Fréttablaðið - 20.12.2019, Side 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —2 9 7 . T Ö L U B L A Ð 1 9 . Á R G A N G U R F Ö S T U D A G U R 2 0 . D E S E M B E R 2 0 1 9
Allt frá jakkafötum til jólaepla
Kringlunni - michelsen.is
Glæsilegar jólagjafir
í jólaskapi
LENGRI
OPNUNARTÍMI
Í NETTÓ
OPIÐ Í ÖLLUM NETTÓ
VERSLUNUM TIL 23 Í KVÖLD
OPIÐ ALLAN SÓLARHRINGINN
Í NETTÓ GRANDA OG MJÓDD
ÖRYGGISMÁL „Það þarf að gæta
meðalhófs en það er ekki endilega
óeðlilegt að nota öryggismyndavélar
í skólum,“ segir Hrefna Sigurjóns-
dóttir, framkvæmdastjóri foreldra-
samtakanna Heimilis og skóla.
Persónuvernd skoðar nú uppsetn-
ingu á eftirlitsmyndavélum í grunn-
skólum í Hafnarfirði. Bæjaryfirvöld
segja farið að lögum og reglum.
Málið hafi verið rætt á fundum með
skólastjórum.
„Skólastjórnendur telja að skóla-
samfélagið styðji slíka öryggisvörslu
með lögbundnum skilyrðum og hafa
talið að slíkt myndi auka öryggi í
skólastarfinu,“ segir í svari bæjarins
til Persónuverndar.
Hrefna segir að Heimili og skóli
hafi sent frá sér ályktun í október
varðandi öryggismál í skólum eftir
að óviðkomandi maður hafi komið
inn í Austurbæjarskóla í Reykja-
vík, villt á sér heimildir og brotið
þar kynferðislega á barni. Eftirlits-
myndavélar hafi þá verið ræddar á
vettvangi samtakanna en ekkert um
þær þó ratað inn í ályktunina.
„Við erum ekki að tala um að það
eigi að vera eitthvert stórabróðurs-
samfélag þar sem börnin eru undir
stöðugu eftirliti, þau verða líka að fá
að leika frjáls. Á hinn bóginn er slíkt
kannski ekki óeðlilegt í opinberum
byggingum eins og skólum þar sem
eru líka ákveðin verðmæti,“ segir
Hrefna.
Að sögn Hrefnu er ekki æskilegt
að börnin séu undir stöðugu eftir-
liti. „Ég efast um að nokkur vilji hafa
myndavél beint að sér allan daginn,“
segir hún. Hins vegar sé slíkt eftirlits-
kerfi skiljanlegt í stórum stofnunum
þar sem séu verðmæti og uppfylla
þurfi ákveðna öryggisskyldu. Þá sé
hægt að skoða upptökur ef eitthvað
beri út af.
„Það skiptir máli hvar myndavélar
eru staðsettar, hversu margar þær eru
og hvað þær eru að taka upp. Og það
þarf að vera mjög skýrt hvernig nota á
efnið og í hvaða tilgangi,“ segir Hrefna
Sigurjónsdóttir. – gar / sjá síðu 4
Myndavélar í skólum
þurfa skýran tilgang
Bæjaryfirvöld í Hafnarfirði segja í svari til Persónuverndar eftirlitsmyndavélar í
grunnskólum bæjarins studdar af skólasamfélaginu. Framkvæmdastjóri Heim-
ilis og skóla segir að skýrt þurfi að vera í hvaða tilgangi myndefni sé tekið upp.
Hrefna
Sigurjónsdóttir,
framkvæmda-
stjóri Heimilis
og skóla.
Rúrik Gíslason.
Örtröð myndaðist þegar jólaúthlutun fyrir fjölskyldur fór fram í Fjölskylduhjálp Íslands í gær. Fjölmörg fyrirtæki studdu við úthlutunina auk
þess sem önnur, í ljósi vitundarvakningar varðandi matarsóun, gáfu vörur sem nálguðust brátt síðasta söludag. FRÉTTABLAÐIÐ SIGTRYGGUR ARI
LÍFIÐ Knattspyrnumaðurinn Rúrik
Gíslason hannar bol með 66°Norð-
ur og rennur allur ágóði af sölu hans
til SOS Barnaþorpa. Rúrik hefur
lengi haft áhuga á tísku en hefur
ekki hannað áður. Hann segir sam-
starfið við 66°Norður hafa gengið
vel og að hann sé að rækta lista-
manninn í sjálfum sér.
Hannar bol í
góðgerðarskyni
Fyrir einu og hálfu ári höfðu
Barnaþorp SOS samband við Rúrik
og báðu hann um að gerast velgjörð-
arsendiherra fyrir samtökin. Hann
þurfti ekki hugsa sig tvisvar um.
„Mig langaði svo mikið að leggja
mitt af mörkum, ekki bara monta
mig af því að vera velgjörðarsendi-
herra og gera svo ekki rassgat. Mig
langaði að gera eitthvað sem myndi
vekja athygli á samtökunum. Þá
fékk ég þessa hugmynd, að hanna
bol og selja til styrktar samtök-
unum,“ segir Rúrik. – ssþ / sjá síðu 44