Fréttablaðið - 20.12.2019, Side 4
Allar nýjustu fréttir og blað
dagsins eru fáanleg á
www.frettabladid.is
1 Sjö til kynningar um köngu lær með rauðum díl á að eins ör
fáum vikum Náttúrufræðistofnun
hefur fengið óvenju margar til
kynningar á undanförnum vikum
um köngulær í vínberjapokum.
2 Seinka jólunum til að gleðja ókunnuga Eigendur Orange
Café bjóða einstæðingum að upp
lifa ekta jól á aðfangadagskvöld.
3 Bandaríkjaforseti formlega á kærður til em bættis missis
Donald J. Trump er þriðji forsetinn
sem er ákærður til embættis
missis (e. impeached).
4 Búið að bera kennsl á hin myrtu í Maniit soq en morð
inginn gengur enn laus Lögreglan
hefur ekki enn fundið morðingj
ann sem myrti tvo einstaklinga í
grænlenska þorpinu Maniitsoq í
fyrrinótt.
5 Tveir ein stæðir feður flytja úr for eldra húsum í leigu í búð
fyrir jólin Lyklar voru af hentir að
nýjum leigu í búðum ætluðum
tekju lágum ein stak lingum og fjöl
skyldum í Hafnar firði í dag.
PERSÓNUVERND Persónuvernd hefur
hafið frumkvæðisathugun á eftirlits
myndavélum við grunnskóla í Hafn
arfirði. Bæjaryfirvöld segja farið að
lögum og reglum.
Í erindi frá 4. desember vísaði Per
sónuvernd í fjölmiðlaumfjöllun um
að Hafnarfjarðarbær hafi á liðnum
tveimur árum sett upp eftirlits
myndavélar við grunnskóla. Mynda
vélum yrði komið fyrir við síðasta
grunnskólann fyrir áramót. Á næsta
ári yrði byrjað að setja upp eftirlits
myndavélar við leikskóla.
Persónuvernd sendi Hafnar
fjarðar bæ spurningalista. Þar var
meðal annars spurt að því hvar
myndavélunum væri komið fyrir,
hvers konar rými væru vöktuð og
hvort vöktunin næði út fyrir skóla
lóðirnar.
Einnig var spurt við hvaða laga
heimild myndavélaeftirlitið styddist
og hvernig það samræmdist ákvæð
um um rafræna vöktun í lögum um
persónuvernd.
„Rafræn vöktun er ávallt háð því
skilyrði að hún fari fram í málefna
legum tilgangi. Rafræn vöktun
svæðis þar sem takmarkaður hópur
fólks fer um að jafnaði er jafnframt
háð því skilyrði að hennar sé sérstök
þörf vegna eðlis þeirrar starfsemi sem
þar fer fram,“ er eitt ákvæðanna sem
Persónuvernd vísaði til.
Bréf Persónuverndar var lagt fyrir
bæjarráð Hafnarfjarðar í gær.
Fréttablaðið hefur undir höndum
svar bæjarins sem undirritað er af
Rósu Guðbjartsdóttur bæjarstjóra
og dagsett er í fyrradag. Þetta svarbréf
var þó ekki lagt fyrir bæjarráðið í gær.
„Við höfum uppfyllt öll skilyrði
laga og reglna hvað eftirlitsmynda
vélar varðar,“ segir Sigríður Krist
insdóttir bæjarlögmaður við Frétta
blaðið.
„Skólastjórnendur telja að skóla
samfélagið styðji slíka öryggisvörslu
með lögbundnum skilyrðum og
hafa talið að slíkt myndi auki öryggi
í skólastarfinu,“ segir í svarbréfi
bæjarins. Vöktunin snúist um að
vernda eigur nemenda, sveitarfélags
ins og starfsmanna og tryggja öryggi
nemenda, starfsfólks og annarra að
mörkum skólalóðanna.
„Myndavélar innandyra snúa
aðeins að fáum grunnskólum sveitar
félagsins,“ segir í svari bæjarins.
„Hvað varðar vélar innanhúss
í núverandi framkvæmd þá skal
vöktun þeirra beinast að svæði við
útgang/inngang og þá eftir atvikum
að þeim verðmætum sem þar er
að finna svo sem föt og skór. Auk
almannarýmis ef sérstök ástæða er til
með hliðsjón af öryggi og að tryggja
verðmæti.“
Þá segir Hafnarfjarðarbær að ekki
hafi verið formlega ákveðið að að
setja upp öryggismyndavélar við leik
skóla á næsta ári.
„Þess skal þó getið að stefnt er á
að setja upp eftirlit utanhúss utan
vistunartíma við einn leikskól
ann sökum skemmda og slæmrar
umgengni þegar leikskólanum er
lokað,“ segir í bréfi Hafnarfjarðar
bæjar. gar@frettabladid.is
Eftirlitsmyndavélarnar sagðar
vernda skólafólk í Hafnarfirði
Hafnarfjarðarbær segir uppsetningu eftirlitsmyndavéla við grunnskóla bæjarins í samræmi við lög og
reglur. Ekki hafi verið formlega ákveðið að setja einnig upp vélar við leikskóla. Þetta kemur fram í svari
bæjarins til Persónuverndar sem hóf skoðun á málinu eftir fjölmiðlaumfjöllun fyrr í þessum mánuði.
Skólastjórnendur
telja að skólasam-
félagið styðji slíka öryggis-
vörslu með lögbundnum
skilyrðum og hafa talið að
slíkt myndi auki öryggi í
skólastarfinu.
Úr svarbréfi Rósu
Guðbjartsdóttur,
bæjarstjóra
Hafnarfjarðar, til
Persónuverndar
Eftirlitsmyndavélar við Lækjarskóla og aðra skóla í Hafnarfirði auka öryggi segja bæjaryfirvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
mánudaga-föstudaga 7.30 -17.30
laugardaga 8.00 -16.00
sunnudaga 9.00 -16.00
Austurströnd 14 • Hringbraut 35
....................................................Sími: 561 1433
www.bjornsbakari.is
PREN
TU
N
.IS
TARTALETTUR
Íslenskar hátíðar
................................................
Fyrir jól og áramót
Fléttubrauð, skrautrúnstykki, súpurúnstykkifín
og gróf snittubrauð, fín og gróf samlokubrauð,
partýbrauð 15 og 30 kúla
GLEÐILEG JÓL
Pantið í verslunum okkar
eða hringið í síma 561 1433
HEILBRIGÐISMÁL Fella á niður
komugjöld sjúklinga í áföngum og
auka niðurgreiðslur sjúkratrygg
inga vegna tannlæknaþjónustu
og lyfja. Þetta eru meðal þeirra
aðgerða sem kynntar voru í gær í
því skyni að lækka greiðsluþátt
töku í heilbrigðiskerfinu.
Alls verður 1,1 milljarði króna
ráðstafað til verkefnanna næstu
tvö árin.
Hluti aðgerðanna kemur til
framkvæmda strax um áramótin
en samkvæmt ríkisfjármálaáætlun
á að verja 3,5 milljörðum króna í að
lækka greiðsluþátttöku til ársins
2024. „Lækkun greiðsluþátttöku
sjúklinga er afgerandi þáttur í því
að jafna aðgengi fólks að heilbrigð
isþjónustu og sporna við heilsu
farslegum ójöfnuði af félagslegum
og fjárhagslegum ástæðum,“ segir
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðis
ráðherra.
„Markmiðið er að greiðsluþátt
takan verði á pari við það sem best
gerist á Norðurlöndunum,“ segir
Svandís.
Meðal annarra aðgerða sem
ráðast verður í er fjölgun á léttum
súrefnis síum fyrir lungnasjúkl
inga, þá verður nýr búnaður fyrir
sykursjúka tekinn í notkun og
settar verða rýmri reglur um ferða
kostnað sjúklinga og aðstandenda
þeirra. – sar
Rúmur milljarður í lægri greiðsluþátttöku
Lækkun greiðslu-
þátttöku sjúklinga
er afgerandi þáttur í því að
jafna aðgengi fólks
að heilbrigðis-
þjónustu.
Svandís Svavars
dóttir heilbrigðis
ráðherra
VI N N U M AR K AÐ U R Heildarlaun
félagsmanna í VR voru að meðaltali
666 þúsund krónur á mánuði í sept
ember síðastliðnum. Þetta sýna nið
urstöður launarannsóknar félagsins.
Höfðu laun hækkað að meðaltali um
2,1 prósent frá því í febrúar þegar
síðasta rannsókn var gerð.
Miðgildi heildarlauna reyndist
615 þúsund krónur á mánuði og
hafði hækkað um 2,5 prósent frá því
í febrúar. Launarannsókn VR byggir
á skráningum um 13 þúsund félags
manna í launareiknivél.
Hæstu meðallaunin voru í upp
lýsingatækni, hugbúnaðargerð
og tölvusölu og þjónustu eða 804
þúsund á mánuði. Lægst meðallaun
voru hins vegar í verslun með lyf,
hjúkrunar og snyrtivörur þar sem
þau voru 562 þúsund á mánuði. – sar
Meðallaun í VR
666.000 krónur
UMHVERFISMÁL Umhverfisstofnun
hefur gefið út skýrslu þar sem greint
er frá niðurstöðum á mælingum á
efnainnihaldi svifryks um síðustu
áramót.
Í skýrslunni kemur fram að
veruleg aukning hafi orðið á hlut
falli ýmissa innihaldsefna svifryks
um áramótin. Þau efni sem hækki
hvað mest séu einkennandi fyrir
mengun frá flugeldum en komi ekki
frá öðrum uppsprettum svo sem ára
mótabrennum.
Ryk sem þetta er sagt bæði vara
samt og heilsuspillandi og þá sér í
lagi fyrir börn og aldraða. Mengun
frá flugeldum er sögð raunverulegt
vandamál hér á landi og er fólk hvatt
til hófsemi í notkun á flugeldum um
komandi áramót.
Tekið er fram á vef stofnunarinnar
að flugeldar séu „aldrei umhverfis
vænir eða skaðlausir og því er mikil
vægt að minnka verulega magn flug
elda sem skotið er upp um áramót
þar sem þeim fylgir ávallt mikið svif
ryk“. Sýnum var safnað á mælistöð
við Grensásveg í Reykjavík og Dals
mára í Kópavogi. Á báðum stöðum
mátti sjá mikla aukningu svifryks
um áramótin 20182019 ásamt því
að efnainnihald þess breyttist.
Þann fyrsta janúar mældist svif
ryk við Grensásveg 81,5 mikró
grömm á rúmmetra miðað við 5,1
þann 27. desember. Í Dal smára
mældist svifryk 114,9 mikró grömm
á rúmmetra á nýársdag en 1,0 þann
27. desember. – bdj
Aukið svifryk mælist um áramót
Flugeldar valda mikilli og skaðlegri loftmengun. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
2 0 . D E S E M B E R 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð