Fréttablaðið - 07.12.2019, Page 52

Fréttablaðið - 07.12.2019, Page 52
Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum óskar eftir að ráða starfsmann í bókhald og almenn afgreiðslustörf á skrifstofu stofnunarinnar. Um er að ræða 75% tímabundið starf í eitt ár vegna fæðingarorlofs frá og með 1. febrúar 2020. Við leitum að jákvæðum og ábyrgum starfsmanni sem hefur áhuga á að veita starfsmönnum og viðskiptavinum stofnunar- innar framúrskarandi þjónustu. Helstu verkefni eru bókhald, móttaka viðskiptavina, símsvörun og almenn skrifstofustörf ásamt öðrum tilfallandi verkefnum. Nánari upplýsingar um starfsemi stofnunarinnar má finna á heimasíðunni www.arnastofnun.is Menntunar- og hæfniskröfur: • Menntun sem nýtist í starfi. • Reynsla og þekking á bókhaldi er nauðsynleg. • Þekking á Oracle nauðsynleg. • Ábyrgð, vandvirkni og nákvæmni. • Hæfni í mannlegum samskiptum. • Jákvæðni og þjónustulund. • Góð tölvukunnátta er nauðsynleg. • Gott vald á íslensku. • Kunnátta í ensku og einu Norðurlandamáli er nauðsynleg. Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármálaráðherra og SFR- stéttarfélag í almanna- þjónustu hafa gert. Við ráðningar í störf hjá Árnastofnun er tekið mið af jafnréttisstefnu stofnunarinnar. Karlar jafnt sem konur eru hvattir til að sækja um auglýst starf. Umsóknir skulu berast til Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum á netfangið umsoknir@arnastofnun.is eigi síðar en 7. janúar 2020. Nánari upplýsingar veitir Sigurborg Stefánsdóttir fjármálastjóri í síma 525 4010. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Ráðgjafar okkar búa yfir víðtækri þekkingu á atvinnulífinu og veita trausta og persónulega ráðgjöf. capacent.is Við gætum verið með næsta starfsmann mánaðarins á skrá P ip ar \T BW A \ SÍ A EMBÆTTI REKTORS HÁSKÓLA ÍSLANDS ER LAUST TIL UMSÓKNAR Rektor er forseti háskólaráðs. Hann er yfirmaður stjórnsýslu háskólans og æðsti fulltrúi hans og talsmaður gagnvart mönnum og stofnunum innan háskólans og utan hans. Hann stýrir starfsemi háskólans og hefur frumkvæði að því að háskólaráð marki sér heildarstefnu í málefnum háskólans. Hann ber ábyrgð á framkvæmd stefnu háskólans og tengslum háskólans við innlenda og erlenda samstarfsaðila. Rektor ber ábyrgð á og hefur eftirlit með allri starfsemi háskólans, þ.m.t. ráðningar- og fjármálum einstakra fræðasviða og stofnana. Hann ber ábyrgð á gerð starfs- og rekstraráætlana og að þær séu samþykktar af háskólaráði. Á milli funda háskólaráðs fer rektor með ákvörðunarvald í öllum málum háskólans. Um laun og önnur starfskjör rektors fer samkvæmt ákvörðun fjármála- og efnahagsráðherra, sbr. 39. gr. a. laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996. Mennta- og menningarmálaráðherra skipar háskólarektor til fimm ára samkvæmt tilnefningu háskólaráðs, sbr. 8. gr. laga um opinbera háskóla. Tilnefning háskólaráðs fer fram að undangengnum kosningum í háskólanum, sbr. 6. gr. reglna háskólans. Miðað er við að rektorskjör fari fram 18.–20. febrúar næstkomandi. Skipunartímabil rektors er fimm ár, frá 1. júlí 2020. Embættisgengir eru þeir einir sem hafa prófessorshæfi á viðurkenndu fræðasviði Háskóla Íslands, leiðtogahæfileika og skýra og metnaðarfulla framtíðarsýn fyrir háskólann, ríka samskiptahæfni og víðtæka reynslu af stjórnun og stefnumótun. Háskólaráð ákvarðar hvaða umsækjendur uppfylla skilyrði um embættisgengi, sbr. 2. tl. 6. gr. reglna háskólans. Einungis þeir sem þegar hafa fengið formlegan hæfnisdóm sem prófessor við viðurkenndan háskóla áður en umsóknarfrestur rennur út teljast uppfylla skilyrði um prófessorshæfi. Umsóknir skulu hafa borist starfs- mannasviði, Aðalbyggingu Háskóla Íslands, Sæmundargötu 2, 102 Reykjavík, eigi síðar en 3. janúar 2020. Í samræmi við 1. mgr. 8. gr. laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla og 6. gr. reglna nr. 569/2009 fyrir Háskóla Íslands, auglýsir háskólaráð Háskóla Íslands hér með laust til umsóknar embætti rektors Háskóla Íslands. Ráðgjafar okkar búa yfir víðtækri þekkingu á atvinnulífinu og veita trausta og persónulega ráðgjöf. capacent.is Við gætum verið með næsta starfsmann mánaðarins á skrá 4 ATVINNUAUGLÝSINGAR 7 . D E S E M B E R 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.