Fréttablaðið - 07.12.2019, Page 58

Fréttablaðið - 07.12.2019, Page 58
Skólastjóri Engjaskóla Skóla- og frístundasvið Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er. Í öllu starfi skóla- og frístundasviðs er unnið að innleiðingu Menntastefnu Reykjavíkur „Látum draumana rætast“ þar sem leiðarljósin eru virkni og þátttaka barna, aukið samstarf og fagmennska. Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar auglýsir stöðu skólastjóra við Engjaskóla lausa til umsóknar. Frá upphafi skólaársins 2020-2021 verður Engjaskóli annar tveggja grunnskóla fyrir nemendur í 1. – 7. bekk í norðan- verðum Grafarvogi. Auk Engjaskóla verður Borgarskóli fyrir nemendur í 1. – 7. bekk og Víkurskóli verður unglingaskóli fyrir nemendur í 8. – 10. bekk. Lögð er áhersla á að þessir þrír skólar séu í nánu samstarfi um framkvæmd og þróun skólastarfs. Nemendur úr Engjahverfi og Staðahverfi á yngsta- og miðstigi munu sækja Engjaskóla. Gert er ráð fyrir að innan skólans verði starfsrækt frístundaheimili og félagsmiðstöð fyrir 10-12 ára nemendur. Skólinn er staðsettur í fallegu umhverfi og framundan eru spennandi tímar við að móta og þróa metnaðarfullt skólastarf í nýjum grunnskóla sem byggir á gömlum merg. Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi sem býr yfir leið- togahæfileikum og hefur víðtæka reynslu og þekkingu á grunnskólastarfi. Helstu verkefni og ábyrgð: • Veita skólanum faglega forystu og móta framtíðarstefnu hans í samstarfi við starfsfólk skólans, nemendur, foreldra og aðra skóla í hverfinu, innan ramma laga og reglugerða og í samræmi við aðalnámskrá grunnskóla og stefnu Reykjavíkurborgar. • Stýra og bera ábyrgð á rekstri og daglegri starfsemi skólans. • Bera ábyrgð á starfsmannamálum, s.s. ráðningum, vinnutilhögun og starfsþróun. • Bera ábyrgð á samstarfi aðila skólasamfélagsins. Menntunar- og hæfniskröfur: • Leyfi til að nota starfsheitið grunnskólakennari. • Viðbótarmenntun í stjórnun eða kennslureynsla á grunnskólastigi. • Reynsla af faglegri forystu á sviði kennslu og þróunar í skólastarfi. • Stjórnunarhæfileikar. • Færni í áætlanagerð og fjármálastjórnun. • Færni til að leita nýrra leiða í skólastarfi og leiða framsækna skólaþróun. • Lipurð og hæfni í samskiptum. Umsókn fylgi yfirlit yfir nám og fyrri störf, leyfisbréf til að nota starfsheitið grunnskólakennari, greinargerð um framtíðarsýn umsækjanda á skólastarfið, upplýsingar um framsækin verkefni sem umsækjandi hefur leitt og annað er málið varðar. Ráðið verður í stöðuna frá og með 1. ágúst 2020 en gert er ráð fyrir að viðkomandi komi að undirbúningi skólastarfsins frá ársbyrjun. Umsóknarfrestur er til og með 23. desember 2019. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ vegna Skólastjórafélags Íslands. Umsækjendur eru beðnir að sækja um starfið á heimasíðu Reykjavíkurborgar, www.reykjavik.is/storf. Nánari upplýsingar veita Soffía Vagnsdóttir, skrifstofustjóri grunnskólahluta fagskrifstofu, og Ragnheiður E. Stefánsdóttir, mannauðsstjóri, sími 411 1111. Netföng: soffia.vagnsdottir@reykjavik.is / ragnheidur.e.stefansdottir@reykjavik.is Menntunar- og hæfniskröfur: • Þroskaþjálfa, iðjuþjálfamenntun eða önnur háskólamenntun sem nýtist í starfi • Reynsla af starfi með fötluðum • Góðir skipulagshæfileikar • Hæfni í mannlegum samskiptum Helstu verkefni og ábyrgðarsvið: • Sér um stjórnun, áætlanagerð og rekstur Öldunnar • Ber ábyrgð á innra starfi, starfsmannamálum og samskiptum við aðstandendur og samstarfsaðila • Ber ábyrgð á starfs-, þjónustu- og rekstraráætlunum • Veitir leiðsögn til starfsmanna og leiðbeinenda • Ber ábyrgð á samvinnu við ýmsar stofnanir og sérfræðinga sem tengjast Öldunni Forstöðumaður Öldunnar, Borgarnesi Borgarbyggð auglýsir lausa til umsóknar 100% stöðu forstöðumanns Öldunnar, verndaðs vinnustaðar í Borgarnesi. Um tímabundna ráðningu er að ræða með möguleikum á framtíðarráðningu. Við leitum að metnaðarfullum einstaklingi með brennandi áhuga á málefnum fatlaðra. Aldan starfar samkvæmt lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir nr. 38/2018, reglugerðum þeim tengdum og sáttmála Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðra. Þar er komið til móts við þörf fatlaðs fólks á dagþjónustu, vinnu og hæfingu. Aldan rekur dósamóttöku, verslun, saumastofu, kertagerð ofl. og sér um pökkun, límmerkingar á alls kyns varningi fyrir stofnanir og fyrirtæki ásamt öðrum tilfallandi verkefnum. Upplýsingar veitir Inga Vildís Bjarnadóttir félagsmálastjóri, sími 433-7100 á vildis@borgarbyggd.is Umsóknir með upplýsingum um menntun og starfsferil sendist Borgarbyggð á borgarbyggd@borgarbyggd.is Umsóknarfrestur er til 1. janúar 2019. Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. BORGARBYGGÐ [Cite your source here.] JÁRNIÐNAÐARMAÐUR Faxaflóahafnir sf óska eftir að ráða járniðnaðarmann til starfa. Starfið felst í vinnu við ýmis viðhaldsverkefni við hafnirnar. Starfsmaðurinn mun hafa starfsstöð í Bækistöð Faxaflóahafna að Fiskislóð 12 í Reykjavík. Umsókn, ásamt ferilskrá sendist til Faxaflóahafna sf., á netfangið olafur@faxafloahafnir.is , eigi síðar en föstudaginn 10. maí n.k. Nánari upplýsingar um starfið gefur Jóhann P. Guðnason yfirverkstjóri í síma 525 8951 Hafnargæslumaður við Grundartangahöfn Faxaflóahafnir sf. óska eftir að ráða hafnar­ gæslumann við Grundartangahöfn. Starfið felst m.a. í aðgangsstjórnun og öryggis­ gæslu á afgirtu svæði Grundartanga og almennri hafnargæslu þar. Viðvera starfsmanns er í vakthúsi Grundartanga­ hafnar og unnið er allan sólarhringinn samvæmt fyrirliggjandi vaktakerfi. • Meginverkefni eru aðgangsstjórnun, öryggisgæsla, eftirlit með farmverndarskjölum, skráning á umferð og farmi og önnur tilfallandi störf tengd starfssviði viðkomandi starfs. • Hæfniskröfur eru gott líkamlegt og andlegt ástand, góð íslensku­, ensku­, og almenn tölvukunná ta. Starfsmaður skal sækja námskeið Samgöngustofu um hafnargæslu. Þar sem í gildi eru ákvæði laga um hafnavernd þá er óskað eftir að umsækjandi leggi fram hreint sakavottorð með umsókn sinni. Umsókn ásamt ferilskrá sendist til Faxaflóahafna sf., á netfangið olafur@faxafloahafnir.is, eigi síðar en föstudaginn 20. desember n.k. Nánari upplýsingar um starfið gefur Bergsteinn Ísleifsson, öryggisfulltrúi bergsteinn@faxafloahafnir.is Faxaflóahafnir hafa staðist jafnlaunavottun og hlotið Jafnlaunamerki Velferðarráðuneytis. JÁRNIÐNAÐARMAÐUR Faxaflóahafnir sf óska eftir að ráða járniðnaðarmann til starfa. Starfið felst í vinnu við ýmis viðhaldsverkefni við hafnirnar. Starfsmaðurinn mun hafa starfsstöð í Bækistöð Faxaflóahafna að Fiskislóð 12 í Reykjavík. Umsókn, ásamt ferilskrá sendist til Faxaflóahafna sf., á netfangið olafur@faxaflo f ir.i , eigi síðar en föstudaginn 10. maí n.k. Nánari upplýsingar um starfið gefur Jóhann P. Guðnason yfirverkstjóri í síma 525 8951 GRINDAVÍKURBÆR GRINDAVÍKURBÆR Laus er til umsóknar staða starfsmanns hjá Þjónustumiðstöð Grindavíkurbæjar Leitað er að metnaðarfullum og traustum einstaklingi sem hefur áhuga á fjölbreyttum verkefnum. Konur, jafnt sem karlar, eru hvattar til að sækja um starfið. Starfshlutfall er 100%. Verksvið og ábyrgð • Viðhald fasteigna Grindavíkurbæjar. • Viðhald gatna, veitna, og annarra eigna eignasjóðs. • Afleysing á þjónustubifreiðum Grindavíkurbæjar. • Þjónusta við stofnanir Grindavíkurbæjar. • Tilfallandi vinnuvélavinna. • Öll tilfallandi störf í Þjónustumiðstöð t.d. snjómokstur o.s.frv. Hæfniskröfur • Reynsla af viðhaldsvinnu mannvirkja (skilyrði). • Bílpróf er nauðsynlegt. o D eða d1 ökuréttindi er kostur. • Réttindi til farþegaflutninga (400 eða 450). • Vinnuvélaréttindi eru kostur (J og I). • Reynsla af vinnu með börnum og/eða unglingum kostur. • Sjálfstæði í vinnubrögðum. • Frumkvæði, metnaður og sjálfstæði í vinnubrögðum. • Tölvukunnátta í outlook, word og excel. • Lipurð í mannlegum samskiptum. • Rík þjónustulund við íbúa bæjarins. • Hreint sakavottorð er skilyrði. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags við Sambands íslenskra sveitafélaga. Umsóknarfrestur er til og með mánudeginum 16. desember nk. Senda skal umsókn og starfsferilsskrá á Sigurð R. Karlsson, yfirmann Þjónustumiðstöðvar á Siggigh@grindavik.is, nánari upplýsingar í síma 660-7302 frá 07:00 til 17:00 og til 12:00 föstudaga.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.