Fréttablaðið - 07.12.2019, Page 96
Það eru níu ár frá því ég tók ák vörðun um að skrifa þessa bók,“ segir Ragnheiður Björk Þórsdóttir um bókina Listin að vefa sem út er komin hjá Forlaginu og
var fagnað í Heimilisiðnaðarfélaginu
í vikunni. Útgáfuár síðustu kennslu
bókar sem út kom í vefnaðarfræðum
var 1930, svo þessi bók markar tíma
mót.
Ragnheiður Björk er reynd í faginu.
„Ég hef verið textíllistamaður í 30 ár og
alltaf með vefinn sem minn aðalmiðil,“
segir hún og kveðst hafa kennt vefnað
við Verkmenntaskólann á Akureyri
í þrjá áratugi en veikst alvarlega fyrir
fimm árum og hætt kennslu. Hún hefur
samt aldeilis ekki setið auðum höndum
eins og nýja bókin ber vitni um.
„Árið 2011 prófaði ég að fara í Forlagið
að kynna hugmyndina að bókinni og
fékk góðar undirtektir en hún er dýrt
verkefni. Eftir að styrkur til útgáfunnar
kom úr Bókmenntasjóði 2013 fóru hjól
in að snúast, Laufey Leifsdóttir var skip
aður ritstjóri og ég lagðist í rannsóknir,
skrifaði og skrifaði. Laufey býr í Skaga
firðinum svo það er stutt á milli okkar
og við áttum gott samstarf. Svo var Frey
dís Kristjánsdóttir fengin til að gera
teikningar í bókina, þær eru einstaklega
fallegar og koma vel út. Borghildur Ína
Sölvadóttir sér um umbrot bókarinnar.
Hún er grafískur hönnuður, var í vefn
aði hjá mér í Verkmenntaskólanum og
hefur innsýn inn í
þennan heim, það
kom sér vel. Svona
hefur þetta spil
ast ,“ lýsir R ag n
heiður Björk sem
hefur líka unnið að
ra nnsók na r verk
efni fyrir Rannís
í Tex t í l m iðstöð
Íslands á Blönduósi
í þrjú ár. Það snýst
um vefnað.
Þó að áhuginn á
vefnaði mætti vera
meiri á Íslandi, að
mati Ragnheiðar
Bjarkar, segir hún
mikið að gerast í
vef og textíl úti í
heimi. „Á Blöndu
ósi erum við með
gestavinnustofur fyrir textíllistamenn
og þangað koma margir vefarar af
báðum kynjum. Erum með tíu vefstóla
og svo einn stafrænan, þann eina sem
til er á Íslandi. Það er undragripur og
slíka er verið er að nota um allan heim
í hönnunargeiranum og háskólum. Við
tengjum saman fortíð og nútíð með því
að nota gömlu mynstrin á nýjan hátt í
þessum digitalvefstól.“
Ragnheiður Björk giskar á að innan
við hundrað manns á Íslandi kunni að
setja upp vef í vefstól, en segir marga
hafa lært vefnað, enda sé hann kenndur
í Heimilisiðnað
arfélaginu, Hús
stjór narskólun
um í Reykavík og
á Hallormsstað,
Myndlistarskól
anum í Reykjavík
og FB í Breiðholti.
„Vonandi verður
kenndur vefnaður
áfram á Akureyri
þó að það sé ekki á
þessari önn. Nem
endur í fatahönnun
við LHÍ hafa komið
til mín á Blönduós
í eina viku á ári í
ve f n að, út s au m
prjón og spuna svo
þeir hafa fengið að
snerta á þessu – en
bara í eina viku. Það
er mjög gaman að kenna þeim,“ tekur
hún fram.
Okkur ber saman um að nýja bókin
hljóti að verða vítamínsprauta fyrir
vefnað á Íslandi.
„Ég vissi að á meðan engin bók væri
til á íslensku í þessum fræðum mundi
lítið gerast og var því eins og Don Kíkóti
að berjast í að koma þessari á kopp
inn. Það tók langan tíma en hafðist að
lokum.“ Þess má geta að einungis konur
komu að vinnslu bókarinnar, ljósmynd
arinn, teiknarinn, setjarinn, ritstjórinn
og rithöfundurinn. gun@frettabladid.is
Bók sem markar tímamót
Listin að vefa er fyrsta vefnaðarbók sem út kemur á Íslandi í 70 ár. Ragnheiður Björk
Þórsdóttir vefnaðarkennari á aðalheiðurinn og margir fleiri lögðu hönd á plóg.
„Ég vissi að á meðan engin bók væri til á íslensku í þessum fræðum mundi lítið gerast og var því dálítið eins og Don Kíkóti að
berjast við að koma þessari á koppinn. Það tók langan tíma en hafðist að lokum,“ segir Ragnheiður Björk. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Ástkær eiginmaður minn, sonur,
bróðir, mágur og frændi,
Magnús Ingi Magnússon
matreiðslumeistari,
lést 28. nóvember sl.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey.
Aðstandendur þakka auðsýnda
samúð og kærleik á erfiðum tímum.
Analisa Montecello
Magnús Theodór Magnússon
Ársæll Magnússon
Dóra Magnúsdóttir Guðmundur Jón Guðjónsson
og systkinabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, sonur og afi,
Ásbjörn Jónsson
hæstaréttarlögmaður,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
þriðjudaginn 3. desember.
Útför hans fer fram frá
Keflavíkurkirkju föstudaginn 13. desember kl. 13.
Auður Vilhelmsdóttir
Björg Ásbjörnsdóttir Niels H. Bennike
Birna Ásbjörnsdóttir Andreas H. Christiansen
Bergrún Ásbjörnsdóttir
Jón B. Stefánsson
Ásbjörn, Bergur og Eyrún
Kristmundur Bjarnason
rithöfundur og fræðimaður
á Sjávarborg í Skagafirði,
lést á Heilbrigðisstofnun Skagafjarðar
4. desember síðastliðinn.
Dætur og aðrir aðstandendur
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Þóranna Þórarinsdóttir
Hátröð 2,
lést þann 30. nóvember á LSH Fossvogi.
Útför hennar fer fram frá Kópavogskirkju
föstudaginn 13. desember kl. 13.00.
Ragnheiður Lára Guðjónsdóttir
Anna Margrét Ingólfsdóttir Hallvarður Sigurðsson
Sigríður Ingólfsdóttir Hreimur Garðarsson
Árni Ingólfsson Íris Marelsdóttir
Ólafur Ingólfsson Kristbjörg Ásmundsdóttir
Helgi Bergmann Ingólfsson Marcela Ægisdóttir
ömmu- og langömmubörn.
Elskuleg mamma mín, tengdamamma,
amma, langamma og langalangamma,
Pálína Bjarnadóttir
áður til heimilis að Heiðargerði 49,
lést 26. nóvember síðastliðinn á
hjúkrunarheimilinu Mörk.
Útförin fer fram frá Kópavogskirkju
mánudaginn 9. desember kl. 13.
Blóm og kransar afþakkaðir. Þeim sem vilja minnast
hennar er bent á Minningarsjóð Einars Darra,
kt. 510718-1510, reiknnr. 552-14-405040.
Sigrún Einarsdóttir Kristján Sigurgeirsson
Einar Páll Tómasson Sigrún Erla Valdimarsdóttir
Bára Tómasdóttir
Andrea Ýr Arnarsdóttir Pétur Freyr Jóhannesson
Erla María Einarsdóttir Vilhjálmur Pétursson
Aníta Rún Óskarsdóttir Árni Kristján Rögnvaldsson
Valdimar Einarsson Kristín Erla Einarsdóttir
Ísabella Rós Pétursdóttir Baltasar Aron Pétursson
Við önnumst alla þætti undirbúnings og fram-
kvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbússkiptin.
Við þjónum með virðingu og umhyggju að
leiðarljósi og af faglegum metnaði.
Við erum til staðar
þegar þú þarft á
okkur að halda
Sigrún Óskarsdóttir,
guðfræðingur
Útfararþjónusta
& lögfræðiþjónusta
Vesturhlíð 2, Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is
Með kærleik og virðingu
Útfararstofa Kirkjugarðanna
7 . D E S E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R44 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT