Fréttablaðið - 07.12.2019, Qupperneq 61
SKRIÐUSÉRFRÆÐINGUR Á
VEÐURSTOFU ÍSLANDS
Veðurstofa Íslands auglýsir eftir skriðusérfræðingi í fullt starf á Úrvinnslu-og rannsóknarsviði. Á sviðinu starfa um 50 manns
við ýmis spennandi þróunar- og rannsóknarverkefni er tengjast veður- og loftslagsrannsóknum, ofanflóðahættumati, jökla-,
vatna- og haffræði, jarðskorpuhreyfingum og eldgosum. Veðurstofa Íslands er sömuleiðis leiðandi stofnun í vinnu við
áhættumat í tengslum við náttúruvá og er vinna við áhættumat tengdum flóðum, ofanflóðum og eldgosum sífellt stærri hluti
af verkefnum sviðsins.
Gert er ráð fyrir að skriðutíðni geti aukist með hlýnandi loftslagi og samhliða þeirri þróun kallar aukinn fjöldi ferðamanna
einnig á úttekt á skriðuhættu á fjölmennum ferðamannastöðum. Þessar aðstæður krefjast aukinnar kortlagningar og
vöktunar á óstöðugum hlíðum. Nýjar aðferðir í mælitækni og fjarkönnun hafa verið að ryðja sér til rúms á síðustu misserum á
þessu sviði og eru mörg tækifæri til frekari þróunar.
Starf skriðusérfræðings fellur undir fagsvið ofanflóða en samtals koma um 10 manns að vinnu við ofanflóð á stofnuninni og
eru flestir starfsmennirnir staðsettir á Snjóflóðasetri Veðurstofunnar á Ísafirði. Saman vinna þeir að hættumati, vöktun og
rannsóknar- og þróunarverkefnum tengdum ofanflóðum, þ.m.t. skriðumálum.
Sérfræðivinna við gagnasöfnun,
úrvinnslu, kortlagningu og vöktun er
tengist skriðuvá
Sérfræðivinna við skriðuhættumat og
miðlun afurða til eftirlits á skriðuvá
Leiðandi hlutverk í þróun
fjarkönnunaraðferða tengdum
skriðukortlagningu og eftirliti
Mótun og þátttaka í rannsóknar-
og þróunarverkefnum tengdum
skriðuvöktun og áhættumati
Verkefnisstjórn tilgreindra verkefna eftir
atvikum
Háskólapróf og framhaldsmenntun á
sviði raunvísinda og/eða verkfræði
Farsæl reynsla og/eða þekking af vinnu
við skriðumál
Reynsla í fjarkönnun, s.s. úrvinnslu
InSAR gagna er kostur
Góð kunnátta í landupplýsingakerfum
(LUK)
Hæfni í mannlegum samskiptum
Hæfni til að vinna sjálfstætt sem og í
teymisvinnu
Færni og geta til að miðla niðurstöðum
innan teymis og út á við
Skipulögð og fagleg vinnubrögð í starfi
Góð tölvukunnátta nauðsynleg
Góð tungumálafærni í íslensku og/eða
ensku nauðsynleg
Farsæl reynsla í verkefnastjórnun er
kostur
Gildi Veðurstofunnar eru þekking,
áreiðanleiki, framsækni og samvinna.
Ráðningar hjá stofnuninni munu taka
mið af þessum gildum
Nánari upplýsingar um starfið veita
Jórunn Harðardóttir, framkvæmdastjóri
(jorunn@vedur.is), Magni Hreinn
Jónsson, hópstjóri ofanflóða
(magni@vedur.is) og Borgar Ævar
Axelsson, mannauðsstjóri
(borgar@vedur.is), í síma 522 6000.
Um er að ræða fullt starf og taka
laun mið af kjarasamningum ríkisins
og viðeigandi stéttarfélags. Æskileg
staðsetning skriðufræðingsins er á
Snjóflóðasetri Veðurstofu Íslands á
Ísafirði.
Umsóknarfrestur er til og með 6. janúar
nk. Umsækjendur eru vinsamlega
beðnir um að sækja um starfið á
www.starfatorg.is
HLUTVERK OG HELSTU VERKEFNI MENNTUNAR- OG
HÆFNISKRÖFUR
NÁNARI UPPLÝSINGAR OG
UMSÓKNARFRESTUR
Hlutverk Veðurstofu Íslands er að stuðla að
bættu öryggi almennings, eigna og innviða
gagnvart öflum náttúrunnar, jafnframt því
að styðja sjálfbæra nýtingu náttúrunnar og
samfélagslega hagkvæmni. Því hlutverki
sinnir starfsfólk Veðurstofunnar með
vöktun lofts, láðs og lagar, byggðri á öflun,
varðveislu og greiningu gagna, rannsóknum,
þróun og miðlun upplýsinga.
Veðurstofa Íslands er opinber stofnun
sem heyrir undir umhverfis- og
auðlindaráðuneytið. Á Veðurstofunni starfa
um 140 manns með fjölbreytta menntun og
starfsreynslu sem spannar mörg fræðasvið.
Auk þess starfa um 75 manns við athugana-
og eftirlitsstörf víðsvegar um landið.
Nánari upplýsingar um stofnunina má finna
á heimasíðu hennar www.vedur.is
Þýskukennari
Vegna veikinda er laus staða þýskukennara á vormisseri
2020 við Menntaskólann í Reykjavík.
Óskað er eftir kennara með réttindi til að kenna þýsku á
framhaldsskólastigi.
Launakjör eru samkvæmt stofnanasamningi skólans við
Kennarasamband Íslands.
Umsóknarfrestur er til og með 20. desember 2019. Um-
sóknum skal skilað inn á Starfatorg (www.starfatorg.is).
Nánari upplýsingar um starfið veitir Elísabet Siemsen
rektor í síma 545 1900 eða í netfangið: rektor@mr.is og
Einar Hreinsson konrektor í síma 545 1900 eða í netfangið:
einar@mr.is.
Við hvetjum konur jafnt sem karla til að sækja um starfið.
Athygli umsækjenda skal vakin á því að samkvæmt lögum
um framhaldsskóla nr. 92/2008 er ekki heimilt að ráða
einstakling til starfa sem hlotið hefur dóm fyrir brot á XXII.
kafla almennra hegningarlaga og því er beðið um saka-
vottorð áður en af ráðningu getur orðið.
Umsjónarmaður fasteigna
Menntaskólans í Reykjavík
Laus er til umsóknar staða umsjónarmanns fasteigna við Menntaskólann í Reykjavík. Staðan er laus
frá og með 1. janúar 2020. Um er að ræða 100% starf.
Umsókninni skal fylgja yfirlit yfir nám og fyrri störf auk meðmæla.
Hæfni- og menntunarkröfur:
Lipurð, þjónustulund og stundvísi
Að geta brugðist við og tekið að sér minniháttar viðhald
Þekking á hússtjórnarkerfum/loftræstikerfum/tæknikerfum
Þekking á öryggismálum og eldvörnum
Að geta brugðist við og tekið að sér minniháttar viðhald
Íslensku- og enskukunnátta
Tölvukunnátta sem hæfir starfinu
Iðnmenntun er æskileg
Menntaskólinn í Reykjavík er elsta menntastofnun landsins og hefur yfir að ráða nokkrum byggingum
og eru nokkrar þeirra undir Minjavernd. Lóð skólans afmarkast af Lækjargötu, Amtmannsstíg,
Þingholtsstræti og Bókhlöðustíg.
Starfið er fjölbreytt og líflegt. Starfsmenn eru tæplega 80 og nemendafjöldi er 700.
Launakjör eru samkvæmt stofnanasamningi skólans við SFR.
Umsóknarfrestur er til og með 20. desember 2019. Umsóknum skal skilað inn á Starfatorg
(www.starfatorg.is). Nánari upplýsingar um starfið veitir Elísabet Siemsen rektor í síma 545 1900 eða
í netfangið: rektor@mr.is og Einar Hreinsson konrektor í síma 545 1900 eða í netfangið: einar@mr.is.
Við hvetjum konur jafnt sem karla til að sækja um starfið.
Athygli umsækjenda skal vakin á því að samkvæmt lögum um framhaldsskóla nr. 92/2008 er ekki
heimilt að ráða einstakling til starfa sem hlotið hefur dóm fyrir brot á XXII.kafla al ennra
hegningarlaga og því er beðið um sakavottorð áður en af ráðningu getur orðið.
STÖRF HJÁ
GARÐABÆ
Álftanesskóli
• Stuðningsfulltrúi
Hofsstaðaskóli
• Deildarstjóri stoðþjónustu
Urriðaholtsskóli
• Húsvörður
Leikskólinn Kirkjuból
• Fagmenntaður starfsmaður
• Deildarstjóri
• Leikskólakennari
eða háskólamenntaður starfsmaður
Leikskólinn Krakkakot
• Leikskólakennari
Leikskóladeild Flataskóla
• Leikskólakennari eða
háskólamenntaður starfsmaður
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns,
eru hvattir til að sækja um.
Nánari upplýsingar má finna á ráðningarvef
Garðabæjar https://starf.gardabaer.is.
GARÐATORGI 7 • SÍMI 525 8500 • GARDABAER.IS
Síðumúla 5 • 108 Reykjavík • 511 1225 • intellecta.is
RÁÐNINGAR
RÁÐGJÖF
RANNSÓKNIR
ATVINNUAUGLÝSINGAR 13 L AU G A R DAG U R 7 . D E S E M B E R 2 0 1 9