Fréttablaðið - 07.12.2019, Qupperneq 92
Myndirnar mínar hafa hingað til ver ið t iltölu-l e g a þ u n g a r og mér hefur fundist erfitt að
vinna með húmor,“ segir leikstjór-
inn Rúnar Rúnarsson sem gerði
stormandi lukku og heillaði gesti
kvikmyndahátíða víða um lönd
með fyrstu tveimur bíómyndum
sínum, Eldfjalli frá 2011 og Þröstum
sem flugu hátt 2015 en þótti tefla á
tæpasta vað þegar hann ákvað að
fylgja velgengninni eftir með furðu-
verkinu sem Bergmál er.
„Við lögðum upp með 60 atriði
í handriti en ætli við höfum ekki
skotið svona 40-50 auka og af þessu
enda 58 í myndinni þannig að það
var hellingur afgangs.“ Klipping
myndarinnar var eins og gefur að
skilja heldur f lókin og Rúnar segir
heilmiklar pælingar hafa farið í
að velja og hafna, ná upp „tempói“
og skapa heild úr öllum þessum
brotum.
„Ef myndinni er líkt við bók-
menntir mætti kannski segja að
þetta sé einhvers konar samblanda
af smásagnasafni og ljóðabók,“ segir
Rúnar sem einhverjir töldu klikk-
aðan þegar hann ákvað að snúa
baki við stöðluðum frásagnarhætti
og leggjast í bútasaum.
„Flestar bækur og bíómyndir
segja eina sögu oft með eina aðal-
söguhetju sem við sjáum þroskast
einhvern veginn á leiðinni. Það eru
samt alveg upphaf, miðja, ris og
endir í þessari mynd þrátt fyrir að
samfélagið sjálft sé aðalpersónan.“
Alvarlegur húmoristi
Eins og Rúnar bendir á skilur f leira
en frásagnarhátturinn þessa mynd
frá öðrum verkum hans þar sem
hér bergmálar óvæntur hlátur á og
frá ólíklegustu stöðum og senum í
myndinni.
„Bergmál er líka fyndin og aldrei
þessu vant er fólk líka alveg að hlæja
yfir þessari mynd,“ segir Rúnar sem
hefur orðið áberandi var við þau
ólíku áhrif sem sögubrotin hafa á
fólk. Það sem einum finnst fyndið
finnst öðrum til dæmis fáránlegt
eða sorglegt.
Hann segir ekki síst skemmtilegt
að fylgjast með viðbrögðum áhorf-
enda við Bergmáli í ljósi þess hvern-
ig bíómyndir ferðast almennt á milli
menningarheima. Hvar og hvenær
fólk hlær og hlær ekki. „Á Spáni
þótti til dæmis alveg drepfyndið að
verið væri að núllstilla skiltið yfir
fjölda látinna í umferðinni uppi á
Hellisheiði en síðan þekki ég fólk
á Íslandi, sem tengir við er atriðið,
og grét.“
Þú segir fólk aldrei þessu vant
hlæja. Ert þú ekkert fyndinn svona
yfirleitt?
„Ef maður skrifar eitthvað sem er
fyndið og fer svo maður í ári síðar
þá bara finnst manni sjálfum þetta
ekkert fyndið lengur og straujar það
bara út úr senunni,“ segir Rúnar um
glímuna við grínið sem í eðli sínu er
háð tíma og rúmi.
„Aðferðirnar voru aðeins frjáls-
legri að þessu sinni þannig að það
var hægt að spinna og bæta ein-
hverju við. Mér finnst hellingur
af alls konar hlutum í myndunum
mínum vera fyndnir en það eru ein-
hverjir svona fíflar sem ég veltist um
af hlátri yfir þótt fáir aðrir geri það,“
segir Rúnar sem telur sig hafa ágætis
húmor þótt hann kunni að vera sér-
stakur.
Fer þangað sem hann nennir
Rúnar segir að þrátt fyrir allt og
meina klikkun gunnhugmyndar-
innar hafi honum gengið merkilega
vel að fjármagna Bergmál. „Þetta
gekk ágætlega til að byrja með en
á síðustu metrunum varð aðeins
erfiðara að fjármagna þessa mynd
og koma þessu í framkvæmd,“ segir
Rúnar sem telur ástæðuna eðlilega
þótt hún sé einhvers konar þver-
sögn.
„Út af því að það er alveg sama
þótt ég sé nú f lokkaður sem list-
rænn leikstjóri þá ræður bara þetta
almenna þegar ég breyti út af vana
mínum. Núna skil ég líka vini mína
sem eru tónlistarmenn. Það er alltaf
búist við því að næsta plata verði
næstum alveg eins og plöturnar
á undan. Bara aðeins breyttar. Ég
reyni bara alltaf að elta nennuna
en ég held að sem einhvers konar
listamanni sé manni mikilvægt að
gera það.“
Rúnar talar hér ekki alveg út í
bláinn þar sem hann hefur reynt
ýmis meðul til þess að finna sköp-
unarþörfinni réttan farveg. „Ég
byrjaði ungur eitthvað að reyna
að tjá mig með myndlist, tónlist og
hinu og þessu en það var ekki fyrr
en ég gerði fyrstu stuttmyndina að
öll þessi form komu saman.
Eftir það hef ég alltaf reynt að elta
nennuna en það kom mér svosem á
óvart að hún leitaði í þessa átt vegna
þess að á blaði virkar þetta kannski
ekki eins og eitthvað sem maður
ætti endilega að gera.“
Skemmtilega óvænt
Rúnar var ekki einn um að finnast
stefna nennu sinnar undarleg en
hann og hugur hans hafa eftir Berg-
mál fengið uppreist æru og endur-
nýjað heilbrigðisvottorð.
„Það er nokkuð um að fólk segi
mér að það hafi haldið að ég væri
algerlega klikkaður en skilji fyrst
núna hvert ég vildi fara með þess-
ari mynd. Bergmál er að koma
fólki skemmtilega á óvart sem er
náttúrlega bara alveg frábært og ég
er voða stoltur af þessari mynd og
viðbrögðin sem ég hef fengið eru
hugsanlega þau bestu sem ég hef
fengið við verkum mínum.“
Þótt handritið og vinnan við
Bergmál hafi verið aðeins öðruvísi
segir Rúnar aðferðafræðina alltaf
þá sömu. „Ég er alltaf með litla bók
á mér. Hef gert það síðan ég var bara
sextán ára eða eitthvað og ef ég sé
eitthvað áhugavert eða upplifir eitt-
hvað þá skrifa ég það niður.
„Eins og núna stend ég við glugg-
ann á skrifstofunni minni og það
eru 25 Asíubúar í snjókomu að
taka myndir af húsinu sem ég er í
og stend úti í glugga. Þetta er alveg
bjútífúl. Hversdagsleikinn getur
verið svo fallegur. Við erum bara of
oft eitthvað of upptekin af brauð-
stritinu. Eða einhverju stressi þann-
ig að við sjáum oft á tíðum ekki feg-
urðina í kringum okkur.“
Kærkomin núllstilling
Takturinn í kvikmyndagerð Rúnars
hefur verið þannig að nokkur ár líða
á milli mynda og hann hefur þegar
þörf krefur í gegnum árin hiklaust
gengið í alls konar verkamannastörf
sem þykja illa henta listafólki sem
merkt er latté og lopatreflum.
„Það er mesta furða hvað maður
hefur náð að lifa með þessu og það
er langt síðan ég hef þurft að gera
eitthvað svoleiðis en það er frábært
að gera eitthvað þannig, líka bara til
að núllstilla sig.
Annars er maður bara fastur
í sömu búbblunni og hittir bara
annað kvikmyndagerðarfólk og
ræðir sömu hlutina. Það er fínt að
komast innan um smiði, pípara
og annað fólk og djöf last aðeins,“
segir Rúnar sem sér ekki fram á að
komast í slíka handavinnu á næst-
unni. „Maður þarf að skeina þessari
mynd fyrst og aldrei að vita hvenær,
eða hvort, maður dettur í gang með
að skrifa eitthvað nýtt og sirkusinn
byrjar aftur.“
Klikkuð fegurð hversdagsins
Sumir töldu Rúnar Rúnarsson klikkaðan þegar hann ákvað að setja bíómyndina Bergmál saman úr sextíu
ótengdum atriðum. Djörf tilraunin gekk svo vel upp að hin alvarlegi leikstjóri framkallar meira að segja hlátur.
Rúnar Rúnarsson fylgir velgengni Eldfjalls og Þrasta eftir með óvæntri mósaíkmynd af samfélaginu og hversdeginum sem er heillandi fagur ef vel er að gáð. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
EF MYNDINNI ER LÍKT
VIÐ BÓKMENNTIR MÆTTI
KANNSKI SEGJA AÐ ÞETTA
SÉ EINHVERS KONAR SAM-
BLANDA AF SMÁSAGNA-
SAFNI OG LJÓÐABÓK.
Þórarinn
Þórarinsson
thorarinn@frettabladid.is
7 . D E S E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R40 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð