Fréttablaðið - 07.12.2019, Qupperneq 54
M E N N T U N Á V I N N U M A R K A Ð I
í fullorðinsfræðslu
- SPENNANDI STARF –
Fræðslumiðstöð atvinnulífsins ehf. óskar eftir að ráða sérfræðing í starf á sviði fullorðinsfræðslu,
einkum við námshönnun og hæfnigreiningar.
Sérfræðingur
Nánari upplýsingar er að finna á vef Fræðslumiðstöðvarinnar www.frae.is
Umsóknir sendist á frae@frae.is fyrir 17 des. nk. Öllum umsóknum verður svarað.
Fræðslumiðstöð atvinnulífsins ehf. er í eigu Alþýðusambands Íslands, Samtaka
atvinnulífsins, BSRB, Sambands íslenskra sveitarfélaga og fjármálaráðuneytisins.
Hlutverk FA er að vera samstarfsvettvangur og sérfræðisetur aðila vinnumark-
aðarins um fullorðins- og starfsmenntun á íslenskum vinnumarkaði í samstarfi við
aðrar fræðslustofnanir.
Hjá FA vinna nú 17 starfsmenn, flestir sérfræðingar á sviði fullorðinsfræðslu.
Markmið FA er að veita starfsmönnum á vinnumarkaði, sem ekki hafa lokið prófi
frá framhaldsskóla, tækifæri til að afla sér menntunar eða bæta stöðu sína á
vinnumarkaði og auka þar með samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs.
• Menntun og reynslu sem nýtist í starfi.
• Faglega þekkingu á námshönnun og
kennslufræði fullorðinna.
• Reynslu af fræðslumálum og almennu
atvinnulífi.
• Reynslu af verkefnastjórnun.
• Reynslu af að vinna undir álagi og í hópi.
• Framúrskarandi hæfni í mannlegum
samskiptum.
• Ritfærni í íslensku, ensku og einu norðurlandamáli.
Við leitum að jákvæðum og lausnamiðuðum einstaklingi sem hefur:
H
au
ku
r 0
1.
19
Hlutverk Póst- og fjarskiptastofnunar er að tryggja hagkvæm, örugg og aðgengileg fjarskipti og
póstþjónustu og efla virka samkeppni á markaði. Meginþungi starfseminnar eru fjarskipti og tengd
mál. Hjá PFS starfa 27 starfsmenn, aðallega sérfræðingar við úrlausn tæknilegra, viðskiptalegra og
lagalegra verkefna er tengjast hlutverki stofnunarinnar. Sjá nánari upplýsingar á www.pfs.is
Sérfræðingur í netöryggissveit PFS (CERT-ÍS)
Póst-og fjarskiptastofnun óskar eftir að ráða í stöðu sérfræðings í netöryggissveit PFS.
Netöryggissveitin hefur það hlutverk að fyrirbyggja, draga úr og bregðast við hættu vegna netárása eða hliðstæðra öryggisatvika í þeim tölvukerfum sem falla
undir starfssvið hennar. Sveitin leitast við að greina atvik af þessu tagi, takmarka útbreiðslu þeirra og tjón af þeirra völdum.
Helstu verkefni og ábyrgð:
• Meðhöndlun öryggisatvika og greining veikleika í tölvu- og netkerfum
• Upplýsingaskipti við þjónustuhóp og aðra ytri aðila
• Þátttaka í alþjóðlegu samstarfi um öryggi Internetsins
• Ráðgjöf og upplýsingar varðandi öryggismál á netinu
• Aðstoð við uppbyggingu þekkingar í meðhöndlun öryggisatvika hjá innlendum
netöryggishópum
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólapróf í verk-, tækni- eða tölvunarfræði eða á öðrum sviðum ef viðkomandi hefur
haldgóða reynslu á sviði netöryggis
• Sérmenntun eða starfsreynsla á sviði hugbúnaðargerðar og/eða öryggisgreininga er æskileg
• Umsækjendur þurfa að eiga auðvelt með að starfa sjálfstætt sem og í hópi og jafnframt búa
yfir þeim sveigjanleika og festu sem nauðsynleg er til að ná árangri í starfi
• Gerð er krafa um mikla greiningarhæfni, öguð og skipulögð vinnubrögð
• Búa yfir skilningi á internettækni ásamt færni til að meta upplýsingar um áhættu og áhrif
• Geta til að miðla tæknilegum upplýsingum til annarra
• Góð íslensku og enskukunnátta, bæði töluð og rituð, er áskilin
• Umsækjendur þurfa að geta unnið undir álagi og hafa tamið sér skipulag í vinnubrögðum
PFS hvetur konur jafnt sem karla til að sækja um störf hjá stofnuninni.
Vilt þú móta framtíð net- og upplýsingaöryggis á Íslandi?
Umsóknarfrestur er til og með 16. desember nk.
Umsjón með starfinu hefur Þorleifur Jónasson forstöðumaður tæknideildar. Umsóknir óskast fylltar út á heimasíðu PFS www.pfs.is eða á Starfatorgi.
Umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Krafist er sakavottorðs.
Umsækjandi þarf að gangast undir og standast bakgrunnsskoðun og öryggisvottun Ríkislögreglustjóra.
Póst- og fjarskiptastofnun lítur svo á að umsókn gildi í 6 mánuði frá dagsetningu hennar, nema umsækjandi ákveði umsókninni skemmri gildistíma.
Móttökuritari - 55% staða
Reyklaus vinnustaður. Staðan getur tímabundið krafist hærra
hlutfalls. Laus um áramót.
Staðan krefst mikillar sjálfstæðni, bókhaldsþekkingar,
tölvureynslu og reynslu í mannlegum samskiptum.
Vinsamlegast sendið umsókn ásamt ítarlegri ferilskrá og
kynningarbréfi til utlitslaekning@utlitslaekning.is.
Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
Stofnfiskur leitar að öflugum starfsmanni til að stýra verklegum
framkvæmdum við viðhald fasteigna, véla og tækja ásamt
því að hafa umsjón með nýframkvæmdum félagsins. Í boði er
spennandi starf hjá framsæknu fyrirtæki í örum vexti sem hefur
að skipa metnaðarfullu og samhentu starfsfólki.
Yfirmaður verklegra framkvæmda
Starfssvið
• Ber ábyrgð á nýframkvæmdum félagsins þ.m.t skipu
lagningu, gerð kostnaðargreininga og mannaflaspár
• Umsjón með viðhaldi á fasteignum félagsins
• Umsjón með dælubúnaði og viðhaldi þeirra
• Umsjón með viðhaldi á vélum og tækjabúnaði félagsins
• Áætlanagerð vegna framkvæmda og viðhalds
• Hluti af stjórnendateymi fyrirtækisins
Hæfniskröfur
• Meistararéttindi í iðngreinum og/eða háskólamenntun
sem nýtist í starfi
• Yfirgripsmikil reynsla af viðhaldi á ljósavélum, dælum og
mannvirkjum
• Reynsla af verkefnastjórnun
• 5+ ára stjórnendareynsla
• Framúrskarandi skipulagsfærni og sjálfstæð vinnubrögð
Vinsamlegast sendið umsóknir með ferilskrá á
heida@stofnfiskur.is. Umsóknarfrestur er til og með
21. desember næstkomandi.
Við hjá Kletti – sölu og þjónustu óskum eftir
að ráða ábyrgðarfullan og drífandi rekstrarstjóra
hjólbarðadeildar Kletts.
Starfið felur í sér daglegan rekstur hjólbarðadeildar,
umsjón með starfsmannamálum, gerð verkefna-
og fjárhagsáætlana, greiningu og gerð söluáætlana,
ábyrgð á pöntunum frá birgjum og utanumhald
um samninga.
• Góðir samskiptahæfileikar, rík þjónustulund
og jákvætt viðmót
• Geta til að vinna undir álagi
• Nákvæm og vandvirk vinnubrögð
• Skipulagshæfni sem felst í forgangsröðun og tímastjórnun
• Þekking og reynsla af samningatækni
• Yfirgripsmikil reynsla og þekking á starfsemi rekstrareininga
• Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
• Góð kunnátta og færni í Excel og DAX er nauðsynleg
Umsóknir skulu sendar á ba@klettur.is og umsóknarfrestur er til og með 17. desember 2019. Óskað er eftir ferilskrá.
GAKKTU TIL LIÐS VIÐ
KRAFTMIKINN HÓP HÆFNISKRÖFUR:
6 ATVINNUAUGLÝSINGAR 7 . D E S E M B E R 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R