Fréttablaðið - 07.12.2019, Síða 62

Fréttablaðið - 07.12.2019, Síða 62
Auglýst er laust til umsóknar embætti lögreglustjórans á Austurlandi. Lögreglustjórinn á Austurlandi fer með stjórn lögregluliðs í sínu umdæmi. Hann annast daglega stjórn og rekstur lögreglunnar í umdæminu og ber ábyrgð á framkvæmd lögreglustarfa innan þess. Umsækjendur skulu fullnægja skilyrðum 2. mgr. 28. gr. lögreglulaga nr. 90/1996. Aðrar hæfniskröfur eru: • Góð þekking og yfirsýn á verkefnum lögreglunnar æskileg • Góð þekking og/eða reynsla af störfum innan stjórnsýslunnar æskileg • Rekstrarþekking og/eða reynsla er æskileg • Reynsla af stjórnun og stefnumótun æskileg • Mjög góð forystu-, samvinnu- og samskiptahæfni • Fagmennska, frumkvæði, drifkraftur og jákvæðni • Mjög gott vald á íslensku og ensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti • Þekking á einu Norðurlandamáli æskileg Dómsmálaráðherra skipar lögreglustjóra til 5 ára í senn, sbr. lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996. Miðað er við að skipað verði í embættið frá og með 1. mars 2020. Um laun og starfskjör lögreglustjóra fer eftir ákvörðun kjara- og mannauðssýslu fjármála- og efnahagsráðuneytisins. Upplýsingar um starfið veitir Haukur Guðmundsson ráðuneytisstjóri í síma 545 9000. Umsóknarfrestur er til og með 10. janúar 2020. Dómsmálaráðuneytið hefur ákveðið að fela nefnd að fara yfir þær umsóknir sem berast og á nefndin að skila ráðherra rökstuddu áliti á hæfni umsækjenda. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um skipun liggur fyrir. Umsóknum skal skila rafrænt á starf@dmr.is. Í umsókn skulu koma fram upplýsingar um: 1) menntun, 2) reynslu af stjórnun, 3) reynslu af lögmannsstörfum, saksókn, dómstörfum, 4) reynslu af stjórnsýslustörfum, 5) upplýsingar um samskiptafærni og sjálfstæði, 6) aðrar upp- lýsingar sem varpað geta ljósi á faglega eiginleika og færni umsækjanda sem máli skipta fyrir störf lögreglustjóra. Með umsókn skulu fylgja afrit af prófskírteinum og upplýsingar um umsagnaraðila. Embætti lögreglustjóra á Austurlandi laust til umsóknar Fjársýslan er þjónustu- og þekkingarstofnun á sviði opinberra fjármála. Stofnunin veitir fjármálatengda þjónustu til ríkissjóðs og ríkisaðila og annast umsýslu fjármuna. Þá hefur hún yfirumsjón með bókhaldi og uppgjörum ríkissjóðs og tryggir tímanlegar og áreiðanlegar upplýsingar um fjármál ríkisins. Nánari upplýsingar um stofnunina er að finna á www.fjs.is Fjársýsla ríkisins auglýsir lausa stöðu sérfræðings á fjárreiðusviði. Um framtíðarstarf er að ræða í fjölbreyttu og krefjandi umhverfi. Fjárreiðusvið sér m.a. um greiðslustýringu fyrir ríkissjóð, ráðuneyti og þær ríkisstofnanir sem þess óska. Þá annast sviðið móttöku á innheimtufé frá innheimtuembættum ríkisins ásamt innheimtu á skuldabréfum og kröfum fyrir ríkissjóð. Helstu verkefni og ábyrgð Taka þátt í þróun og rekstri á útgreiðslum fyrir ríkissjóð, ráðuneyti og ríkisstofnanir Uppgjör og afstemmingar Koma að sjóðstreymisáætlun fyrir ríkissjóð og greiðslu á framlagsfé Samskipti við stofnanir ríkisins, lánastofnanir og lánadrottna Greining á ferlum og upplýsingum varðandi útgreiðslur (Vöruhús gagna) Innleiðing á greiðsluþjónustu fyrir stofnanir í A-hluta Önnur verkefni er tengjast greiðslustýringu fyrir ríkissjóð Hæfnikröfur Háskólamenntun sem nýtist í starfi og reynsla af sambærilegum verkefnum Góð þekking á upplýsingatæknimálum er æskileg Góð kunnátta á Excel er skilyrði Þekking á Orra er kostur Skipulagshæfni Sjálfstæði í vinnubrögðum Frumkvæði, metnaður til að ná árangri og tileinka sér nýjungar Mjög góð samstarfs- og samskiptahæfni Frekari upplýsingar um starfið Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólamenntaðra starfsmanna stjórnarráðs hafa gert Gerð er krafa um hreint sakavottorð Umsóknarfrestur er til og með 17.12.2019 Einungis er tekið við umsóknum sem berast gegnum www.starfatorg.is Starfshlutfall er 100% Nánari upplýsingar veita Vilhjálmur Örn Sigurhjartarson - vilhjalmur.orn.sigurhjartarson@fjs.is - 545-7500 Guðjón Ásbjörn Ríkharðsson - gudjon.a.rikhardsson@fjs.is - 545-7500 Fjársýsla ríkisins auglýsir lausa stöðu sérfræðings á fjárreiðusviði Við ráðum WWW.RADUM.IS | 519 6770 | RADUM@RADUM.IS Stjórnendaleit Reynsla og gott tengslanet sérfræðinga Ráðum skilar árangri þegar finna þarf æðstu stjórnendur eða fólk í stjórnir fyrirtækja. Ráðningar millistjórnenda og sérfræðinga Góður gagnagrunnur, gott tengslanet og ára­ löng reynsla á ráðningarmarkaði eykur líkurnar á því að finna hæfasta einstaklinginn í starfið. Almennar ráðningar á markaði Öflun umsækjenda í almenn störf er ein helsta áskorun fyrir tækja í dag. Þekking á markaðnum er því mikilvæg og þar skiptir reynslan miklu máli. Með leit í gagna grunni eða aug lýsingu í viðeigandi miðlum aðstoðar Ráðum fyrirtæki við að finna hæfasta ein staklinginn í starfið. Sveigjanleg nálgun Sérstaða Ráðum liggur í sveigjanlegri nálgun á ráðningar verkefnið. Fyrir utan að sjá um allt ráðningar ferlið komum við til móts við þarfir fyrir tækja með því að sjá um hluta þess ef þörf krefur, t.d. bakgrunns kannanir, hæfnis mat eða starfs tengdar æfingar. Matstæki Ráðum notast við nýjustu aðferðir við að meta hæfni og persónuleikaþætti sem geta skipt sköpum í ráðningum. Ráðum er í sam starfi við banda ríska mannauðs lausna fyrirtækið CEB sem er í farar broddi í persónu leika prófum og öðrum mats tækjum sem eru sér stak lega hönnuð til að greina sérstöðu og hæfileika ein staklinga áður en ráðning fer fram. Þannig er hægt að finna hæfasta einstaklinginn með talsverðri ná kvæmni. Persónu leika matið OPQ32 og DSI (Dependa bility & Safety Index) skimunar prófið hafa t.d. verið stöðluð og staðfærð að íslenskum markaði. Ráðgjöf við starfslok Viðskilnaður fyrirtækis við starfsmann skiptir höfuð máli þegar fyrirtækið á frum kvæðið að starfs lokum. Ráðum býður upp á við tal við ráð gjafa sem felur m.a. í sér upplýsingar um atvinnu markaðinn, ráðgjöf varðandi starfs­ ferilskrá og kynningarbréf og hagnýt atriði varðandi starfs leit og atvinnu viðtöl. Ráðum býður upp á ráðgjöf og ráðningar þjónustu sniðna að þörfum viðskiptavinarins.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.