Fréttablaðið - 07.12.2019, Side 92

Fréttablaðið - 07.12.2019, Side 92
Myndirnar mínar hafa hingað til ver ið t iltölu-l e g a þ u n g a r og mér hefur fundist erfitt að vinna með húmor,“ segir leikstjór- inn Rúnar Rúnarsson sem gerði stormandi lukku og heillaði gesti kvikmyndahátíða víða um lönd með fyrstu tveimur bíómyndum sínum, Eldfjalli frá 2011 og Þröstum sem flugu hátt 2015 en þótti tefla á tæpasta vað þegar hann ákvað að fylgja velgengninni eftir með furðu- verkinu sem Bergmál er. „Við lögðum upp með 60 atriði í handriti en ætli við höfum ekki skotið svona 40-50 auka og af þessu enda 58 í myndinni þannig að það var hellingur afgangs.“ Klipping myndarinnar var eins og gefur að skilja heldur f lókin og Rúnar segir heilmiklar pælingar hafa farið í að velja og hafna, ná upp „tempói“ og skapa heild úr öllum þessum brotum. „Ef myndinni er líkt við bók- menntir mætti kannski segja að þetta sé einhvers konar samblanda af smásagnasafni og ljóðabók,“ segir Rúnar sem einhverjir töldu klikk- aðan þegar hann ákvað að snúa baki við stöðluðum frásagnarhætti og leggjast í bútasaum. „Flestar bækur og bíómyndir segja eina sögu oft með eina aðal- söguhetju sem við sjáum þroskast einhvern veginn á leiðinni. Það eru samt alveg upphaf, miðja, ris og endir í þessari mynd þrátt fyrir að samfélagið sjálft sé aðalpersónan.“ Alvarlegur húmoristi Eins og Rúnar bendir á skilur f leira en frásagnarhátturinn þessa mynd frá öðrum verkum hans þar sem hér bergmálar óvæntur hlátur á og frá ólíklegustu stöðum og senum í myndinni. „Bergmál er líka fyndin og aldrei þessu vant er fólk líka alveg að hlæja yfir þessari mynd,“ segir Rúnar sem hefur orðið áberandi var við þau ólíku áhrif sem sögubrotin hafa á fólk. Það sem einum finnst fyndið finnst öðrum til dæmis fáránlegt eða sorglegt. Hann segir ekki síst skemmtilegt að fylgjast með viðbrögðum áhorf- enda við Bergmáli í ljósi þess hvern- ig bíómyndir ferðast almennt á milli menningarheima. Hvar og hvenær fólk hlær og hlær ekki. „Á Spáni þótti til dæmis alveg drepfyndið að verið væri að núllstilla skiltið yfir fjölda látinna í umferðinni uppi á Hellisheiði en síðan þekki ég fólk á Íslandi, sem tengir við er atriðið, og grét.“ Þú segir fólk aldrei þessu vant hlæja. Ert þú ekkert fyndinn svona yfirleitt? „Ef maður skrifar eitthvað sem er fyndið og fer svo maður í ári síðar þá bara finnst manni sjálfum þetta ekkert fyndið lengur og straujar það bara út úr senunni,“ segir Rúnar um glímuna við grínið sem í eðli sínu er háð tíma og rúmi. „Aðferðirnar voru aðeins frjáls- legri að þessu sinni þannig að það var hægt að spinna og bæta ein- hverju við. Mér finnst hellingur af alls konar hlutum í myndunum mínum vera fyndnir en það eru ein- hverjir svona fíflar sem ég veltist um af hlátri yfir þótt fáir aðrir geri það,“ segir Rúnar sem telur sig hafa ágætis húmor þótt hann kunni að vera sér- stakur. Fer þangað sem hann nennir Rúnar segir að þrátt fyrir allt og meina klikkun gunnhugmyndar- innar hafi honum gengið merkilega vel að fjármagna Bergmál. „Þetta gekk ágætlega til að byrja með en á síðustu metrunum varð aðeins erfiðara að fjármagna þessa mynd og koma þessu í framkvæmd,“ segir Rúnar sem telur ástæðuna eðlilega þótt hún sé einhvers konar þver- sögn. „Út af því að það er alveg sama þótt ég sé nú f lokkaður sem list- rænn leikstjóri þá ræður bara þetta almenna þegar ég breyti út af vana mínum. Núna skil ég líka vini mína sem eru tónlistarmenn. Það er alltaf búist við því að næsta plata verði næstum alveg eins og plöturnar á undan. Bara aðeins breyttar. Ég reyni bara alltaf að elta nennuna en ég held að sem einhvers konar listamanni sé manni mikilvægt að gera það.“ Rúnar talar hér ekki alveg út í bláinn þar sem hann hefur reynt ýmis meðul til þess að finna sköp- unarþörfinni réttan farveg. „Ég byrjaði ungur eitthvað að reyna að tjá mig með myndlist, tónlist og hinu og þessu en það var ekki fyrr en ég gerði fyrstu stuttmyndina að öll þessi form komu saman. Eftir það hef ég alltaf reynt að elta nennuna en það kom mér svosem á óvart að hún leitaði í þessa átt vegna þess að á blaði virkar þetta kannski ekki eins og eitthvað sem maður ætti endilega að gera.“ Skemmtilega óvænt Rúnar var ekki einn um að finnast stefna nennu sinnar undarleg en hann og hugur hans hafa eftir Berg- mál fengið uppreist æru og endur- nýjað heilbrigðisvottorð. „Það er nokkuð um að fólk segi mér að það hafi haldið að ég væri algerlega klikkaður en skilji fyrst núna hvert ég vildi fara með þess- ari mynd. Bergmál er að koma fólki skemmtilega á óvart sem er náttúrlega bara alveg frábært og ég er voða stoltur af þessari mynd og viðbrögðin sem ég hef fengið eru hugsanlega þau bestu sem ég hef fengið við verkum mínum.“ Þótt handritið og vinnan við Bergmál hafi verið aðeins öðruvísi segir Rúnar aðferðafræðina alltaf þá sömu. „Ég er alltaf með litla bók á mér. Hef gert það síðan ég var bara sextán ára eða eitthvað og ef ég sé eitthvað áhugavert eða upplifir eitt- hvað þá skrifa ég það niður. „Eins og núna stend ég við glugg- ann á skrifstofunni minni og það eru 25 Asíubúar í snjókomu að taka myndir af húsinu sem ég er í og stend úti í glugga. Þetta er alveg bjútífúl. Hversdagsleikinn getur verið svo fallegur. Við erum bara of oft eitthvað of upptekin af brauð- stritinu. Eða einhverju stressi þann- ig að við sjáum oft á tíðum ekki feg- urðina í kringum okkur.“ Kærkomin núllstilling Takturinn í kvikmyndagerð Rúnars hefur verið þannig að nokkur ár líða á milli mynda og hann hefur þegar þörf krefur í gegnum árin hiklaust gengið í alls konar verkamannastörf sem þykja illa henta listafólki sem merkt er latté og lopatreflum. „Það er mesta furða hvað maður hefur náð að lifa með þessu og það er langt síðan ég hef þurft að gera eitthvað svoleiðis en það er frábært að gera eitthvað þannig, líka bara til að núllstilla sig. Annars er maður bara fastur í sömu búbblunni og hittir bara annað kvikmyndagerðarfólk og ræðir sömu hlutina. Það er fínt að komast innan um smiði, pípara og annað fólk og djöf last aðeins,“ segir Rúnar sem sér ekki fram á að komast í slíka handavinnu á næst- unni. „Maður þarf að skeina þessari mynd fyrst og aldrei að vita hvenær, eða hvort, maður dettur í gang með að skrifa eitthvað nýtt og sirkusinn byrjar aftur.“ Klikkuð fegurð hversdagsins Sumir töldu Rúnar Rúnarsson klikkaðan þegar hann ákvað að setja bíómyndina Bergmál saman úr sextíu ótengdum atriðum. Djörf tilraunin gekk svo vel upp að hin alvarlegi leikstjóri framkallar meira að segja hlátur. Rúnar Rúnarsson fylgir velgengni Eldfjalls og Þrasta eftir með óvæntri mósaíkmynd af samfélaginu og hversdeginum sem er heillandi fagur ef vel er að gáð. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK EF MYNDINNI ER LÍKT VIÐ BÓKMENNTIR MÆTTI KANNSKI SEGJA AÐ ÞETTA SÉ EINHVERS KONAR SAM- BLANDA AF SMÁSAGNA- SAFNI OG LJÓÐABÓK. Þórarinn Þórarinsson thorarinn@frettabladid.is 7 . D E S E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R40 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.