Fréttablaðið - 07.12.2019, Síða 48
Við erum svo djúpt
sokknar í heim
ljósmyndunar að við
þurfum frekar oft að
ákveða í sameiningu að
tala ekki um ljósmynd-
un í ákveðinn tíma.
Okkur tekst það aldrei.
Hjördís Erna
Þorgeirsdóttir
hjordiserna@frettabladid.is
Við erum Dóra Dúna og Anna Maggý, við erum par og erum báðar ljós-
myndarar. Dóra er á öðru ári í
ljósmyndaskólanum og Anna
Maggý er fyrrverandi nemandi í
Ljósmyndaskólanum,“ segja þær
Dóra og Anna. Þær segja sameigin-
legan ljósmyndaáhugann gjarnan
fyrirferðamikinn í sambandinu.
„Við erum svo djúpt sokknar í
heim ljósmyndunar að við þurfum
frekar oft að ákveða í sameiningu
að tala ekki um ljósmyndun í
ákveðinn tíma. Okkur tekst það
aldrei.“
Ljósmyndun ætti að vera
metin til jafns við myndlist
„Okkur langaði að koma saman
samtímaljósmyndurum og setja
upp markað, þar sem við seljum
listina okkar,“ segir Dóra. „Við
munum ekki eftir því að ljósmynd-
arar hafi komið saman og sett upp
markað til þess að selja list sína.
Það eru svo oft myndlistarvið-
burðir og markaðir, en minna um
ljósmyndaviðburði.“
Dóra Dúna og Anna Maggý telja
þetta listform ekki njóta nægilegr-
ar virðingar hér á landi og segja
mikilvægt að gera ljósmyndun
hærra undir höfði en hingað til
hefur verið gert. „Ljósmyndun á að
vera jafn mikils metin og mynd-
list. Listljósmyndun er myndlist.
Enn í dag þarf að berjast fyrir því
að ljósmyndun sé viðurkennd sem
skapandi listform og erum við
örlítið að taka slaginn!“
Þær segja þetta í þriðja skiptið
sem markaðurinn er haldinn í Bíó
Paradís en það er ekki nema ár
síðan þær byrjuðu með þennan
viðburð. „Við byrjuðum fyrir ári
síðan með Ljósmyndamarkaðinn, í
desember 2018.“
Hin fullkomna jólagjöf
Markmiðið hafi meðal annars
verið að gera ljósmyndun sem list-
form aðgengilegri hérlendis ásamt
því að gera almenningi kleift að
eiga möguleika á að fjárfesta í
verkum eftir efnilega og reyndari
ljósmyndara. „Hér á Íslandi erum
við örlítið eftir á varðandi hvernig
við sjáum ljósmyndun. Okkur
fannst því vera gríðarleg þörf fyrir
að sýna fólki ljósmyndun í list-
formi og bjóða fólki að kaupa verk
á viðráðanlegu verði.“
Þær greina aukinn áhuga og
ásókn með hverjum markaði og
segja gjafir af þessu tagi tilvaldar
í pakkann fyrir ástvini eða bara
fyrir sjálfa/n sig. „Í hvert skipti sem
við höldum markaðinn er meiri
aðsókn og fólk virðist sífellt vera
að átta sig betur á að það er engin
gjöf betri en fallegt verk eða ljós-
mynd. Hvort sem það fyrir mann
sjálfan eða þá sem manni þykir
vænt um.“
Ljóst er að það verður mikið
úrval ólíkra ljósmynda á markað-
inum en það er töluverður fjöldi
ljósmyndara sem tekur þátt þetta
árið. „Þetta eru 23 ljósmyndarar úr
öllum áttum. Okkur finnst skipta
máli að sýna fjölbreytileika og
höfum við boðið þeim ljósmynd-
urum að taka þátt sem okkur
finnst vera klárir. Margir af þeim
erum nemendur í ljósmyndaskól-
anum eða fyrrverandi nemendur.“
Þær hvetja fólk til að mæta og
auðga andann. „Þetta verður mikið
glens og gaman. Endilega komið
og virðið fyrir ykkur fjársjóði. List
kætir og gleður, auk þess sem hún
er upplögð í jólapakka!“
Ljósmyndamarkaðurinn er sem
fyrr segir í Bíó Paradís í dag, á milli
klukkan 16 og 20.
Ljóslifandi
fjársjóðir í
Bíó Paradís
Í dag er hægt að virða fyrir sér og
festa kaup á ljósmyndum á ljós-
myndamarkaði í Bíó Paradís. Dóra
Dúna og Anna Maggý segja við-
burðinn kjörið tækifæri til að kynnast
þessu listformi, enda margir hæfi-
leikaríkir ljósmyndarar hér á landi.
Dóra Dúna og Anna Maggý eru afar samstiga í lífinu en þær eru par ásamt því að vera báðar ljósmyndarar.
Ljósmyndamarkaðurinn verður í
Bíó Paradís í dag á milli 16 og 20.
Mozart við kertaljós
Styrkt af Tónlistarsjóði Menntamálaráðuneytisins, Reykjvíkurborg, Hafnarfjarðarbæ, Kópavogsbæ og Garðabæ
Miðasala við innganginn og á tix.is - Miðaverð kr. 3.500 / 2.500
Hafnarfjarðarkirkju fimmtudag 19. des. kl 21.00
Kópavogskirkju föstudag 20. des. kl 21.00
Garðakirkju laugardag 21. des. kl 21.00
Dómkirkjunni í Reykjavík sunnudag 22. des. kl 21.00
Camerarctica
Mozart by candlelight
Kammertónlist á aðventu 2019
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 7 . D E S E M B E R 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R