Fréttablaðið - 07.12.2019, Page 53
Dómsmálaráðuneytið auglýsir laust til umsóknar embætti sýslumannsins
í Vestmannaeyjum.
Sýslumenn fara með framkvæmdarvald og stjórnsýslu ríkisins í héraði, hver í sínu
umdæmi, eftir því sem lög og reglugerðir eða önnur stjórnvaldsfyrirmæli kveða á
um. Þar á meðal fara þeir með innheimtu opinberra gjalda, að því leyti sem hún er
ekki falin öðrum. Sýslumenn bera faglega, fjárhagslega og stjórnunarlega ábyrgð á
rekstri embætta sinna í samræmi við lög og önnur stjórnvaldsfyrirmæli.
Auk hefðbundinna verkefna sýslumannsembætta annast Sýslumaðurinn í
Vestmannaeyjum m.a. löggildingu skjalaþýðenda og dómtúlka og sérverkefni
samkvæmt samningi við dómsmálaráðuneytið, auk nýrra verkefna er ráðuneytið
mun fela Sýslumanni, með hliðsjón af umfangi stjórnunar embættisins.
Umsækjendur skulu fullnægja skilyrðum 2. mgr. 3. gr. laga nr. 50/2014, um
framkvæmdavald og stjórnsýslu ríkisins í héraði.
Aðrar hæfniskröfur eru:
• Góð þekking og/eða reynsla af störfum innan stjórnsýslunnar æskileg
• Góð þekking og yfirsýn yfir verkefni sýslumanna æskileg
• Rekstrarþekking og/eða reynsla er æskileg
• Reynsla af stjórnun með mannaforráð er kostur
• Reynsla af stefnumótun og árangursmiðaðri stjórnun er kostur
• Mjög góð forystu-, samvinnu- og samskiptahæfni
• Fagmennska, frumkvæði, drifkraftur og jákvæðni
• Mjög gott vald á íslensku og ensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti
• Þekking á einu Norðurlandamáli æskileg
Dómsmálaráðherra skipar í embættið frá 1. mars 2020 til fimm ára.
Um laun forstöðumanns fer eftir 39. gr. a. laga nr. 70/1996, um réttindi og skyldur
starfsmanna ríkisins, með síðari breytingum, sjá nánar á slóðinni
www.stjornarradid.is/stjornendur.
Nánari upplýsingar veitir Berglind Bára Sigurjónsdóttir skrifstofustjóri
í síma 545 9000.
Umsóknum skal skila rafrænt á starf@dmr.is.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um skipun liggur fyrir.
Umsóknarfrestur er til 31. desember nk.
Með umsókn skal fylgja ítarleg starfsferilsskrá,
starfsheiti og kynningarbréf þar sem gerð er grein
fyrir ástæðu umsóknar og hvernig viðkomandi
uppfyllir hæfniskröfur fyrir starfið. Umsækjandi
skal í kynningarbréfi gera skýra grein fyrir hæfni
sinni í samræmi við þær hæfniskröfur sem fram
koma í 2. mgr. 3. gr. laga nr. 50/2014 og auglýsing-
unni auk annarra upplýsinga sem varpað geta
ljósi á faglega eiginleika og færni umsækjanda
sem máli skipta fyrir störf sýslumanns.
Embætti sýslumannsins í
Vestmannaeyjum laust til umsóknar
Auglýst eru laus til umsóknar
tvö störf sérfræðinga á skrifstofu
mennta- og vísindamála.
Nánari upplýsingar er að finna á
vef ráðuneytisins,
menntamalaraduneyti.is.
Umsóknarfrestur er til og með
30. desember 2019
Laus störf sérfræðinga
Starfsfólk
Borgarholtsskóli
Kennari í forritun: 50 % starf á vorönn 2020.
Skilyrði er að umsækjandi hafi háskólagráðu í forritun eða
öðrum raungreinum og búi yfir góðri kunnáttu í margmiðlun.
Um framtíðarstarf gæti verið að ræða.
Laun eru í samræmi við kjarasamning KÍ og stofnanasamning
Borgarholtsskóla.
Þroskaþjálfi: 50-75% starf frá janúar 2020.
Þroskaþjálfi starfar náið með umsjónarkennurum og felst
starfið m. a. í aðstoð við nemendur í kennslustundum og við
athafnir daglegs lífs. Sakavottorð fylgi umsókn.
Upplýsingar um starf kennara í forritun veitir Kristján Ari Ara-
son, sviðsstjóri bóknáms, krisara@bhs.is, s: 820-2930.
Upplýsingar um starf þroskaþjálfa veitir Hrönn Harðardóttir,
sviðsstjóri sérnámsbrautar, hronn@bhs.is, s: 864-1138
Á heimasíðu skólans, www.bhs.is, eru upplýsingar um skólann
og starfsemi hans.
Umsóknir ásamt fylgigögnum sendist í tölvupósti til
Ársæls Guðmundssonar, skólameistara, arsaell@bhs.is
fyrir 30. desember 2019.
Úrskurðarnefnd velferðarmála óskar eftir að ráða ritara til starfa í 75% starf.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
SKRIFSTOFUSTARF
Helstu verkefni:
Skráning mála í málaskrá og önnur dagleg umsýsla
gagna, símavarsla, móttaka í afgreiðslu og önnur
tilfallandi verkefni skrifstofunnar.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Stúdentspróf er skilyrði eða sambærileg menntun
sem nýtist í starfi
• Reynsla af skrifstofustörfum
• Góð almenn tölvukunnátta
• Góð færni í íslensku og ensku
• Metnaður, nákvæmni og sjálfstæð vinnubrögð
• Jákvæðni og lipurð í samskiptum
Úrskurðarnefnd velferðarmála er
sjálfstæð stofnun. Hlutverk nefndarinnar
er að úrskurða í kærumálum vegna
stjórnvaldsákvarðana eftir því sem mælt
er fyrir um í lögum sem kveða á um
málskot til nefndarinnar.
Upplýsingar um úrskurðarnefnd
velferðarmála er að finna á heimasíðu
nefndarinnar www.urvel.is
Umsókn skal fylgja ferilsskrá með upplýsingum um menntun og fyrri störf. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun
um ráðningu liggur fyrir. Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og SFR hafa gert.
Umsóknin getur gilt í 6 mánuði.
Umsóknir óskast fylltar út á hagvangur.is Umsóknarfrestur er til og með 30. desember 2019.
ATVINNUAUGLÝSINGAR 5 L AU G A R DAG U R 7 . D E S E M B E R 2 0 1 9