúklinga fékk mar-
bletti og hrufl.
Getur verið banvænt
Í næstum fimmtungi tilvika, eða
18 prósentum, urðu meiðsli á innri
líffærum. Þau hættulegustu urðu á
höfði, en þá var yfirleitt um alvar-
lega heilaáverka að ræða, sem Pask-
hover segir að séu verstu meiðslin.
„Heilinn er mjúkur og ég hef
séð sjúklinga láta lífið bara vegna
þess að þeir duttu,“ segir hann. „Ef
þú stendur upprétt(ur), dettur og
lendir á höfðinu geturðu fengið
alvarlega heilaáverka.“
Flestir sjúklinganna sem rann-
sóknin náði til fengu meðferð og
voru svo útskrifaðir af sjúkrahúsi,
eða látnir fara án þess að þurfa
neina meðferð. Engu að síður segja
rannsakendur að niðurstöður
rannsóknarinnar bendi til að það
þurfi að auka almannavitund um
að það sé ekki bara í akstri sem
það geti verið hættulegt að láta
símann trufla sig.
Paskhover segir að það sem
megi læra af rannsókninni sé að
maður eigi ekki að dreifa athygli
sinni. Hann segir að það sé
kannski sök sér að svara texta-
skilaboðum á gangi, en að fólk
eigi ekki að vera að lesa greinar í
símanum sínum gangandi.
Sumir hafa líka viðrað hug-
myndir um að gera það ólöglegt að
vera í símanum á meðan gengið er
yfir götu.
Á tímabilinu frá
janúar 1998 til
desember 2017 leitaði
2.501 sjúklingur aðstoð-
ar vegna slíkra slysa.
Rannsakendur áætla að
það þýði að um 76 þús-
und manns í öllum
Bandaríkjunum hafi
þurft að leita sér hjálpar
vegna svona slysa á sama
tímabili.
Eftir að iPhone kom á markað varð mikil aukning á slysum vegna fólks sem
er í símanum á gangi, horfir ekki í kringum sig og meiðir sjálft sig eða aðra.
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 7 . D E S E M B E R 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R