Fréttablaðið - 07.12.2019, Page 62
Auglýst er laust til umsóknar embætti lögreglustjórans á Austurlandi.
Lögreglustjórinn á Austurlandi fer með stjórn lögregluliðs í sínu umdæmi.
Hann annast daglega stjórn og rekstur lögreglunnar í umdæminu og ber ábyrgð á
framkvæmd lögreglustarfa innan þess.
Umsækjendur skulu fullnægja skilyrðum 2. mgr. 28. gr. lögreglulaga nr. 90/1996.
Aðrar hæfniskröfur eru:
• Góð þekking og yfirsýn á verkefnum lögreglunnar æskileg
• Góð þekking og/eða reynsla af störfum innan stjórnsýslunnar æskileg
• Rekstrarþekking og/eða reynsla er æskileg
• Reynsla af stjórnun og stefnumótun æskileg
• Mjög góð forystu-, samvinnu- og samskiptahæfni
• Fagmennska, frumkvæði, drifkraftur og jákvæðni
• Mjög gott vald á íslensku og ensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti
• Þekking á einu Norðurlandamáli æskileg
Dómsmálaráðherra skipar lögreglustjóra til 5 ára í senn, sbr. lög um réttindi og
skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996. Miðað er við að skipað verði í embættið
frá og með 1. mars 2020. Um laun og starfskjör lögreglustjóra fer eftir ákvörðun
kjara- og mannauðssýslu fjármála- og efnahagsráðuneytisins.
Upplýsingar um starfið veitir Haukur Guðmundsson ráðuneytisstjóri
í síma 545 9000.
Umsóknarfrestur er til og með 10. janúar 2020.
Dómsmálaráðuneytið hefur ákveðið að fela nefnd að fara yfir þær umsóknir sem
berast og á nefndin að skila ráðherra rökstuddu áliti á hæfni umsækjenda.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um skipun liggur fyrir.
Umsóknum skal skila rafrænt á starf@dmr.is.
Í umsókn skulu koma fram upplýsingar um:
1) menntun, 2) reynslu af stjórnun, 3) reynslu af
lögmannsstörfum, saksókn, dómstörfum,
4) reynslu af stjórnsýslustörfum, 5) upplýsingar
um samskiptafærni og sjálfstæði, 6) aðrar upp-
lýsingar sem varpað geta ljósi á faglega eiginleika
og færni umsækjanda sem máli skipta fyrir störf
lögreglustjóra. Með umsókn skulu fylgja afrit af
prófskírteinum og upplýsingar um umsagnaraðila.
Embætti lögreglustjóra á
Austurlandi laust til umsóknar
Fjársýslan er þjónustu- og
þekkingarstofnun á sviði
opinberra fjármála.
Stofnunin veitir fjármálatengda
þjónustu til ríkissjóðs og
ríkisaðila og annast umsýslu
fjármuna.
Þá hefur hún yfirumsjón
með bókhaldi og uppgjörum
ríkissjóðs og tryggir tímanlegar
og áreiðanlegar upplýsingar um
fjármál ríkisins.
Nánari upplýsingar um
stofnunina er að finna á
www.fjs.is
Fjársýsla ríkisins auglýsir lausa stöðu sérfræðings á fjárreiðusviði. Um framtíðarstarf er að ræða
í fjölbreyttu og krefjandi umhverfi. Fjárreiðusvið sér m.a. um greiðslustýringu fyrir ríkissjóð,
ráðuneyti og þær ríkisstofnanir sem þess óska. Þá annast sviðið móttöku á innheimtufé frá
innheimtuembættum ríkisins ásamt innheimtu á skuldabréfum og kröfum fyrir ríkissjóð.
Helstu verkefni og ábyrgð
Taka þátt í þróun og rekstri á útgreiðslum fyrir ríkissjóð, ráðuneyti og ríkisstofnanir
Uppgjör og afstemmingar
Koma að sjóðstreymisáætlun fyrir ríkissjóð og greiðslu á framlagsfé
Samskipti við stofnanir ríkisins, lánastofnanir og lánadrottna
Greining á ferlum og upplýsingum varðandi útgreiðslur (Vöruhús gagna)
Innleiðing á greiðsluþjónustu fyrir stofnanir í A-hluta
Önnur verkefni er tengjast greiðslustýringu fyrir ríkissjóð
Hæfnikröfur
Háskólamenntun sem nýtist í starfi og reynsla af sambærilegum verkefnum
Góð þekking á upplýsingatæknimálum er æskileg
Góð kunnátta á Excel er skilyrði
Þekking á Orra er kostur
Skipulagshæfni
Sjálfstæði í vinnubrögðum
Frumkvæði, metnaður til að ná árangri og tileinka sér nýjungar
Mjög góð samstarfs- og samskiptahæfni
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag
háskólamenntaðra starfsmanna stjórnarráðs hafa gert
Gerð er krafa um hreint sakavottorð
Umsóknarfrestur er til og með 17.12.2019
Einungis er tekið við umsóknum sem berast gegnum www.starfatorg.is
Starfshlutfall er 100%
Nánari upplýsingar veita
Vilhjálmur Örn Sigurhjartarson - vilhjalmur.orn.sigurhjartarson@fjs.is - 545-7500
Guðjón Ásbjörn Ríkharðsson - gudjon.a.rikhardsson@fjs.is - 545-7500
Fjársýsla ríkisins auglýsir lausa stöðu
sérfræðings á fjárreiðusviði
Við ráðum
WWW.RADUM.IS | 519 6770 | RADUM@RADUM.IS
Stjórnendaleit
Reynsla og gott tengslanet sérfræðinga
Ráðum skilar árangri þegar finna þarf æðstu
stjórnendur eða fólk í stjórnir fyrirtækja.
Ráðningar millistjórnenda og sérfræðinga
Góður gagnagrunnur, gott tengslanet og ára
löng reynsla á ráðningarmarkaði eykur líkurnar
á því að finna hæfasta einstaklinginn í starfið.
Almennar ráðningar á markaði
Öflun umsækjenda í almenn störf er ein helsta
áskorun fyrir tækja í dag. Þekking á markaðnum
er því mikilvæg og þar skiptir reynslan miklu
máli. Með leit í gagna grunni eða aug lýsingu í
viðeigandi miðlum aðstoðar Ráðum fyrirtæki
við að finna hæfasta ein staklinginn í starfið.
Sveigjanleg nálgun
Sérstaða Ráðum liggur í sveigjanlegri nálgun
á ráðningar verkefnið. Fyrir utan að sjá um allt
ráðningar ferlið komum við til móts við þarfir
fyrir tækja með því að sjá um hluta þess ef þörf
krefur, t.d. bakgrunns kannanir, hæfnis mat eða
starfs tengdar æfingar.
Matstæki
Ráðum notast við nýjustu aðferðir við að meta
hæfni og persónuleikaþætti sem geta skipt
sköpum í ráðningum. Ráðum er í sam starfi við
banda ríska mannauðs lausna fyrirtækið CEB sem
er í farar broddi í persónu leika prófum og öðrum
mats tækjum sem eru sér stak lega hönnuð til að
greina sérstöðu og hæfileika ein staklinga áður
en ráðning fer fram.
Þannig er hægt að finna hæfasta einstaklinginn
með talsverðri ná kvæmni. Persónu leika matið
OPQ32 og DSI (Dependa bility & Safety Index)
skimunar prófið hafa t.d. verið stöðluð og
staðfærð að íslenskum markaði.
Ráðgjöf við starfslok
Viðskilnaður fyrirtækis við starfsmann skiptir
höfuð máli þegar fyrirtækið á frum kvæðið að
starfs lokum. Ráðum býður upp á við tal við
ráð gjafa sem felur m.a. í sér upplýsingar um
atvinnu markaðinn, ráðgjöf varðandi starfs
ferilskrá og kynningarbréf og hagnýt atriði
varðandi starfs leit og atvinnu viðtöl.
Ráðum býður upp á ráðgjöf
og ráðningar þjónustu sniðna
að þörfum viðskiptavinarins.