Fréttablaðið - 07.12.2019, Side 54

Fréttablaðið - 07.12.2019, Side 54
M E N N T U N Á V I N N U M A R K A Ð I í fullorðinsfræðslu - SPENNANDI STARF – Fræðslumiðstöð atvinnulífsins ehf. óskar eftir að ráða sérfræðing í starf á sviði fullorðinsfræðslu, einkum við námshönnun og hæfnigreiningar. Sérfræðingur Nánari upplýsingar er að finna á vef Fræðslumiðstöðvarinnar www.frae.is Umsóknir sendist á frae@frae.is fyrir 17 des. nk. Öllum umsóknum verður svarað. Fræðslumiðstöð atvinnulífsins ehf. er í eigu Alþýðusambands Íslands, Samtaka atvinnulífsins, BSRB, Sambands íslenskra sveitarfélaga og fjármálaráðuneytisins. Hlutverk FA er að vera samstarfsvettvangur og sérfræðisetur aðila vinnumark- aðarins um fullorðins- og starfsmenntun á íslenskum vinnumarkaði í samstarfi við aðrar fræðslustofnanir. Hjá FA vinna nú 17 starfsmenn, flestir sérfræðingar á sviði fullorðinsfræðslu. Markmið FA er að veita starfsmönnum á vinnumarkaði, sem ekki hafa lokið prófi frá framhaldsskóla, tækifæri til að afla sér menntunar eða bæta stöðu sína á vinnumarkaði og auka þar með samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs. • Menntun og reynslu sem nýtist í starfi. • Faglega þekkingu á námshönnun og kennslufræði fullorðinna. • Reynslu af fræðslumálum og almennu atvinnulífi. • Reynslu af verkefnastjórnun. • Reynslu af að vinna undir álagi og í hópi. • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum. • Ritfærni í íslensku, ensku og einu norðurlandamáli. Við leitum að jákvæðum og lausnamiðuðum einstaklingi sem hefur: H au ku r 0 1. 19 Hlutverk Póst- og fjarskiptastofnunar er að tryggja hagkvæm, örugg og aðgengileg fjarskipti og póstþjónustu og efla virka samkeppni á markaði. Meginþungi starfseminnar eru fjarskipti og tengd mál. Hjá PFS starfa 27 starfsmenn, aðallega sérfræðingar við úrlausn tæknilegra, viðskiptalegra og lagalegra verkefna er tengjast hlutverki stofnunarinnar. Sjá nánari upplýsingar á www.pfs.is Sérfræðingur í netöryggissveit PFS (CERT-ÍS) Póst-og fjarskiptastofnun óskar eftir að ráða í stöðu sérfræðings í netöryggissveit PFS. Netöryggissveitin hefur það hlutverk að fyrirbyggja, draga úr og bregðast við hættu vegna netárása eða hliðstæðra öryggisatvika í þeim tölvukerfum sem falla undir starfssvið hennar. Sveitin leitast við að greina atvik af þessu tagi, takmarka útbreiðslu þeirra og tjón af þeirra völdum. Helstu verkefni og ábyrgð: • Meðhöndlun öryggisatvika og greining veikleika í tölvu- og netkerfum • Upplýsingaskipti við þjónustuhóp og aðra ytri aðila • Þátttaka í alþjóðlegu samstarfi um öryggi Internetsins • Ráðgjöf og upplýsingar varðandi öryggismál á netinu • Aðstoð við uppbyggingu þekkingar í meðhöndlun öryggisatvika hjá innlendum netöryggishópum Menntunar- og hæfniskröfur: • Háskólapróf í verk-, tækni- eða tölvunarfræði eða á öðrum sviðum ef viðkomandi hefur haldgóða reynslu á sviði netöryggis • Sérmenntun eða starfsreynsla á sviði hugbúnaðargerðar og/eða öryggisgreininga er æskileg • Umsækjendur þurfa að eiga auðvelt með að starfa sjálfstætt sem og í hópi og jafnframt búa yfir þeim sveigjanleika og festu sem nauðsynleg er til að ná árangri í starfi • Gerð er krafa um mikla greiningarhæfni, öguð og skipulögð vinnubrögð • Búa yfir skilningi á internettækni ásamt færni til að meta upplýsingar um áhættu og áhrif • Geta til að miðla tæknilegum upplýsingum til annarra • Góð íslensku og enskukunnátta, bæði töluð og rituð, er áskilin • Umsækjendur þurfa að geta unnið undir álagi og hafa tamið sér skipulag í vinnubrögðum PFS hvetur konur jafnt sem karla til að sækja um störf hjá stofnuninni. Vilt þú móta framtíð net- og upplýsingaöryggis á Íslandi? Umsóknarfrestur er til og með 16. desember nk. Umsjón með starfinu hefur Þorleifur Jónasson forstöðumaður tæknideildar. Umsóknir óskast fylltar út á heimasíðu PFS www.pfs.is eða á Starfatorgi. Umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Krafist er sakavottorðs. Umsækjandi þarf að gangast undir og standast bakgrunnsskoðun og öryggisvottun Ríkislögreglustjóra. Póst- og fjarskiptastofnun lítur svo á að umsókn gildi í 6 mánuði frá dagsetningu hennar, nema umsækjandi ákveði umsókninni skemmri gildistíma. Móttökuritari - 55% staða Reyklaus vinnustaður. Staðan getur tímabundið krafist hærra hlutfalls. Laus um áramót. Staðan krefst mikillar sjálfstæðni, bókhaldsþekkingar, tölvureynslu og reynslu í mannlegum samskiptum. Vinsamlegast sendið umsókn ásamt ítarlegri ferilskrá og kynningarbréfi til utlitslaekning@utlitslaekning.is. Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál. Stofnfiskur leitar að öflugum starfsmanni til að stýra verklegum framkvæmdum við viðhald fasteigna, véla og tækja ásamt því að hafa umsjón með nýframkvæmdum félagsins. Í boði er spennandi starf hjá framsæknu fyrirtæki í örum vexti sem hefur að skipa metnaðarfullu og samhentu starfsfólki. Yfirmaður verklegra framkvæmda Starfssvið • Ber ábyrgð á nýframkvæmdum félagsins þ.m.t skipu­ lagningu, gerð kostnaðargreininga og mannaflaspár • Umsjón með viðhaldi á fasteignum félagsins • Umsjón með dælubúnaði og viðhaldi þeirra • Umsjón með viðhaldi á vélum og tækjabúnaði félagsins • Áætlanagerð vegna framkvæmda og viðhalds • Hluti af stjórnendateymi fyrirtækisins Hæfniskröfur • Meistararéttindi í iðngreinum og/eða háskólamenntun sem nýtist í starfi • Yfirgripsmikil reynsla af viðhaldi á ljósavélum, dælum og mannvirkjum • Reynsla af verkefnastjórnun • 5+ ára stjórnendareynsla • Framúrskarandi skipulagsfærni og sjálfstæð vinnubrögð Vinsamlegast sendið umsóknir með ferilskrá á heida@stofnfiskur.is. Umsóknarfrestur er til og með 21. desember næstkomandi. Við hjá Kletti – sölu og þjónustu óskum eftir að ráða ábyrgðarfullan og drífandi rekstrarstjóra hjólbarðadeildar Kletts. Starfið felur í sér daglegan rekstur hjólbarðadeildar, umsjón með starfsmannamálum, gerð verkefna- og fjárhagsáætlana, greiningu og gerð söluáætlana, ábyrgð á pöntunum frá birgjum og utanumhald um samninga. • Góðir samskiptahæfileikar, rík þjónustulund og jákvætt viðmót • Geta til að vinna undir álagi • Nákvæm og vandvirk vinnubrögð • Skipulagshæfni sem felst í forgangsröðun og tímastjórnun • Þekking og reynsla af samningatækni • Yfirgripsmikil reynsla og þekking á starfsemi rekstrareininga • Frumkvæði og sjálfstæði í starfi • Góð kunnátta og færni í Excel og DAX er nauðsynleg Umsóknir skulu sendar á ba@klettur.is og umsóknarfrestur er til og með 17. desember 2019. Óskað er eftir ferilskrá. GAKKTU TIL LIÐS VIÐ KRAFTMIKINN HÓP HÆFNISKRÖFUR: 6 ATVINNUAUGLÝSINGAR 7 . D E S E M B E R 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.